11. (833). fundur
11. (833). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
06.09.2018
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - forseti bæjarstjórnar
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Guðfinnur Sigurvinsson - varamaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - aðalmaður
- Stella Stefánsdóttir - varamaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Fundurinn er hljóðritaður.
Gunnar Valur Gíslason, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 16. ágúst 2018 er lögð fram.
Dagskrá
Málsnúmer 1808019F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 21/8 ´18.
Björg Fenger, ræddi 4. tl., bréf íþróttafulltrúa um opnunartíma sundlaugar Garðabæjar.
Afgreiðsla mála:
Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018, samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Urriðaholtsskóli kr. 500.000.000
Fjölnota salur kr. 150.000.000
Ásgarður - nýtt parketgólf kr. 60.000.000
Fjölnota íþróttahús (lækkun) kr. -270.000.000
Útilífsmiðstöð skáta (lækkun) kr. -20.000.000
Endurbætur sundlaugar í Ásgarði kr. 170.000.000
Álftanesskóli - viðbygging kr. 60.000.000
Samtals - hækkun kr. 750.000.000
Tekin ný langtímalán kr. 750.000.000
Fundargerðin sem er 9 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1808026F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 28/8 ´18.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 9. tl., bréf lögmanns f.h. umbj. varðandi kröfu um miskabætur vegna frávísunar úr skóla.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi sama mál.
Ingvar Arnarson, ræddi 5. tl., bréf Brynju Hússjóðs ÖBÍ varðandi umsókn um stofnframlag og 8. tl. bréf lögmanns f.h. umbj. varðandi sölu á húsnæði við Njarðargrund 2
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi sömu mál.
Fundargerðin sem er 9 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1808035F
03
Fundargerð bæjarráðs frá 4/9 ´18
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., líkamsárásir - öryggi og eftirlit.
Stella Stefánsdóttir, ræddi 1. tl., líkamsárásir - öryggi og eftirlit.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., líkamsárásir - öryggi og eftirlit.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi að nýju 1. tl., líkamsárásir - öryggi og eftirlit.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., líkamsárásir - öryggi og eftirlit.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 15. tl., bréf mennta- og menningarmálaráðuneytis varðandi aðgerðir gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldishegðun í íþrótta- og æskulýðsfélögum.
Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., líkamsárásir - öryggi og eftirlit, 7. tl., afgreiðslu á erindi barnaverndarstofu um lóð fyrir meðferðarheimili 19. tl., bréf Umhverfisstofnunar um áætlanir og úrbætur í fráveitumálum.
Björg Fenger, ræddi 15. tl., bréf mennta- og menningarmálaráðuneytis varðandi aðgerðir gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldishegðun í íþrótta- og æskulýðsfélögum.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 19. tl., bréf Umhverfisstofnunar um áætlanir og úrbætur í fráveitumálum.
Fundargerðin sem er 21 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1807016F
04
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 17/8 ´18.
Björg Fenger, ræddi 11. tl., tillögu um systkina- og fjölgreinaafslátt. Björg sagði frá opnun nýs frisbígolfvallar.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 11. tl., tillögu um systkina- og fjölgreinaafslátt.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 11. tl., tillögu um systkina- og fjölgreinaafslátt og val iðkenda til að stunda fleiri íþróttagreinar. Jóna sagði frá nýjum hreystistöðvum sem settar hafa verið upp við gönguleiðir í bænum.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 11. tl., tillögu um systkina- og fjölgreinaafslátt.
Björg Fenger, ræddi 11. tl., tillögu um systkina- og fjölgreinaafslátt.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 11. tl., tillögu um systkina- og fjölgreinaafslátt.
Ingvar Arnarson, ræddi 11. tl., tillögu um systkina- og fjölgreinaafslátt.
