5. fundur
5. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
27.04.2017
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Hallfríður Erla Guðjónsdóttir - varamaður
- Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
- Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
01
Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.
Lagðar fram tillögur að breytingum á tillögu að aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 í kjölfar athugasemda og ábendinga Skipulagsstofnunar.
Aðalskipulagsráðgjafar; Árni Ólafsson Teiknistofu arkitekta, Óskar Örn Gunnarsson Landmótun og Ólafur Árnason Eflu, gerðu grein fyrir breytingartillögum.
Breytingarnar eru settar fram í skjali þar sem fram kemur hvers eðlis þær eru og eru leiðréttingarnar tæplega sextíu talsins. Engin þeirra telst þó þess eðlis að um stefnubreytingu sé að ræða á megininntaki tillögunnar.
Í kjölfar umræðu á fundinum og ábendinga Urriðaholts ehf leggur skipulagsnefnd til að sú breyting verði gerð á tillögunni að tenging tengibrautarinnar Urriðaholtsstrætis við Elliðavatnsveg færist upp á háholtið og sett verði nánari ákvæði um byggð á landnotkunarreit norðan Urriðaholtsstrætis.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan ásamt ofangreindum breytingum verði auglýst í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga. Halda skal almennan kynningarfund á meðan á auglýsingartíma stendur.
Umfjöllun Skipulagsstofnunar liggur fyrir og hefur tillaga verið lagfærð samkvæmt ábendingum stofnunarinnar.
02
Skipulag lóðar við Grænagarð
Lögð fram ósk erfingja Sigurðar Þorkelssonar um breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis sem gerir ráð fyrir því að við Grænagarð verði gert ráð fyrir tveimur byggingarreitum fyrir íbúðarhús eins og á býlum í Garðahverfi.
Svar: Við skipulagsgerð Garðahverfis var ákveðið að fella Grænagarð inn í skipulagssvæðið til þess að vernda skógræktina sem framtíðar útivistarsvæði og grænan reit sem tengi saman Garðahverfið og fyrirhugaða íbúðarbyggð í Garðaholti. Grænigarður er ekki eitt af hinum fornu lögbýlum í Garðahverfi en eitt af meginmarkmiðum deiliskipulagsins er að varðveita hið forna búsetulandslag og byggðamynstur sem einkennir Garðahverfið. Ákvæði um Grænagarð miða að því að viðhalda skóginum til sem þar hefur verið ræktaður til almenningsnota og frekari íbúðarbyggingar þar eru ekki líklegar til þess að styðja við það markmið.
03
Súlunes 10 - Viðbygging neðan jarðar
Lögð fram byggingaleyfisumsókn að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir hafa verið gerðar við byggingarleyfisumsóknina.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt.
04
Sunnuflöt 22 - Umsókn um deiliskipulagsbreytingu
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Flata að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir hafa verið gerðar tillöguna.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata.
05
Brekkubyggð 28 - Umsókn um DSK breytingu
Skipulagsnefnd óskar eftir því að samþykki eigenda allra íbúa í raðhúslengjunni liggi fyrir áður en hægt verður að taka afstöðu til hugmyndarinnar.
06
Akrabraut 1, breyting á deiliskipulagi Akra.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Akra að lokinni kynningu. Athugasemdabréf hefur borist og það lagt fram. Vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.
07
Lynghólar 32-38 - Umsókn um deiliskipulagsbreytingu
Lögð fram tillaga að breytingu Hraunsholts eystra að lokinni kynningu sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða í Lynghólum 32-38 um fjórar og að húsin verði tvíbýlihús í stað raðhúsa.
Lagt fram erindi með athugasemdum.
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
08
Aðalskipulag Hafnarfjarðar, breyting vegna þjóðlendu í Leiðarenda
Lagt fram. Skipulagsnefnd telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir vegna málsins.
09
Breyting á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030. Elliðaárdalur - Nýr hjólastígur, drög til kynningar.
Skipulagsnefnd gerir engar athugasemdir við tillöguna.
10
Ránargrund 4 - Umsókn um byggingarleyfi
Heimild í skipulagi fyrir veitingahúsi er 500m².
Sótt er um 654,4m² sem er 154,4m² umfram skipulagsheimildir.
Frestað til næsta fundar.
11
Suðurhraun 1 og 3 - breyting á deiliskipulagi Molduhrauns
Málinu frestað til næsta fundar.
12
Deiliskipulag áfanga 1-4 í austurhluta Urriðaholts
Tilögur kynntar. Frestað til næsta fundar.