16. (818). fundur
16. (818). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
19.10.2017
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - forseti bæjarstjórnar
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Auk þess sat fundinn Gunnar Einarsson bæjarstjóri.
Fundurinn er hljóðritaður.
Jóna Sæmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 5. október 2017 er lögð fram.
Dagskrá
Málsnúmer 1710018F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 10/10 ´17.
Fundargerðin sem er 12 tl., er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
Málsnúmer 1710030F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 17/10 ´17.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 7. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um framkvæmdaleyfi fyrir Lyklafellslínu og lagði til að fresta afgreiðslu, til næsta fundar, á tillögu um að veita leyfi til framkvæmda.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 7. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um framkvæmdaleyfi fyrir Lyklafellslínu.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 7. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um framkvæmdaleyfi fyrir Lyklafellslínu.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 7. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um framkvæmdaleyfi fyrir Lyklafellslínu, 6. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um tillögu að rammaskipulagi fyrir Lyngássvæðis og 12. tl., tilynningu frá Jöfnunarsjóði um tillögur um breytingar á úthlutun jöfnunarframlaga.
María Grétarsdóttir, ræddi 7. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um framkvæmdaleyfi fyrir Lyklafellslínu og lagði fram eftirfarandi tillögu:
Björt framtíð og FÓLKIÐ- í bænum leggja til að erindi Landsnets um framkvæmdaleyfi fyrir Lyklafellslínu verði frestað þangað til fyrir liggur niðurstaða frá úrskurðanefnd umhverfis- og auðlindamála um þegar veitt framkvæmdarleyfi við Suðvesturlínu frá Hafnarfjarðarbæ og Mosfellsbæ.
Greinargerð
Landsnet hefur sótt um framkvæmdaleyfi til sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu fyrir Lyklafellslínu, háspennulínu sem reisa á yfir vatnsverndarsvæði höfuðborgarsvæðisins. Samtals er um að ræða 150 km af nýjum loftlínum sem liggja að mestu um hraun.
Samningur Hafnarfjarðarbæjar og Landsnets árið 2015, um niðurrif Hamraneslína í Hafnarfirði, varð til að setja þessa nýju línu á framkvæmdaráætlun. Ekki er fyrirséð að þörf sé á Lyklafellslínu, einungis tilfærslu á Hamraneslínum eða lagningu þeirra í jörð á um 3 km kafla.
Samkvæmt lögum bar í matsskýrslu framkvæmdarinnar, þá nefnd Suðvesturlínur, að skoða aðra mögulega valkosti og bera saman umhverfisáhrif þeirra auk þess að rökstyðja val framkvæmdaraðila að teknu tilliti til umhverfisáhrifa. Í matsskýrslu Suðvesturlína varð á þessu misbrestur og engir aðrir valkostir, hvorki tilfærsla á Hamraneslínum, önnur lega Lyklafellslínu né jarðstrengir skoðaðir. Einungis lagning háspennulínu yfir vatnsverndarsvæðin.
Samkvæmt 2.mgr. 14.gr. skipulagslaga skal sveitarstjórn við umfjöllun um umsókn um framkvæmdaleyfi vegna matsskyldrar framkvæmdar kynna sér matsskýrslu framkvæmdaraðila um framkvæmdina og kanna hvort framkvæmdin sé sú sem lýst er í matsskýrslu. Þá skal sveitarstjórn taka rökstudda afstöðu til álits Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar.
Þegar er fallin Hæstaréttardómur um að framkvæmdarleyfi verði ekki byggt á matsskýrslu og álit Skipulagsstofnunar um Suðvesturlínur. Hæstiréttur gerir athugasemd við þá aðferðarfræði umhverfismats sem fól í sér almennan samanburð á loftlínum og jarðstrengjum.
Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands og Hraunavinir kærðu í ágúst s.l. leyfisveitingu Hafnarfjarðar og Mosfellsbæjar með vísan til 52. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 og 3. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Kærendur krefjast þess að fellt verði úr gildi framkvæmdaleyfi Landsnets vegna Suðvesturlína/Lyklafellslínu. Að mati kærenda eru ekki uppfyllt skilyrði til að veita hið kærða framkvæmdaleyfi.