Almar Guðmundsson, ræddi 11. tl., tillögu um systkina- og fjölgreinaafslátt.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 11. tl., tillögu um systkina- og fjölgreinaafslátt.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1808021F
05
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 24/8 ´18.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1808013F
06
Fundargerð skipulagsnefndar frá 30/8 ´18.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1808022F
07
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 29/8 ´18.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 3. tl., skólabyrjun og fjölda nemenda í grunnskólum skólaárið 2018-2019 og lagði fram eftirfarandi áskorun sem hún flytur ásamt Sigríði Huldu Jónsdóttur.
"Bæjarstjórn Garðabæjar skorar á mennta- og menningarmálaráðherra að beita sér fyrir því að farið verði strax í stækkun á húsnæði Fjölbrautaskólans í Garðabæ."
Greinargerð:
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ er með vinsælli framhaldsskólum landsins, vinsældir skólans má ekki síst rekja til öflugra list- og verknámsbrauta. Nauðsynlegt er að hlúa að verk- og listnámi til að tryggja fjölbreytt námsframboð á framhaldsskólastigi. Mjög þröngt er orðið um starfsemina í húsnæði skólans og því afar mikilvægt að tryggja fjármagn í viðbyggingu og koma þannig til móts við fjölda umsækjenda og til móts við fyrirheit ráðamanna um eflingu verk- og listnáms í landinu.
Staðið hefur til að stækka húsnæði skólans í meira en áratug, byggingarnefnd var skipuð árið 2007 sem starfaði fram í desember 2008. Á þessum árum hefur orðið mikil fólksfjölgun í sveitarfélaginu til viðbótar við sameiningu sveitarfélaganna Garðabæjar og Álftaness. Áframhaldandi uppbygging og fjölgun er fyrirhuguð í sveitarfélaginu.
Í haust bárust yfir 600 umsóknir í skólann í fyrsta og annað val. Það er því ljóst að mikil aðsókn er í skólann og færri komast að en vilja. Margir af þeim sem sóttu um skólavist í FG en fengu neitun um inngöngu eru ungmenni sem búsett eru í Garðabæ og vilja stunda nám í sinni heimabyggð. Garðabær hefur lagt mikla áherslu á að í sveitarfélaginu séu góðir skólar þar sem ríkir metnaður til að gera vel og að árangur sé góður.
Í sumar, nánar tiltekið 6. júní sl., sendu formaður og varaformaður skólanefndar FG, skólameistari ásamt bæjarstjóra Garðabæjar bréf til mennta- og menningarmálaráðherra þar sem bent var á brýna húsnæðisþörf skólans.
Garðabær skorar á mennta- og menningarmálaráðherra að tryggja fjármagn þannig að framkvæmdir við viðbyggingu skólans geti hafist sem fyrst.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi framkomna áskorun og lýsti yfir stuðningi við hana.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi, framkomna áskorun. Þá ræddi Sigríður Hulda 4. tl., ársskýrslur grunnskóla 2017-2018, 8. tl., menntadaginn 26. október og 9. tl., forvarnarvika haust 2018.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., starfshætti nefnda, 6. tl., tillögu um hinsegin fræðslu - heilsueflandi samfélag
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða áskorun til mennta- og menningarmálaráðherra.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1801390
08
Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 27/8 ´18.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1801175
09
Fundargerð stjórnar SSH frá 13/8 ´18.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1805157
10
Fundargerð stjórnar SHS frá 17/8 ´18.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1801362
11
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 17/8 ´18.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 3. tl., viðræður við SOS um urðunarstað. Þá ræddi Jóna verkefnið plastlaus september og flokkun plasts frá heimilum í Garðabæ.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1801146
12
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 17/8 ´18.
Björg Fenger, ræddi 2. tl., árshlutauppjör janúar-júní og 5. tl., greiðslukerfi.
Ingvar Arnarson, ræddi 5. tl., greiðslukerfi og 6. tl. vetnisverkefnið.
Björg Fenger, ræddi 6. tl. vetnisverkefnið og svaraði fyrirspurn.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., kosning formanns og varaformans, 2. tl., árshlutauppjör janúar - júní og 6. tl. vetnisverkefnið.
