Urriðaholtsstræti 32 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
42. (1808). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gerð ehf., kt. 530116-0180 leyfi til að byggja fjölbýlishús með 12 íbúðum að Urriðaholtsstræti 32.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
14. (816). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að vikið sé frá skilmálum er varða uppbrot úthliða við fjölbýlishúsið við Urriðaholtsstræti 32. Um er að ræða óverulegt frávik sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
04
35. (1801). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að vikið sé frá skilmálum er varða uppbrot úthliða við Urriðaholtsstræti 32. Um er að ræða óverulegt frávik sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
10. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókna sem víkur að lítillega frá ákvæðum deiliskipulags hvað varðar uppbrot úthliða. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis sé vikið frá skipulagsskilmálum þar sem um lítið frávik er að ræða og yfirbragð byggingar samræmist vel markmiðum deiliskipulagsins.