Fundargerð bæjarráðs frá 17/10 ´17.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
16. (818). fundur
Sigurður Guðmundsson, ræddi 7. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um framkvæmdaleyfi fyrir Lyklafellslínu og lagði til að fresta afgreiðslu, til næsta fundar, á tillögu um að veita leyfi til framkvæmda.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 7. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um framkvæmdaleyfi fyrir Lyklafellslínu.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 7. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um framkvæmdaleyfi fyrir Lyklafellslínu.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 7. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um framkvæmdaleyfi fyrir Lyklafellslínu, 6. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um tillögu að rammaskipulagi fyrir Lyngássvæðis og 12. tl., tilynningu frá Jöfnunarsjóði um tillögur um breytingar á úthlutun jöfnunarframlaga.
María Grétarsdóttir, ræddi 7. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um framkvæmdaleyfi fyrir Lyklafellslínu og lagði fram eftirfarandi tillögu:
Björt framtíð og FÓLKIÐ- í bænum leggja til að erindi Landsnets um framkvæmdaleyfi fyrir Lyklafellslínu verði frestað þangað til fyrir liggur niðurstaða frá úrskurðanefnd umhverfis- og auðlindamála um þegar veitt framkvæmdarleyfi við Suðvesturlínu frá Hafnarfjarðarbæ og Mosfellsbæ.
Greinargerð
Landsnet hefur sótt um framkvæmdaleyfi til sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu fyrir Lyklafellslínu, háspennulínu sem reisa á yfir vatnsverndarsvæði höfuðborgarsvæðisins. Samtals er um að ræða 150 km af nýjum loftlínum sem liggja að mestu um hraun.
Samningur Hafnarfjarðarbæjar og Landsnets árið 2015, um niðurrif Hamraneslína í Hafnarfirði, varð til að setja þessa nýju línu á framkvæmdaráætlun. Ekki er fyrirséð að þörf sé á Lyklafellslínu, einungis tilfærslu á Hamraneslínum eða lagningu þeirra í jörð á um 3 km kafla.
Samkvæmt lögum bar í matsskýrslu framkvæmdarinnar, þá nefnd Suðvesturlínur, að skoða aðra mögulega valkosti og bera saman umhverfisáhrif þeirra auk þess að rökstyðja val framkvæmdaraðila að teknu tilliti til umhverfisáhrifa. Í matsskýrslu Suðvesturlína varð á þessu misbrestur og engir aðrir valkostir, hvorki tilfærsla á Hamraneslínum, önnur lega Lyklafellslínu né jarðstrengir skoðaðir. Einungis lagning háspennulínu yfir vatnsverndarsvæðin.
Samkvæmt 2.mgr. 14.gr. skipulagslaga skal sveitarstjórn við umfjöllun um umsókn um framkvæmdaleyfi vegna matsskyldrar framkvæmdar kynna sér matsskýrslu framkvæmdaraðila um framkvæmdina og kanna hvort framkvæmdin sé sú sem lýst er í matsskýrslu. Þá skal sveitarstjórn taka rökstudda afstöðu til álits Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar.
Þegar er fallin Hæstaréttardómur um að framkvæmdarleyfi verði ekki byggt á matsskýrslu og álit Skipulagsstofnunar um Suðvesturlínur. Hæstiréttur gerir athugasemd við þá aðferðarfræði umhverfismats sem fól í sér almennan samanburð á loftlínum og jarðstrengjum.
Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands og Hraunavinir kærðu í ágúst s.l. leyfisveitingu Hafnarfjarðar og Mosfellsbæjar með vísan til 52. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 og 3. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Kærendur krefjast þess að fellt verði úr gildi framkvæmdaleyfi Landsnets vegna Suðvesturlína/Lyklafellslínu. Að mati kærenda eru ekki uppfyllt skilyrði til að veita hið kærða framkvæmdaleyfi.
Að framsögðu má ljóst vera að verulegur vafi leikur á að hægt sé að rökstyðja veitingu framkvæmdaleyfis byggðu á þeirri matsskýrslu sem nú liggur fyrir frá Landsneti og Skipulagsstofnun.
Almar Guðmundsson, ræddi 7. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um framkvæmdaleyfi fyrir Lyklafellslínu.
Guðrún Herbertsdóttir, ræddi að nýju 7. tl.
Gunnar Einarson, bæjarstjóri ræddi 7. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um framkvæmdaleyfi fyrir Lyklafellslínu.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi að nýju 7. tl.
María Grétarsdóttir, ræddi að nýju 7. tl.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 7. tl.
Steinþór Einarson, ræddi 7. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um framkvæmdaleyfi fyrir Lyklafellslínu.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi að nýju 7. tl.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 7. tl. afgreiðslu skipulagsnefndar um framkvæmdaleyfi fyrir Lyklafellslínu.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi að nýju 7. tl.
Afgreiðsla mála.
Bæjarstjórn samþykkir að fresta afgreiðslu á tillögu um að veita framkvæmdaleyfi fyrir Lyklafellslínu til næsta fundar.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögu bæjarfulltrúa MG og GEH til bæjarráðs.
Fundargerðin sem er 14 tl., er samþykkt samhljóða.