Beint í efni

Urriðaholt - deiliskipulag 1. áfanga austurhluta Urriðaholts

Málsnúmer 1703045

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

11. (833). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

11. (833). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir austurhluta Urriðaholts, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst og bárust athugasemdir og liggja fyrir svör við athugasemdum. Á tillögunni hafa verið gerðar eftirfarandi breytingar. Stígur við heimreið golfskála Odds verður færður austan við heimreið. Byggingarreitir og útfærsla bifreiðageymslna að Holtsvegi 53, 55 og 57 breytast.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.

Bæjarráð Garðabæjar

03

31. (1846). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir austurhluta Urriðholts, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst og bárust athugasemdir og liggja fyrir svör við athugasemdum. Á tillögunni hafa verið gerðar eftirfarandi breytingar. Stígur við heimreið golfskála Odds verður færuð austan við heimreið. Byggingarreitir og útfærsla bifreiðageymslna að Holtsvegi 53, 55 og 57 breytast.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

10. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Austurhluta Urriðaholts að lokinni auglýsingu sem fór fram 23.maí til 4.júlí. 3 erindi með athugasemdum hafa borist.
Lögð fram greinargerð deiliskipulagshöfunda með tillögum að svörum við athugasemdum. Hrafnhildur Brynjólfsdóttir skipulagsfræðingur hjá Alta gerði grein fyrir greinargerðinni.
Lögð fram athugasemd Urriðaholts ehf þar sem lagðar eru til breytingar á skipulagi lóðanna Holtsvegur 53 til 57. Skipulagsnefnd telur að þær breytingartillögur séu til bóta fyrir skipulag lóðanna.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem deiliskipulag Austurhluta Urriðaholts í samræmi við 41.grein skipulagslaga nr.123/2010 með eftirfarandi breytingum:
-Stígur við heimreið að golfskála verði austan heimreiðar.
-Byggingarreitir og útfærsla bifreiðageymslna að Holtsvegi 53, 55 og 57 breytast skv. tillögu Urriðaholts ehf.
Skipulagsnefnd samþykkir svör til þeirra sem gera athugasemdir sem fram eru sett í framlagðri greinargerð.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

8. (830). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts.

Bæjarráð Garðabæjar

06

16. (1831). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

7. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Urriðaholts Austurhluta að lokinn forkynningu. Kynningarfundur var haldinn í Urriðaholtsskóla þann 3.apríl sem var vel sóttur. 10 erindi bárust með ábendingum sem deiliskipulagsráðgjafar hafa unnið úr. Helstu ábengingar sneru að umferð um Hraungötu og Kinnargötu, útfærslu á tengingu Holtsvegar við Flóttamannaveg og um öryggi vegfarenda og umferðarmerkingar.
Lagt fram erindi frá Urriðaholti ehf þar sem lagt er til með hvaða hætti megi bregðast við ábendingum. Lagt fram minnisblað frá Viaplan dags 25.4.2018 um umferð um Kinnargötu og Hraungötu.
Skipulagsnefnd fellst á þær breytingar sem deiliskipuagsráðgjafar og Urriðaholt ehf leggja til. Ráðgjafar mæla ekki með því að Kinnargata og Hraungata verði gerðar að botnlangagötum enda byggir meginhugmynd gatnakerfisins í Urriðaholt á dreifingu umferðar. Þó er ekki gert ráð fyrir að opna gegnumstreymisumferð um Kinnargötu og Hraungötu fyrr en uppbyggingu er lokið í Austurhluta. Auk þess hafa ýmsar minniháttar breytingar verið gerðar frá forkynntri tillögu í kjölfar nánari skoðunar og úrvinnslu. Lagt er til að almenningsgarðurinn verði nefndur Miðgarður.
Tillagan gerir ráð fyrir íbúðarbyggð í góðu samræmi við rammaskipulag Urriðaholts. Gert verður ráð fyrir 493 íbúðareiningum í blandaðri byggð húsgerða sem skiptast í 398 einingar í fjölbýli, 66 einingar í raðhúsum, 22 einingar í parhúsum og 7 í einbýlishúsum.
Skipulagsnefnd vísar deiliskipulagstillögunni til auglýsingar samkvæmt 1.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar

08

5. (827). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að tillaga að deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts verði kynnt samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Halda skal almennan kynningarfund þar sem tillagan verður kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum.

Bæjarráð Garðabæjar

09

10. (1825). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að tillaga að deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts verði kynnt samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Halda skal almennan kynningarfund þar sem tillagan verður kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

5. fundur

Skipulagsráðgjafar og fulltrúi Urriðaholts ehf kynntu tillögu að deiliskipulagi Austurhluta Urriðaholts 1.-4.áfanga. Eftirfarandi mættu til fundarins: Jón Pálmi Guðmundsson Urriðaholti ehf, Þráinn Hauksson Landslagi ehf, Hrafnhildur Brynjólfsdóttir Alta ehf og Egill Guðmundsson Arkís ehf.
Tillagan gerir ráð fyrir íbúðarbyggð í góðu samræmi við rammaskipulag Urriðaholts. Gert verður ráð fyrir 495 íbúðareiningum sem skiptast í 416 einingar í fjölbýli, 50 einingar í raðhúsum, 22 einingar í parhúsum og 7 í einbýlishúsum.

Þegar Austurhluti er talinn með þá verða íbúðir í Urriðaholti orðnar 1579 og eru þá íbúðarsvæði fullbyggð. Þó getur verið að eitthvað að íbúðum verði inni á athafnasvæðinu norðan Urriðaholtsstrætis en það svæði hefur ekki verið deiliskipulagt.

Skipulagsnefnd vísar tillögu til forkynningar í samræmi við 3.mgr. 40.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 . Halda skal almennan kynningarfund á meðan forkynningu stendur.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

11

14. fundur

Framkvæmdastjóri Urriðaholts, Jón Pálmi Guðmundsson ásamt deiliskipulagsráðgjöfunum Hrafnhildi Brynjólfsdóttur, Agli Guðmundssyni og Þráni Haukssyni kynntu drög að deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts.
Vísað til áframhaldandi úrvinnslu.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

12

9. fundur

Lögð fram verkefnislýsing deiliskipulags austurhluta Urriðaholts að lokiinni kynningu. Umsagnir hafa borist frá Skipulagsstofnun, Minjastofnun og Vegagerðinni. Umsögnum vísað til úrvinnslu hjá deiliskipulagsráðgjafa og tækni og umhverfissviði.

Bæjarstjórn Garðabæjar

13

11. (813). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um gerð lýsingar vegna nýs deiliskipulags fyrir 1.-4. hluta Urriðaholts, sbr. 1. mgr. 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Lýsingin skal kynnt fyrir almenningi og send hagsmunaaðilum og Skipulagsstofnun til umsagnar.

Bæjarráð Garðabæjar

14

22. (1788). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja gerð lýsingar vegna nýs deiliskipulags fyrir 1.-4. hluta Urriðaholts, sbr. 1. mgr. 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Lýsingin skal kynnt fyrir almenningi og send hagsmunaaðilum og Skipulagsstofnun til umsagnar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

15

7. fundur

Lögð fram skipulagslýsing sem unnin hefur verið af Alta ehf, Arkís ehf og Landlags ehf að beiðni landeiganda Urriðaholts dags. 27.apríl 2017.
Fyrirhugað er að vinna deiliskipulag af austurhluta Urriðaholts og er svæðið um 21,5 ha að stærð. Markmiðið er að deiliskipuleggja svæðið fyrir íbúðarbyggð með 450-550 íbúðareiningum í samræmi við aðal-og rammaskipulag. Byggðin verði þéttust og hæst næst háholtinu en lágreistari sem nær dregur vatninu. Gert verður ráð fyrir almenningsgarði með íþróttaaðstöðu.
Skipulagsnefnd samþykkir lýsinguna og felur skipulagsstjóra að auglýsa hana og kynna hana fyrir umsagnaraðilum. Senda skal lýsinguna til athugunar hjá Skipulagsstofnun.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

16

5. fundur

Tilögur kynntar. Frestað til næsta fundar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

17

3. fundur

Erindinu vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.

Bæjarráð Garðabæjar

18

9. (1775). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Fylgiskjöl