32. (1847). fundur
32. (1847). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
11.09.2018
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1805336
01
Kinnargata 1 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Dverghúsum ehf., kt. 630418-1190 leyfi til að byggja einbýlishús að Kinnargötu 1.
Málsnúmer 1809066
02
Bréf Sorpu bs. varðandi árshlutareikning, janúar-júní 2018, dags. 31.08.18.
Málsnúmer 1808387
03
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga um innleiðingu í leikskólum vegna nýrra laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, dags. 24.08.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til úrvinnslu hjá fræðslu- og meningarsviði og persónufulltrúa.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1809083
04
Tilkynning frá forsætisráðuneytinu varðandi skýrslu starfshóps um eflingu trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu, dags. 05.09.18.
Málsnúmer 1809036
05
Tillaga Garðabæjarlistans um framsetningu forgangsröðunar stefnumála meirihluta.
Lögð fram og vísað til frekari umræðu samhliða vinnu við gerð og afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1809035
06
Tillaga Garðabæjarlistans um víðtækara samráð og samvinnu.
Lögð fram og vísað til frekari umræðu og skoðunar við framlagningu á vinnuferlum og forsendum fjárhagsáætlunar.
Ingvar Arnarson, lagði fram eftirfarandi bókun:
„Garðabæjarlistinn undirstrikar að mikilvægt sé að allir bæjarfulltrúar komi að gerð fjárhagsáætlunar alveg frá byrjun og til enda. Með þeim hætti er hægt að tryggja að sem flest sjónarmið komist til skila, það er nauðsynlegt þegar ákveða á ramma um vinnu næsta fjárhagsár. Samráð og samtal er lykilforsenda þess að hagsmunir allra séu undir. Íbúalýðræðið er einn liður í slíkri vinnu og tækifærin til að leggja fram athugasemdir liður í því en eru engu að síðu allt annars eðlis en sú vinna sem unnin er við fjárhagsáætlun frá fyrstu stigum.“
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1809094
07
Tilkynning frá stjórnarráðinu varðandi viljayfirlýsingu um aukið samstarf í þágu barna, dags. 07.09.18.
Lögð fram viljayfirlýsing þar sem félags- og jafnréttisráðherra, heilbrigðisráðherra, mennta- og menningarmálaráðherra, dómsmálaráðherra, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Samband íslenskra sveitarfélaga lýsa yfir vilja til að auka samstarf milli málefnasviða sem undir hvern og einn aðila heyra og snúa að velferð barna.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1809050
08
Kæra Hlyns Jónssonar á útgáfu byggingarleyfis fyrir byggingu einbýlishúss á lóðinni við Brúnás 12.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
Málsnúmer 1809057
09
Tilkynning frá Mosfellsbæ um landsfund sveitarfélaga um jafnréttismál, dags. 04.09.18.
Málsnúmer 1803441
10