Beint í efni

Keldugata 2 - fyrirspurn vegna fjölgun á íbúðum

Málsnúmer 1706267

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

14. (816). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

14. (816). fundur

Bæjarstjórn samþykkir með níu atkvæðum tillögu skipulagnefndar um að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturluta Urriðaholts þar sem lagt er til fjölgun íbúða í fjölbýlishúsum við Keldugötu.
Guðrún Elín Herbertsdóttir og María Grétarsdóttir sitja hjá.

Bæjarráð Garðabæjar

03

35. (1801). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagnefndar um að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturluta Urriðaholts þar sem lagt er til fjölgun íbúða í fjölbýlishúsum við Keldugötu.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

10. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem gerir ráð fyrir því að fjölbýlishús ofan götu í Keldugötu fækki úr 5 í 3 en íbúðum fjölgi alls um 6.
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir samráðsfundum með íbúum og eigendum lóða og húsa neðan við götuna. Niðurstaða þeirra funda var sú að ekki sé sátt um tillöguna. Tillögunni því hafnað.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

8. fundur

Lögð fram tillaga um fjölgun íbúða um 2 á lóðinni.Skipulagsnefnd leggur áherslu á að ekki sé slakað á kröfum um fjölda bílastæða á íbúð í samræmi við þær breytingar sem gerðar hafa verið í Urriðaholti á undanförnum árum. Leggja skal fram tillögu að deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúðar um eina og verði hún hluti að tillögu að deiliskipulagsbreytingu sem nær til allra lóða ofan götu í Keldugötu.