10. fundur
10. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
14.09.2017
Kl. 08:00 - 10:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
- Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1702066
01
Borgarlína. Breyting á Svæðisskipulagi Höfuðborgarsvæðisins 2040.
Lögð fram tillaga að breytingu svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins "Höfuðborgarsvæðið 2040" sem svæðisskipulagsnefnd hefur lagt til að verði auglýst.
Eftirfarandi kemur fram í erindi frá svæðisskipulagsstjóra:
"Á grunni samkomulags sveitarfélaga um undirbúning að innleiðingu hágæða almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu dags. 2. desember 2016 hefur verið unnin tillaga að breytingu á svæðisskipulaginu Höfuðborgarsvæðið 2040 vegna Borgarlínu.
Vinnslutillögur svæðis- og aðalskipulags voru kynntar frá 29. maí til og með 21. júní 2017. Alls bárust athugasemdir og/eða ábendingar frá 33 aðilum og þar af 12 lögbundnum umsagnaraðilum. Tillaga að breytingu á svæðisskipulagi hefur tekið nokkrum breytingum frá forkynningu. Tillagan byggir á greiningarvinnu COWI eins og hún birtist í lokaskýrslu dags. september 2017.
Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins fjallaði um lokaskýrslu COWI og tillögu að breytingu á svæðisskipulaginu sínum þann 8. september 2017. Eftirfarandi var bókað:
Með tilvísan í 3. mgr. 23. gr. skipulagslaga samþykkir svæðisskipulagsnefnd að leggja til við aðildarsveitarfélögin að samþykkja að auglýsa tillöguna eftir athugun Skipulagsstofnunar.
Eins og fram kemur í samkomulagi sveitarfélaganna þá er ætlunin að ljúka skipulagsvinnu á árinu 2017."
Á fundinum gerði Hrafnkell Proppé svæðisskipulagsstjóri grein fyrir breytingartillögunni og ferli hennar fram til þessa.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að heimila auglýsingu breytingartillögunnar í samræmi við 3.mgr. 23.gr.Skipulagslaga nr.1123/2010 eins og svæðisskipulagsnefnd leggur til.
Málsnúmer 1302243
02
Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.
Lögð fram drög skipulagsstjóra að svörum við athugasemdum og umsögnum. Skipulagsstjóri gerði grein fyrir hverju svari fyrir sig. Drögunum vísað til frekari skoðunar nefndarmanna og tækni-og umhverfissviðs.
Málsnúmer 1510027
03
Samkeppni um rammaskipulag Lyngássvæðis og Hafnarfjarðarvegar
Lögð fram tillaga að rammaskipulagi Lyngássvæðis og svæðis við Hafnarfjarðarveg sem unnin hefur verið af höfunum vinningstillögu samkeppninnar sem fram fór á síðasta ári.
Tillögunni vísað til skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði.
Málsnúmer 1504148
04
Lundir, endurunnið deiliskipulag.
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Lundahverfis í kjölfar forkynningar. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.
Málsnúmer 1709140
05
Viðbygging við Hákotsvör 8, Álftanesi
Lögð fram fyrirspurn um viðbyggingu við íbúðarhúsið að Hákotsvör 8. Viðbygging samkvæmt tillögu er um 40 fermetrar að grunnfleti og yrði norðan við húsið. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu. Norðurmörk viðbyggingar yrðu í flútti við norðurmörk hússins að Hákostvör 10. Samþykki eigenda Hákotsvarar 10 og 6 liggur fyrir.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísi umsókn um byggingarleyfi sem byggir á framlagðri tillögu til grenndarkynninar í samræmi við 1.mgr.44.gr. Skipulags og byggingarlaga. Grenndarkynna skal eigendum Hákotsvarar 5, 6, 7, 9 og 10 sem og Gesthúsa.
Málsnúmer 1707200
06
Steinás 3 - Umsókn um byggingarleyfi
Breyting á bílskúr og horn viðbyggingar fer út fyrir byggingarreit
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem gerir ráð fyrir því að bílageymslu sé breytt í almenna geymslu og íbúðarherbergi. Samkvæmt tillögu skýst eitt horn byggingar að auki lítillega út fyrir byggingarreit.
Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega deiliskipulagsbreytingu í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skap eigendum og íbúum Steináss 1, 2, 4, 5 og 6 sem og Urðaráss 2, 4 og 6.
Málsnúmer 1702279
07
Brekkubyggð 28 - Umsókn um DSK breytingu
Lögð fram tillaga að byggingarleyfisumsókn um bílageymslu við endaraðhús að Brekkubyggð 28 að lokinni grenndarkynningu. Athugasemdir hafa borist. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Málsnúmer 1709142
08
Kauptún 1, skilti Hyundai
Lögð fram fyrirspurn BL ehf um skilti innan lóðar að Kauptúní 1. Fyrirspurn vísað til umsagnar rekstrarfélagsins.
Málsnúmer 1706139
09
Haukanes 24 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn sem er í grenndarkynningu. Óskað var eftir frekari gögnum vegna tillögunnar og frestur verður framlengdur. Vísað til frekar skoðunar hja tækni og umhverfissviði.
Málsnúmer 1706267
10
Keldugata 2 - fyrirspurn vegna fjölgun á íbúðum
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem gerir ráð fyrir því að fjölbýlishús ofan götu í Keldugötu fækki úr 5 í 3 en íbúðum fjölgi alls um 6.
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir samráðsfundum með íbúum og eigendum lóða og húsa neðan við götuna. Niðurstaða þeirra funda var sú að ekki sé sátt um tillöguna. Tillögunni því hafnað.
Málsnúmer 1707038
11
Urriðaholtsstræti 32 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókna sem víkur að lítillega frá ákvæðum deiliskipulags hvað varðar uppbrot úthliða. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis sé vikið frá skipulagsskilmálum þar sem um lítið frávik er að ræða og yfirbragð byggingar samræmist vel markmiðum deiliskipulagsins.
Málsnúmer 1709181
12
Víkurgata, einbýlishúsagerðir, dsk breyting
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Vesturhluta sem nær til einbýlishúsa við Víkurgötu. Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum: Grunnflötur byggingarreits án bílgeymslu í húsagerði E3 stækkar úr 100 m2 í 120 m2. Hæðarfjöldi breytist í "2 hæðir" úr "2-3 hæðir" í húsagerð E3. Hámarkshæð lækkar um 3 metra. Húsagerð á lóðum Víkurgötu 19 og 21 breytist úr húsagerði E1b í E1a. Viðmiðunarbyggingarmagn minnkar. Ákvæði um að heimilt sé að fylgja skilmálum fyrir húsagerði 11b á lóðum með húsagerði E1a er felld út gildi. Kennisnið E1a, E1c og E4 eru óbreytt.
Skipulagsnefnd vísar tilllögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr. 43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Málsnúmer 1702383
13
Mosagata 2-Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem nær til lóðarinnar Mosagata 2. Tillagan gerir ráð fyrir breytingu á ákvæðum um þakhalla. Skipulagsnefnd vísar málinu til úrlausnar skipulagsstjóra með vísan í viðauka II við samþykkt um stjorn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1708451
14
Mikilvæg fuglasvæði á Íslandi - Fjölrit Náttúrufræðistofnunar
Lagt fram fjölrit Náttúrufræðistofnunar um mikilvæg fuglasvæði á Íslandi.
Málsnúmer 1701306
15
Aðalskipulag Kópavogs. Nónhæð breyting.
Lögð fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi Kópavogsbæjar sem nær til svæðis á Nónhæð við bæjarmörk á Arnarnesholti. Vísað til frekar skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.