Tillaga Garðabæjarlistans um styttingu vinnuviku hjá starfsfólki Garðabæjar.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
12. (834). fundur
Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
„Garðabæjarlistinn leggur fram tillögu þess efnis að bæjarstjórn samþykki að stefna að því að stytta vinnuviku starfsmanna bæjarins.
Garðabæjarlistinn gerir það að tillögu sinni að nú við vinnu fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár verði gert ráð fyrir fjármagni til þess að setja af stað starfshóp sem hefur það hlutverk að vinna þá undirbúningsvinnu sem þarf til þess að ná fram því markmiði að stytta vinnuviku starfsmanna bæjarins úr 40 klst vinnuviku niður í 35 klst vinnuviku eða 1 klst á hvern virkan vinnudag.
Garðabæjarlistinn leggur til að forgangsraðað verði með þeim hætti að fyrst verði horft til starfsfólks á leikskólum bæjarins þar sem farið verði í samvinnu við stjórnendur að rýna í slíkt fyrirkomulag er varðar skipulag slíkrar aðgerðar.“
Greinargerð
Starfsumhverfi leikskóla er einn af þeim vinnustöðum þar sem áreitið er mikið og álag mikið á starfsfólki. Vinnumhverfið er þess eðlis að starfsfólk er mjög bundið við það mikilvæga verkefni að sinna börnum sem liggur í hlutarins eðli að gefur lítið sem ekkert svigrúm til þess að taka hlé frá störfum í amstri dagsins líkt og við getum ímyndað okkur að starfsfólk til að mynda sem vinnur við skrifstofustorf hefur tækifæri til.
Við viljum öll búa sem allra best að börnum á leikskólaaldri og í því felst að starfsumhverfið sé aðlaðandi og eftirsóknarvert. Stytting vinnuvikunnar hefur sýnt sig á fleiri en einum stað að kalli fram meiri starfsánægju en ekki síður virðist slík aðgerð skapa stöðugleika í viðveru sem skapar um leið festu og og öryggi fyrir börn og minni kostnað við afleysingar.
Að ýta undir betri aðbúnað kvennastétta er eitt af því sem Garðabæjarlistinn leggur ríka áherslu á í stefnu sinni samhliða áherslum þess efnis að leiðrétta kjör kvennastétta. Stytting vinnuvikunnar ýtir undir betri lífsgæði með tilliti til starfsánægju sem ýtir undir betri andlega líðan.
Gunnar Einarsson, ræddi framlagða tillögu og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Í gangi hafa verið tvö tilraunaverkefni varðandi styttingu vinnuviku opinberra starfsmanna án launaskerðingar. Annars vegar tilraunaverkefni ríkisins og BSRB sem sett var á laggirnar 2015 þegar Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, afhenti formanni BSRB viljayfirlýsingu ríkisstjórnarinnar varðandi tilraunaverkefni um styttingu vinnuvikunnar og hins vegar tilraunaverkefni BSRB og Reykjavíkurborgar sem hófst 2015 og náði þá til tveggja starfsstöðva borgarinnar. Það tilraunaverkefni var framlengt og víkkað út 2017 og hófst annar fasi verkefnisins í febrúar 2018.
Það er markmið bæjarstjórnar Garðabæjar að samfélagið í bænum verði sífellt fjölskylduvænna. Í því skyni hefur verið unnið að því að bæta starfsaðstæður starfsfólks bæjarins og aðgerðir útfærðar til að draga úr álagi starfsfólks og auka starfsánægju.
Við, bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, teljum einsýnt að stytting vinnuviku starfsfólks sveitarfélaga án launaskerðingar komi upp í kjaraviðræðum sveitarfélaga og viðsemjenda þeirra síðar. Við teljum því ekki tímabært að bæjarstjórn Garðabæjar samþykki einhliða að stefna að slíkum aðgerðum, eins og hér er lagt til, þar sem um hreint kjarasamningsmál er að ræða auk þess sem ekki liggja fyrir niðurstöður framangreindra tilraunaverkefna um gagnkvæman ávinning fyrir opinbert starfsfólk og viðkomandi stofnanir ríkis og sveitarfélaga.“
Almar Guðmundsson, ræddi framlagða tillögu.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi framlagða tillögu.
Guðfinnur Sigurvinsson ræddi framlagða tillögu.
Tillaga um að stefna að styttingu vinnuviku er felld með átta atkvæðum (GVG;ÁHJ,SG,AG,GE,BF,GS,JS) gegn þremur (SDS,IA,VÖÁW)