Beint í efni

8. fundur

04.07.2017
Skipulagsnefnd Garðabæjar

8. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg

04.07.2017

Kl. 09:00 - 11:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson - formaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
  • Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
  • Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1302243

01

Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.

Tillaga að Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 lögð fram að lokinni auglýsingu sem stóð frá 8.maí til 19.júní sl. Alls bárust 54 erindi með athugasemdum og þau lögð fram. Ennfremur lagðar fram þær umsagnir sem borist hafa en ennþá vantar nokkrar umsagnir sem kallað hefur verið eftir með ítrekun.

Innsendum athugasemdum og umsögnum vísað til aðalskipulagsráðgjafa til úrvinnslu.

Málsnúmer 1510027

02

Samkeppni um rammaskipulag Lyngássvæðis og Hafnarfjarðarvegar

Lögð fram tillaga að rammaskipulagi Lyngássvæðis og Hafnarfjarðarvegar sem byggir á vinningstillögu samkeppninnar sem fram fór á síðasta ári. Sigurður Einarsson og Jóhanna Helgadóttir hjá Batteríinu, Gísli Rafn Guðmundsson hjá Landslagi og Ólöf Kristjánsdóttir hjá Mannviti gerðu grein fyrir tillögunni. Ennfremur gerði Ólöf grein fyrir skoðun á útfærslu Hafnarfjarðarvegar í stokki og frumathugun kostnaðar. Tillögunni vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði. Skipulagsnefnd óskar eftir umsögn aðalskipulagsráðgjafa um það hvort að rammaskipulagstillagan kalli á breytingar á aðalskipulagtillögu þeirri sem auglýst hefur verið og þeirri breytingartillögu aðalskipulags vegna borgarlínu sem hefur verið í forkynningu.

Málsnúmer 1609138

03

Samkeppni um Miðsvæði á Álftanesi

Formaður skipulagsnefndar gerði grein fyrir niðurstöðu samkeppni um miðsvæði Álftaness. Höfundar vinningstillögu voru Andersen & Sigurdsson Arkitekter í Kaupmannahöfn. Fljótlega verður hafist handa við deiliskipulagsgerð sem byggir á vinningstillögunni og verður það í verkahring skipulagsnefndar að móta þá tillögu í samvinnu við höfun verðlaunatillögunnar.

Málsnúmer 1609380

04

Suðurhraun 1 og 3 - breyting á deiliskipulagi Molduhrauns

.

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Molduhrauns ásamt greinargerð lóðarhafa um bílastæðaþörf. Sigurður Einarsson arkitekt hjá Batteríinu gerði grein fyrir tillögunni og meðfylgjandi greinargerð.

Tillagan gerir ráð fyrir því að grunnflötur húss getur orðið allt að 60 % af stærð lóðar í stað 40 % og að nýtingarhlutfall geti orðið allt að 1 í stað 0,6. Ennfremur er gert ráð fyrir breytingu á grein 2.3. í skilmálum þannig að hægt sé að veita byggingarleyfi fyrir færri bílastæðum á lóð en skilmálar miða við ef sýnt sé fram á hvernig bregðast megi við ef aðstæður breytast sem kalla á fleiri stæði. (t.d. með bílastæðahúsi innan byggingarreits)

Skipulagsnefnd vísar tillögunni í auglýsingu í samræmi við 1.mgr.41.gr. Skipulagslaga nr.123/2010.

Málsnúmer 1706326

05

Miðbær-Svæði IV (Hörgatún 2)

Lögð fram tillaga að verkefnislýsingu deiliskipulagsbreytingar lóðarinnar Hörgatún 2 sem mun fá heitið Miðbær-Svæði IV. Lóðarhafi hefur látið vinna tillöguna. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1706330

06

Hlið, deiliskipulagsbreyting 2017

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hliðs. Tillagan gerir ráð fyrir því að byggingarreitur c færist til norðurs og verður við vestan við núverandi íbúðarhús. Umsögn Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings lögð fram. Ljóst að ráðast verður í fornleifaskoðun áður en framkvæmdir hefjast hvort sem byggingarreitur verður á núverandi stað eða þar sem tillagan gerir ráð fyrir að hann verði. Tillögunni vísað til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.41.gr. Skipulagslaga nr.123/2010. Afla skal umsagnar Minjastofnunar og Umhverfisstofnunar á auglýsingartíma.

Málsnúmer 1704152

07

Ránargrund 4 - Dsk br og umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem gerir ráð fyrir aukningu byggingarmagns lóðar fyrir veitingastað að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir hafa borist og skoðast tillagan því samþykkt.

