Beint í efni

Tillaga um framsetningu forgangsröðunar stefnumála meirihluta

Málsnúmer 1809036

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

12. (834). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

02

32. (1847). fundur

Lögð fram og vísað til frekari umræðu samhliða vinnu við gerð og afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

11. (833). fundur

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.

"Garðabæjarlistinn leggur fram tillögu þess efnis að meirihlutinn leggi fram áætlun um forgangsröðun stefnumála sinna fyrir hvert starfsár kjörtímabilsins."

Greinargerð:
Garðabæjarlistinn leggur áherslu á frekari samvinnu í bæjarstjórn. Einn liður í því er að leggja til að meirihlutinn leggi fram áætlun um forgangsröðun stefnumála sinna fyrir hvert starfsár kjörtímabilsins. Þannig má efla og treysta samstarf allra kjörinna fulltrúa en ekki síður gefa minnihluta meira svigrúm til þess að koma að þeim verkefnum sem fyrirhuguð eru og um leið nýta þá þekkingu og sýn sem fylgir því að fá fleiri að málum hverju sinni.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi framkomna tillögu og lagði til að henni verði vísað til bæjarráðs.

Bæjarstjórn vísar framkominni tillögu til bæjarráðs.