Beint í efni

Ránargrund 4 - Umsókn um byggingarleyfi.

Málsnúmer 1704152

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

44. (1810). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Arnarnesvogi ehf., kt. 651116-1120 leyfi til að byggja veitingahús að Ránargrund 4.

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

5. fundur

Hús er skráð 676,7 m² skv skráningartöflu. Búið var að heimila stækkun á húsi upp í 654,4 m². Húsið er því 22,3 m² stærra en heimildir segja til um.
Með vísan í lið e. í 2.gr.Viðauka II við samþykkt nr.20/2017 heimilar skipulagsstjóri að við samþykkt byggingarleyfis sé vikið frá ákvæði um hámarkshæð húss í deiliskipulagi í samræmi við 3.mgr. 43.gr. Skipulagslaga þar sem að hér er um óverulegt frávik að ræða og hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.

Bæjarráð Garðabæjar

03

26. (1792). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðarinnar við Ránargrund 4 (veitingahús). Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Samþykkt breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

8. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem gerir ráð fyrir aukningu byggingarmagns lóðar fyrir veitingastað að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir hafa borist og skoðast tillagan því samþykkt.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

9. (811). fundur

Bæjarstjórn samþykkir með átta atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um að grenndarkynna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna aukins byggingarmagns á lóðinni við Ránargrund 4 samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Guðrún Elín Herbertsdóttir og Halldór Jörgensson sitja hjá við afgreiðslu málsins.

Bæjarráð Garðabæjar

06

18. (1784). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að grenndarkynna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna aukins byggingarmagns á lóðinni við Ránargrund 4 samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 44. gr. sömu laga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

6. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfivegna veitingarstaðar að Ránargrund. Birt flatarmál byggingarinnar er 645,4 m2 en deiliskipulag heimilar 500 m2. Opin rými (B-rými) eru 120,6 m2. Bygging er öll innan byggingarreits. Þegar að hámarkbyggingarmagn var ákvarðað lá til grundvallar lágmarksgreining á byggingarmagnsþörf fyrir veitingastað á þessum stað. Rekstraraðili hefur nú skilgreint þörfina til fullnustu og kemst að þeirri niðurstöðu að til þess að uppfylla skilyrði um fjölda salerna, rými í eldhúsi, starfsmannaaðstöðu og til að tryggja rekstrargrundvöllinn sé nauðsynlegt að fara fram á þessa aukningu.
Skipulagsnefnd samþykkir breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Ása og Grunda þar sem gert er ráð fyrir að birt flatarmál byggingar stækki úr 500 í 645,4 m2 og vísar tillögunni til grenndarkynningar í samræmi við 2.mgr.43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Grenndarkynna skal íbúum að Ægisgrund, 7,9,11,13,15,17 og 19,Þórsmörk, Unnargrund 1,3,5,7 og 9, Ránargrund 1 og Sjálandsskóla.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

5. fundur

Heimild í skipulagi fyrir veitingahúsi er 500m².
Sótt er um 654,4m² sem er 154,4m² umfram skipulagsheimildir.

Frestað til næsta fundar.