12. (834). fundur
12. (834). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
20.09.2018
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - forseti bæjarstjórnar
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Guðfinnur Sigurvinsson - varamaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - aðalmaður
- Gunnar Einarsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Valborg Ösp Á. Warén - varamaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Fundurinn er hljóðritaður.
Gunnar Valur Gíslason, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 6. september 2018 er lögð fram.
Dagskrá
Málsnúmer 1809010F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 11/9 ´18.
Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og óskaði Stjörnunni til hamingju með bikarmeistaratitilinn og KFG til hamingju með sæti í 2. deild. Þá ræddi Ingvar 6. tl., tillögu Garðabæjarlistans um víðtækara samráð og samvinnu.
Gunnar Valur Gíslason, forseti bæjarstjórnar tók undir hamingjuóskir fyrir hönd bæjarstjórnar til Stjörnunnar og KFG með frábæran árangur og glæsta sigra.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 6. tl., tillögu Garðabæjarlistans um víðtækara samráð og samvinnu.
Fundargerðin sem er 10 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1809020F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 18/9 ´18.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl. fjárhagsáætlun 2019 (2019-2022) forsendur og vinnuferla og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Garðabæjarlistinn hafnar alfarið þeim vinnubrögðum meirihlutans sem viðhöfð eru við vinnu á forsendum fyrir fjárhagsáætlunar og þeim rökum um að lýðræðislegum vinnubrögðum sé fullnægt með fyrrgreindu ferli og ítrekar ósk minnihlutans um aðkomu allra bæjarfulltrúa að þeirri vinnu þ.e. að allir fulltrúar bæjarstjórnar sameinist um þær forsendur sem lagðar eru fram við gerð fjárhagsáætlunar hverju sinni.“
Almar Guðmundsson, ræddi 2. tl., fjárhagsáætlun 2019 (2019-2022) forsendur og vinnuferla og framlagða bókun.
Sara Dögg Svanhildardóttir ræddi að nýju 2. tl., fjárhagsáætlun 2019 (2019-2022) forsendur og vinnuferla og framlagða bókun.
Gunnar Einarsson, ræddi 2. tl., fjárhagsáætlun 2019 (2019-2022) forsendur og vinnuferla og framlagða bókun.
Ingvar Arnarson, ræddi 8. tl., bréf Tækniskólans um lóð fyrir nýbyggingu er hýsi starfsemi skólans.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., fjárhagsáætlun 2019 (2019-2022) forsendur og vinnuferla og framlagða bókun.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 2. tl., fjárhagsáætlun 2019 (2019-2022) forsendur og vinnuferla og framlagða bókun.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., fjárhagsáætlun 2019 (2019-2022) forsendur og vinnuferla og framlagða bókun.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., persónuvernd ? innleiðingu á nýrri löggjöf.
Gunnar Einarsson, ræddi að nýju 2. tl., fjárhagsáætlun 2019 (2019-2022) forsendur og vinnuferla og framlagða bókun. Þá ræddi bæjarstjóri 8. tl., bréf Tækniskólans um lóð fyrir nýbyggingu er hýsi starfsemi skólans og sagði frá viðræðum við forsvarsmenn skólans.
Sigurður Guðmundsson, ræddi að nýju 2. tl., fjárhagsáætlun 2019 (2019-2022) forsendur og vinnuferla og framlagða bókun.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., persónuvernd ? innleiðingu á nýrri löggjöf og 4. tl., fjárhagsáætlun Garðabæjar 2018 ? viðauka 4-7 og óskaði eftir upplýsingum um viðauka 6.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 4. tl., fjárhagsáætlun 2018 viðauka 4-7 og svaraði fyrirspurn.
Afgreiðsla mála.
Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 4-7 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018, samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 4
Snjómokstur kr. 25.000.000
Strætó bs. - framlag kr. 27.000.000
Staðgreiðsla útsvars (hækkun) kr. -52.000.000
Viðauki 5
HM í knattspyrnu - útsending á Garðatorgi kr. 10.700.000
Staðgreiðsla útsvars (hækkun) kr. -10.700.000
Viðauki 6
Tómstundaheimili Urriðaholtsskóla kr. 5.000.000
Urriðaholtsskóli (lækkun) kr. -5.000.000
Viðauki 7
Framlag til Hrafnistu samkvæmt samningi kr. 25.500.000
Liðveisla fatlaðs fólks kr. 30.000.000
Lengd viðvera nemenda kr. 11.000.000
Húsaleigubætur kr. 6.500.000
Framlag Jöfnunarsjóðs (hækkun) kr. -12.000.000
Staðgreiðsla útsvars (hækkun) kr. -61.000.000
Fundargerðin sem er 14 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1808012F
03
Fundargerð fjölskylduráðs frá 11/9 ´18.
Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., starfsdag fjölskylduráðs og sagði frá kynningum starfsmanna á verkefnum og verksviði fjölskyldusviðs.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1809005F
04
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 7/9 ´18.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi almennt störf menningar- og safnanefndar. Þá ræddi Gunnar Valur, 2. tl., aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands, 3. tl., Vídalínsviku, 4. tl. beiðni Töframáttar tónlistar um styrk og 5. tl., umsókn um styrk fyrir kvikmyndaverkefni.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 2. tl., aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands og hugmynd að ljósmyndasamkeppni.
