Beint í efni

Tillaga um víðtækara samráð og samvinnu

Málsnúmer 1809035

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

12. (834). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

02

32. (1847). fundur

Lögð fram og vísað til frekari umræðu og skoðunar við framlagningu á vinnuferlum og forsendum fjárhagsáætlunar.

Ingvar Arnarson, lagði fram eftirfarandi bókun:

„Garðabæjarlistinn undirstrikar að mikilvægt sé að allir bæjarfulltrúar komi að gerð fjárhagsáætlunar alveg frá byrjun og til enda. Með þeim hætti er hægt að tryggja að sem flest sjónarmið komist til skila, það er nauðsynlegt þegar ákveða á ramma um vinnu næsta fjárhagsár. Samráð og samtal er lykilforsenda þess að hagsmunir allra séu undir. Íbúalýðræðið er einn liður í slíkri vinnu og tækifærin til að leggja fram athugasemdir liður í því en eru engu að síðu allt annars eðlis en sú vinna sem unnin er við fjárhagsáætlun frá fyrstu stigum.“

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

11. (833). fundur

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.

"Garðabæjarlistinn leggur fram tillögu um aukið samráð og samvinnu meiri- og minnihluta í allri vinnu við fjárhagsáætlun bæjarins. Þannig að fulltrúar minnihlutans í bæjarstjórn sitji alla vinnufundi allt frá upphafi ferlisins til loka þar með talið fundi með sviðsstjórum."

Greinargerð:
Víðtækt samráð og samvinna eru þættir sem kallað er eftir í samfélaginu öllu.
Að unnið sé að því markvisst að fá fram ólík sjónarhorn og áherslur í vinnu sem við kemur öllum íbúum telur Garðabæjarlistinn afar góða skírskotun í slíkt ákall. En ekki síður að slík vinnubrögð séu afar farsæl leið til að skapa víðtækan samhljóm frá áætlunargerð kjörinna fulltrúa til stjórnsýslunnar þ.e. til þeirra sem leiða pólitískar áherslur til framkvæmda. Með því að hafa alla kjörna fulltrúa við borðið frá upphafi við vinnu eins og fjárhagsáætlunargerð sem snertir okkur öll þegar til framkvæmda kemur er frábært tækifæri til ennþá lýðræðislegri vinnubragða sem um leið ýtir enn frekar undir víðtæka sátt um þær áherslur sem liggja fyrir. Við erum öll kosin til þess að leiða Garðabæ áfram veginn. Slíkt skiptir máli þegar ráðstafa á fjármunum úr sameiginlegum sjóðum. Því hvetur Garðabæjarlistinn til þessarar nýbreytni í vinnulagi bæjarstjórnar í Garðabæ. Nútímalegri vinnubrögð þar sem ýtt er undir enn frekari sátt og forsendur til öflugs starfs í þágu allra íbúa í alvöru samvinnu allra kjörinna fulltrúa í bæjarstjórn.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi framkomna tillögu og lagði til að henni verði vísað til bæjarráðs.

Almar Guðmundsson, ræddi framkomna tillögu.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi framkomna tillögu.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi að nýju framkomna tillögu.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju framkomna tillögu.

Bæjarstjórn vísar framkominni tillögu til bæjarráðs.