Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 29/8 ´18.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
11. (833). fundur
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 3. tl., skólabyrjun og fjölda nemenda í grunnskólum skólaárið 2018-2019 og lagði fram eftirfarandi áskorun sem hún flytur ásamt Sigríði Huldu Jónsdóttur.
"Bæjarstjórn Garðabæjar skorar á mennta- og menningarmálaráðherra að beita sér fyrir því að farið verði strax í stækkun á húsnæði Fjölbrautaskólans í Garðabæ."
Greinargerð:
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ er með vinsælli framhaldsskólum landsins, vinsældir skólans má ekki síst rekja til öflugra list- og verknámsbrauta. Nauðsynlegt er að hlúa að verk- og listnámi til að tryggja fjölbreytt námsframboð á framhaldsskólastigi. Mjög þröngt er orðið um starfsemina í húsnæði skólans og því afar mikilvægt að tryggja fjármagn í viðbyggingu og koma þannig til móts við fjölda umsækjenda og til móts við fyrirheit ráðamanna um eflingu verk- og listnáms í landinu.
Staðið hefur til að stækka húsnæði skólans í meira en áratug, byggingarnefnd var skipuð árið 2007 sem starfaði fram í desember 2008. Á þessum árum hefur orðið mikil fólksfjölgun í sveitarfélaginu til viðbótar við sameiningu sveitarfélaganna Garðabæjar og Álftaness. Áframhaldandi uppbygging og fjölgun er fyrirhuguð í sveitarfélaginu.
Í haust bárust yfir 600 umsóknir í skólann í fyrsta og annað val. Það er því ljóst að mikil aðsókn er í skólann og færri komast að en vilja. Margir af þeim sem sóttu um skólavist í FG en fengu neitun um inngöngu eru ungmenni sem búsett eru í Garðabæ og vilja stunda nám í sinni heimabyggð. Garðabær hefur lagt mikla áherslu á að í sveitarfélaginu séu góðir skólar þar sem ríkir metnaður til að gera vel og að árangur sé góður.
Í sumar, nánar tiltekið 6. júní sl., sendu formaður og varaformaður skólanefndar FG, skólameistari ásamt bæjarstjóra Garðabæjar bréf til mennta- og menningarmálaráðherra þar sem bent var á brýna húsnæðisþörf skólans.
Garðabær skorar á mennta- og menningarmálaráðherra að tryggja fjármagn þannig að framkvæmdir við viðbyggingu skólans geti hafist sem fyrst.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi framkomna áskorun og lýsti yfir stuðningi við hana.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi, framkomna áskorun. Þá ræddi Sigríður Hulda 4. tl., ársskýrslur grunnskóla 2017-2018, 8. tl., menntadaginn 26. október og 9. tl., forvarnarvika haust 2018.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., starfshætti nefnda, 6. tl., tillögu um hinsegin fræðslu - heilsueflandi samfélag
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða áskorun til mennta- og menningarmálaráðherra.
Fundargerðin lögð fram.