Málsnúmer 1706139

08

Haukanes 24 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram byggingarleyfisumsókn af nýju einbýlishúsi að Haukanesi 24 sem reisa skal í stað þess sem fyrir er. Tillögunni vísað til grenndarkynningar þar sem að ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir Arnarnes. Grenndarkynna skal eigendum Haukaness 21, 22,23,25,26 og 28.

Málsnúmer 1706130

09

Mávanes 21 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram byggingarleyfisumsókna vegna breytinga við Mávanes 21. Gert er ráð fyrir niðurgrafinni viðbyggingu á vesturhluta byggingarreits í framhaldi af núverandi byggingu. Grunnflötur um 135 fermetrara. Viðbygging er í samræmi við deiliskipulag Arnarness sem samþykkt var árið 2014 en hefur verið fellt úr gildi. Þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir Arnarnes er tillögnni vísað til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 . Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Mávaness nr. 19, 20, 22, 23, 24 og 25.

Málsnúmer 1706137

10

Hvannarlundur 4 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram fyrirspurn þar sem spurt er hvort hægt væri að reisa 54 fermetra viðbyggingu innan byggingarreits. Skipulagsnefnd svarar því jákvætt og vísar erindi sem tillögu að byggingarleyfisumsókn til grenndarkynningar þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu. Grenndasrkynna skal eigendum Hvannalundar nr. 1, 2, 3, 5 og 6. og Víðilundar 1,3 og 5.

Málsnúmer 1610150

11

Hvannalundur 17 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram fyrirspurn þar sem spurt er hvort hægt væri að reisa 28 fermetra viðbyggingu sem nær 4 m út fyrir byggingarreit mæliblaðs í átt að Vífilsstaðavegi. Skipulagsnefnd svarar því jákvætt og vísar erindi sem tillögu að byggingarleyfisumsókn til grenndarkynningar þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu. Grenndasrkynna skal eigendum Hvannalundar nr. 11, 12, 13, 15, 17 og 19 og Víðilundar 11.

Málsnúmer 1706298

12

Aðalskipulag Reykjavíkur, Stekkjarbakki

Lögð fram verkefnislýsing að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur sem gerir ráð fyrir því að gera ekki lengur ráð fyrir breytingu á legu Stekkjarbakka til norðurs. Skipulagsnefnd gerir engar athugasemdir við verkefnislýsinguna.

Málsnúmer 1706280

13

Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, Kópavogsgöng

Lögð fram verkefnislýsing að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur sem gerir ráð fyrir því að gera ekki lengur ráð fyrir Kópavogsgöngum við bæjarmörk að Kópavogi í Fossvogsdal og við Suður-Mjódd . Skipulagsnefnd gerir engar athugasemdir við verkefnislýsinguna.

Málsnúmer 1706267

14

Keldugata 2 - fyrirspurn vegna fjölgun á íbúðum

Lögð fram tillaga um fjölgun íbúða um 2 á lóðinni.Skipulagsnefnd leggur áherslu á að ekki sé slakað á kröfum um fjölda bílastæða á íbúð í samræmi við þær breytingar sem gerðar hafa verið í Urriðaholti á undanförnum árum. Leggja skal fram tillögu að deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúðar um eina og verði hún hluti að tillögu að deiliskipulagsbreytingu sem nær til allra lóða ofan götu í Keldugötu.

Málsnúmer 1707019

15

Keldugata 4-6, 8-12. 14-18 og 20. Dsk breyting.

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa Keldugötu 4-6, 8-12, 14-19 og 20 þar sem óskað er eftir afstöðu skipulagsnefndar til hugmyndar um breytingar á ákvæðum lóðanna í deiliskipulagi. Hugmyndin er m.a. sett fram á þrívíddarteikningum. Hugmyndin gerir ráð fyrir því að lóðirnar nr. 14-19 og 4-6 verði felldar út en að á lóð nr. 20 verði gert ráð fyrir 9 íbúðum í stað 3ja og á lóð 8-12 verði gert ráð fyrir 7 íbúðum í stað 3ja. Það þýðir fjölgun um 5 íbúðir á þessum fjórum lóðum sem yrðu tvær samkvæmt hugmyndinni. Þannig yrði þá opið grænt svæði beggja vegna lóðarinnar nr. 8-12 þar sem gerðar yrðu göngutengingar á milli Holtsvegar og Keldugötu.

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir samráðsfundum með íbúum og eigendum húsa neðan götu þar sem hugmyndir um breytingar á þessum lóðum hafa verið kynntar. Skipulagsnefnd óskar eftir því að lögð verði fram ein tillaga sem sýnir umrædda hugmynd sem breytingu deiliskipulags og verði hugmynd um breytingu á lóð nr.2 hluti af henni.