Ingvar Arnarson, ræddi að nýju 6. tl. vetnisverkefnið.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1802055
13
Fundargerð svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 17/8 ´18.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 3. tl., störf og verkefni svæðisskipulagsnefndar.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1809036
14
Tillaga Garðabæjarlistans um framsetningu forgangsröðunar stefnumála meirihluta.
Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
"Garðabæjarlistinn leggur fram tillögu þess efnis að meirihlutinn leggi fram áætlun um forgangsröðun stefnumála sinna fyrir hvert starfsár kjörtímabilsins."
Greinargerð:
Garðabæjarlistinn leggur áherslu á frekari samvinnu í bæjarstjórn. Einn liður í því er að leggja til að meirihlutinn leggi fram áætlun um forgangsröðun stefnumála sinna fyrir hvert starfsár kjörtímabilsins. Þannig má efla og treysta samstarf allra kjörinna fulltrúa en ekki síður gefa minnihluta meira svigrúm til þess að koma að þeim verkefnum sem fyrirhuguð eru og um leið nýta þá þekkingu og sýn sem fylgir því að fá fleiri að málum hverju sinni.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi framkomna tillögu og lagði til að henni verði vísað til bæjarráðs.
Bæjarstjórn vísar framkominni tillögu til bæjarráðs.
Málsnúmer 1809035
15
Tillaga Garðabæjarlistans um víðtækara samráð og samvinnu.
Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
"Garðabæjarlistinn leggur fram tillögu um aukið samráð og samvinnu meiri- og minnihluta í allri vinnu við fjárhagsáætlun bæjarins. Þannig að fulltrúar minnihlutans í bæjarstjórn sitji alla vinnufundi allt frá upphafi ferlisins til loka þar með talið fundi með sviðsstjórum."
Greinargerð:
Víðtækt samráð og samvinna eru þættir sem kallað er eftir í samfélaginu öllu.
Að unnið sé að því markvisst að fá fram ólík sjónarhorn og áherslur í vinnu sem við kemur öllum íbúum telur Garðabæjarlistinn afar góða skírskotun í slíkt ákall. En ekki síður að slík vinnubrögð séu afar farsæl leið til að skapa víðtækan samhljóm frá áætlunargerð kjörinna fulltrúa til stjórnsýslunnar þ.e. til þeirra sem leiða pólitískar áherslur til framkvæmda. Með því að hafa alla kjörna fulltrúa við borðið frá upphafi við vinnu eins og fjárhagsáætlunargerð sem snertir okkur öll þegar til framkvæmda kemur er frábært tækifæri til ennþá lýðræðislegri vinnubragða sem um leið ýtir enn frekar undir víðtæka sátt um þær áherslur sem liggja fyrir. Við erum öll kosin til þess að leiða Garðabæ áfram veginn. Slíkt skiptir máli þegar ráðstafa á fjármunum úr sameiginlegum sjóðum. Því hvetur Garðabæjarlistinn til þessarar nýbreytni í vinnulagi bæjarstjórnar í Garðabæ. Nútímalegri vinnubrögð þar sem ýtt er undir enn frekari sátt og forsendur til öflugs starfs í þágu allra íbúa í alvöru samvinnu allra kjörinna fulltrúa í bæjarstjórn.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi framkomna tillögu og lagði til að henni verði vísað til bæjarráðs.
Almar Guðmundsson, ræddi framkomna tillögu.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi framkomna tillögu.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi að nýju framkomna tillögu.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju framkomna tillögu.
Bæjarstjórn vísar framkominni tillögu til bæjarráðs.
Málsnúmer 1707051
16
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2018 - lántaka.
Gunnar Valur Gíslason kvaddi sér hljóðs og gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga.
"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 750.000.000, með lokagjalddaga þann 5. maí 2033, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitarstjórnin hefur kynnt sér.
Bæjarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Er lánið tekið til fjármögnunar á byggingu á grunnskóla í Urriðaholti sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er Guðjóni Erling Friðrikssyni, bæjarritara Garðabæjar kt. 291154-3529, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns."
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga.