Tillaga Garðabæjarlistans um gjaldfrjálsan tómstundaakstur.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
34. (1849). fundur
Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu við gerð fjárhagsáætlunar 2019.
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
12. (834). fundur
Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
„Garðabæjarlistinn leggur fram tillögu til fjárhagsáætlunar þess efnis að Garðabær bjóði upp á gjaldfrjálsan tómstundaakstur fyrir börn.“
Greinargerð
Mikilvægt er að tryggja öllum börnum í Garðabæ jafnan aðgang að tómstundum sem eru í boði í bænum. Með því að hafa tómstundaakstur gjaldfrjálsan gefst börnum tækifæri á að sækja sem flestar tómstundir. Mikilvægt er í nútímasamfélagi að jafna aðgang fyrir börn að tómstundum og fækka
ferðum foreldra á einkabílum eins og kostur er. Garðabæjarlistinn telur að með þessum hætti sé hægt að koma til móts við þarfir fjölskyldna í Garðabæ.
Björg Fenger, ræddi framlagða tillögu og greindi frá skipulagi og fyrirkomulagi á tómstundakstri. Björg lagði til að vísa tillögunni til bæjarráðs.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögunni til bæjarráðs.