Að framsögðu má ljóst vera að verulegur vafi leikur á að hægt sé að rökstyðja veitingu framkvæmdaleyfis byggðu á þeirri matsskýrslu sem nú liggur fyrir frá Landsneti og Skipulagsstofnun.
Almar Guðmundsson, ræddi 7. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um framkvæmdaleyfi fyrir Lyklafellslínu.
Guðrún Herbertsdóttir, ræddi að nýju 7. tl.
Gunnar Einarson, bæjarstjóri ræddi 7. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um framkvæmdaleyfi fyrir Lyklafellslínu.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi að nýju 7. tl.
María Grétarsdóttir, ræddi að nýju 7. tl.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 7. tl.
Steinþór Einarson, ræddi 7. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um framkvæmdaleyfi fyrir Lyklafellslínu.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi að nýju 7. tl.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 7. tl. afgreiðslu skipulagsnefndar um framkvæmdaleyfi fyrir Lyklafellslínu.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi að nýju 7. tl.
Afgreiðsla mála.
Bæjarstjórn samþykkir að fresta afgreiðslu á tillögu um að veita framkvæmdaleyfi fyrir Lyklafellslínu til næsta fundar.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögu bæjarfulltrúa MG og GEH til bæjarráðs.
Fundargerðin sem er 14 tl., er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1710016F
03
Fundargerð fjölskylduráðs frá 12/10 ´17.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 7. tl., dagþjálfun fyrir einstaklinga með heilabilun í Garðabæ. Sturla greindi frá aðgerðaráætlun sem unnið hefur verið að í framhaldi af samþykkt og útgáfu á stefnu í málefnum eldri borgara í Garðabæ.
María Grétarsdóttir, ræddi 1.?5. tl., umsóknir um fjárhagsaðstoð og spurði hvort málum væri að fjölga.
Sturla Þorsteinsson, ræddi sama mál og svaraði fyrirspurn.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 7. tl., dagþjálfun fyrir einstaklinga með heilabilun í Garðabæ.
Gunnar Einarsson, ræddi 7. tl., dagþjálfun fyrir einstaklinga með heilabilun í Garðabæ.
Sturla Þorsteinsson, ræddi að nýju 7. tl.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi að nýju 7. tl.
Steinþór Einarsson, ræddi 7. tl., dagþjálfun fyrir einstaklinga með heilabilun í Garðabæ.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1709052F
04
Fundargerð mannréttinda- og forvarnanefndar frá 4/10 ´17.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., forvarnarviku og fjallaði um opinn fræðslufund í Sjálandsskóla fyrir foreldra.
Gunnar Einarsson, ræddi forvarnir almennt og vék að hugmyndum og tillögum um uppsetningu öryggismyndavéla.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1710025F
05
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 13/10 ´17.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1710010F
06
Fundargerð skipulagsnefndar frá 5/10 ´17.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1710023F
07
Fundargerð skipulagsnefndar frá 12/10 ´17.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1709058F
08
Fundargerð umhverfisnefndar frá 5/10 ´17.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1710019F
09
Fundargerð umhverfisnefndar frá 11/10 ´17.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1703044F
10
Fundargerð ungmennaráðs frá 1/3 ´17.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi málefni ungmennaráðs og sagði frá samgönguþingi unga fólksins.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1701182
11
Fundargerð stjórnar SSH frá 2/10 ´17.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1704086
12
Fundargerð 11. eigendafundar Sorpu bs. frá 27/9 ´17.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1704087
13
Fundargerð 15. eigendafundar Strætó bs. frá 27/9 ´17.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1701135
14
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 29/9 ´17.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1709251
15
Tillaga um að veita bæjarráði umboð til að gera leiðréttingar á kjörskrá.
Bæjarstjórn samþykkir að veita bæjarráði umboð til að taka til meðferðar athugasemdir við kjörskrá vegna alþingiskosninga sem fram eiga að fara 28. október 2017 og gera viðeigandi leiðréttingar á henni samkvæmt 27. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000.