Gunnar Einarsson, upplýsti að á vegum bæjarins er hafin vinna við skráningu á ljósmyndum í eigu bæjarins í þeim tilgangi að þær geti verið aðgengilegar.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1809012F
05
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 17/9 ´18.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 5. tl., kynningu á Urriðaholtsskóla, 3. tl., samstarf SSH um símenntun kennara grunnskóla og 1. tl., dagskrá forvarnarviku.
Björg Fenger, ræddi 1. tl., dagskrá forvarnarviku.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1808033F
06
Fundargerð skólanefndar tónlistarskóla frá 6/9 ´18.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1809009F
07
Fundargerð umhverfisnefndar frá 11/9 ´18.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 9. tl., plastlaus september.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 9. tl., plastlaus september, 1. tl., strætóskýli, 2. tl., grenndargáma, 3. tl., hleðslustöð fyrir rafbíla, 5. tl. mengunarmælingar, 10. tl., samgönguviku.
Ingvar Arnarson, ræddi 5. tl., mengunarmælingar 2018.
Gunnar Einarsson, ræddi 9. tl., plastlaus september. Þá sagði Gunnar frá lýðheilsugöngu á vegum bæjarins um Selgjá.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 5. tl., mengunarmælingar og lýðheilsugöngu á vegum bæjarins um Selgjá.
Almar Guðmundsson, ræddi 9. tl., plastlaus september og 6. tl., lausagöngu búfjár og fjallskil.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 5. tl., mengunarmælingar.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1801146
08
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 30/8 ´18.
Björg Fenger, ræddi 2. tl., eflingu almenningssamgangna.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1801362
09
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 12/9 ´18.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 2. tl., samning við Sorpstöð Suðurlands.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1801175
10
Fundargerð stjórnar SSH frá 3/9 ´18.
Gunnar Einarsson, ræddi 2. tl., greiningu á starfi SSH og landshlutasamtaka sveitarfélaga.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., greiningu á starfi SSH og landshlutasamtaka sveitarfélaga.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1704087
11
Fundargerð 16. eigendafundar Strætó bs. frá 3/9 ´18.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1704086
12
Fundargerð 13. eigendafundar Sorpu bs. frá 3/9 ´18.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1802195
13
Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 11/9 ´18.
Björg Fenger, ræddi 7. tl., samkomulag um endurnýjun og uppbyggingu á mannvirkjum skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1809229
14
Tillaga Garðabæjarlistans um gjaldfrjálsan tómstundaakstur.
Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
„Garðabæjarlistinn leggur fram tillögu til fjárhagsáætlunar þess efnis að Garðabær bjóði upp á gjaldfrjálsan tómstundaakstur fyrir börn.“
Greinargerð
Mikilvægt er að tryggja öllum börnum í Garðabæ jafnan aðgang að tómstundum sem eru í boði í bænum. Með því að hafa tómstundaakstur gjaldfrjálsan gefst börnum tækifæri á að sækja sem flestar tómstundir. Mikilvægt er í nútímasamfélagi að jafna aðgang fyrir börn að tómstundum og fækka
ferðum foreldra á einkabílum eins og kostur er. Garðabæjarlistinn telur að með þessum hætti sé hægt að koma til móts við þarfir fjölskyldna í Garðabæ.
Björg Fenger, ræddi framlagða tillögu og greindi frá skipulagi og fyrirkomulagi á tómstundakstri. Björg lagði til að vísa tillögunni til bæjarráðs.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögunni til bæjarráðs.
Málsnúmer 1809228
15
Tillaga Garðabæjarlistans um stofnun Sköpunarmiðstöðvar (Menningarhús).
Valborg Ösp Árnadóttir Warén, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
„Garðabæjarlistinn leggur til að komið verði á fót Sköpunarmiðstöð eða Menningarhúsi. Garðabæjarlistinn gerir það að tillögu sinni að nú við vinnu fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár verði gert ráð fyrir fjármagni svo að hægt verði að hefja undirbúning fyrir byggingu húsnæðis undir starfsemina og á meðan verði fundin viðunandi aðstaða hið fyrsta.
Garðabær á að vera lifandi bær þar sem hugvit fær að blómstra og því er nauðsynlegt að viðunandi aðstaða sé í bænum þar sem ungt fólk sem og aðrir geti nýtt sér til að sinna ný ? og listsköpun.
Garðabæjarlistinn leggur til að Íþrótta-og tómstundaráð, ásamt menningarnefnd móti hugmyndir að sköpunarmiðstöðinni og njóti til þess fulltingis Ungmennaráðs Garðabæjar.“
Greinagerð.
Fjölbreyttir valkostir í tómstundastarfi ýta undir vellíðan. Til þess að sem flestir finni áhugamál við sitt hæfi er nauðsynlegt að koma á fót miðstöð eða aðstöðu fyrir list og nýsköpun hér í bæjarfélaginu.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi skýrslu starfshóps um menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ sem bæjarráð skipaði 27. febrúar 2018, en starfshópurinn skilaði þann 27. apríl 2018 ítarlegri greinargerð með frumþarfagreiningu menningar- og fræðamiðstöðvar, valkostum um staðsetningu o.fl. og var skýrslan lögð fram í bæjarráði í kjölfarið þann 8. maí sl.
Gunnar Valur lagði til að vísa tillögunni til bæjarráðs.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi framlagða tillögu
Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögunni til bæjarráðs.
Málsnúmer 1809227
16
Tillaga Garðabæjarlistans um styttingu vinnuviku hjá starfsfólki Garðabæjar.
Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
„Garðabæjarlistinn leggur fram tillögu þess efnis að bæjarstjórn samþykki að stefna að því að stytta vinnuviku starfsmanna bæjarins.
Garðabæjarlistinn gerir það að tillögu sinni að nú við vinnu fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár verði gert ráð fyrir fjármagni til þess að setja af stað starfshóp sem hefur það hlutverk að vinna þá undirbúningsvinnu sem þarf til þess að ná fram því markmiði að stytta vinnuviku starfsmanna bæjarins úr 40 klst vinnuviku niður í 35 klst vinnuviku eða 1 klst á hvern virkan vinnudag.
Garðabæjarlistinn leggur til að forgangsraðað verði með þeim hætti að fyrst verði horft til starfsfólks á leikskólum bæjarins þar sem farið verði í samvinnu við stjórnendur að rýna í slíkt fyrirkomulag er varðar skipulag slíkrar aðgerðar.“
Greinargerð
Starfsumhverfi leikskóla er einn af þeim vinnustöðum þar sem áreitið er mikið og álag mikið á starfsfólki. Vinnumhverfið er þess eðlis að starfsfólk er mjög bundið við það mikilvæga verkefni að sinna börnum sem liggur í hlutarins eðli að gefur lítið sem ekkert svigrúm til þess að taka hlé frá störfum í amstri dagsins líkt og við getum ímyndað okkur að starfsfólk til að mynda sem vinnur við skrifstofustorf hefur tækifæri til.
Við viljum öll búa sem allra best að börnum á leikskólaaldri og í því felst að starfsumhverfið sé aðlaðandi og eftirsóknarvert. Stytting vinnuvikunnar hefur sýnt sig á fleiri en einum stað að kalli fram meiri starfsánægju en ekki síður virðist slík aðgerð skapa stöðugleika í viðveru sem skapar um leið festu og og öryggi fyrir börn og minni kostnað við afleysingar.
Að ýta undir betri aðbúnað kvennastétta er eitt af því sem Garðabæjarlistinn leggur ríka áherslu á í stefnu sinni samhliða áherslum þess efnis að leiðrétta kjör kvennastétta. Stytting vinnuvikunnar ýtir undir betri lífsgæði með tilliti til starfsánægju sem ýtir undir betri andlega líðan.
Gunnar Einarsson, ræddi framlagða tillögu og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Í gangi hafa verið tvö tilraunaverkefni varðandi styttingu vinnuviku opinberra starfsmanna án launaskerðingar. Annars vegar tilraunaverkefni ríkisins og BSRB sem sett var á laggirnar 2015 þegar Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, afhenti formanni BSRB viljayfirlýsingu ríkisstjórnarinnar varðandi tilraunaverkefni um styttingu vinnuvikunnar og hins vegar tilraunaverkefni BSRB og Reykjavíkurborgar sem hófst 2015 og náði þá til tveggja starfsstöðva borgarinnar. Það tilraunaverkefni var framlengt og víkkað út 2017 og hófst annar fasi verkefnisins í febrúar 2018.
Það er markmið bæjarstjórnar Garðabæjar að samfélagið í bænum verði sífellt fjölskylduvænna. Í því skyni hefur verið unnið að því að bæta starfsaðstæður starfsfólks bæjarins og aðgerðir útfærðar til að draga úr álagi starfsfólks og auka starfsánægju.
Við, bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, teljum einsýnt að stytting vinnuviku starfsfólks sveitarfélaga án launaskerðingar komi upp í kjaraviðræðum sveitarfélaga og viðsemjenda þeirra síðar. Við teljum því ekki tímabært að bæjarstjórn Garðabæjar samþykki einhliða að stefna að slíkum aðgerðum, eins og hér er lagt til, þar sem um hreint kjarasamningsmál er að ræða auk þess sem ekki liggja fyrir niðurstöður framangreindra tilraunaverkefna um gagnkvæman ávinning fyrir opinbert starfsfólk og viðkomandi stofnanir ríkis og sveitarfélaga.“
Almar Guðmundsson, ræddi framlagða tillögu.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi framlagða tillögu.
Guðfinnur Sigurvinsson ræddi framlagða tillögu.
Tillaga um að stefna að styttingu vinnuviku er felld með átta atkvæðum (GVG;ÁHJ,SG,AG,GE,BF,GS,JS) gegn þremur (SDS,IA,VÖÁW)