34. (1849). fundur
34. (1849). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
25.09.2018
Kl. 08:00 - 08:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1805173
01
Dýjagata 7 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ólafi Torfa Yngvasyni, kt. 150484-2359 leyfi til að byggja einbýlishús á lóðinni að Dýjagötu 7.
Málsnúmer 1710083
02
Afgreiðsla skipulagsnefndar um skipulagslýsingu vegna breytinga á deiliskipulagi Ása og Grunda fyrir svæði við Lyngás og Stórás.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um skipulagslýsingu vegna breytinga á deiliskipulagi Ása Grunda fyrir svæði við Lyngás og Stórás, sbr. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagslýsingin skal kynnt almenningi, Skipulagsstofnun og öðrum umsagnaraðilum.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1710090
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar um skipulagslýsingu vegna breytinga á deiliskipulagi Grunda og Ása fyrir svæði við Ægisgrund.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um skipulagslýsingu vegna breytinga á deiliskipulagi Ása og Grunda fyrir svæði við Ægisgrund, sbr. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagslýsingin skal kynnt almenningi, Skipulagsstofnun og öðrum umsagnaraðilum.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1809192
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar um skipulagslýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi samhliða breytingum á deiliskipulagi Ása og Grunda.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um skipulagslýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi Garðabæjar samhliða breytingum á deiliskipulagi Ása og Grunda sbr. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagslýsingin skal kynnt almenningi, Skipulagsstofnun og öðrum umsagnaraðilum.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1709142
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um skilti við Kauptún 1.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna uppsetningu á skilti við lóðinni að Kauptúni 1, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan skal grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga, sbr. 2. mgr. 43. gr. sömu laga.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1501085
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn lóðarhafa að Gilsbúð 9 um aukið byggingarmagn á lóðinni.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn lóðarhafa að Gilsbúð 9 um aukið byggingarmagn og stækkun byggingareits á lóðinni.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1805222
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn lóðarhafa við Hrauntungu við Álftanesveg um nýbyggingu fyrir starfsemi ferðaþjónustu.
Lögð fram.
Málsnúmer 1808122
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi að Holtsvegi 43.
Lögð fram.
Málsnúmer 1809189
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi uppfærðan deiliskipulagsuppdrátt fyrir Molduhraun.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar nýjan uppdrátt deiliskipulags fyrir Molduhraun.
Málsnúmer 1809116
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi matsáætlun vegna nýs starfssvæðis Björgunar í Álfsnesvík.
Lögð fram.
Málsnúmer 1804300
11
Minnisblað Vegagerðarinnar um sjóvarnir á Álftanesi, dags. 15.03.18
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir fyrirhuguðum framkvæmdum við sjóvarnir við Blikastíg og Hliðsnes.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti að Vegagerðin bjóði verkið út.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1603390
12
Dómur Hæstaréttar í máli Löngulínu 2 húsfélags gegn Garðabæ o.fl., dags. 20.09.18.
Í dómsorði kemur fram að sýknudómur héraðsdóms er staðfestur.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1809225
13
Bréf Sorpu bs. um lántöku vegna byggingar gas- og jarðgerðarstöðvar í Álfsnesi, dags. 12.09.18.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 1809217
14
Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um fjármálaráðstefnu 2018, dags.18.09.18.
Málsnúmer 1809234
15
Kynning Alþjóðaskólans um framtíðsrhúsnæði fyrir starfsemi skólans í Garðabæ.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum við forsvarsmenn Alþjóðaskólans á Íslandi þar sem kynntar voru áætlanir um uppbyggingu skólans í Garðabæ.
Málsnúmer 1808414
16
Afgreiðsla íþrótta- og tómstundaráðs um tillögu varðandi aðgerðir gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldishegðun í íþrótta- og æskulýðsstarfi.
Málsnúmer 1808123
17
Afgreiðsla íþrótta- og tómstundaráðs um tillögu um hinsegin fræðslu - heilsueflandi samfélag.
Málsnúmer 1809248
18
Tilkynning frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu varðandi nýja reglugerð um starfsemi slökkviliða, dags. 19.09.18.
Málsnúmer 1809249
19
Bréf Félags atvinnurekenda varðandi álagningu fasteignagjalda á atvinnuhúsnæði, dags. 19.09.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1804348
20
Matsgerð um spildu úr landi Kirkjubrúar á Álftanesi.
Lögð fram.
Málsnúmer 1809212
21
Bréf Skógræktarfélags Íslands varðandi lagningu Græna stígsins, dags. 13.09.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2019.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1809100
22
Bréf Skógræktarfélags Garðabæjar varðandi framlag árið 2019, dags. 10.09.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2019.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1809247
23
Bréf Andra Bachmann varðandi styrk til jólahátíðar, dags. 18.09.18.
Málsnúmer 1809198
24
Bréf Miðflokksins í Garðabæ um tilnefningu áheyrnarfulltrúa í nefndir og ráð, dags. 11.09.18.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1809229
25
Tillaga Garðabæjarlistans um gjaldfrjálsan tómstundaakstur.
Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu við gerð fjárhagsáætlunar 2019.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1809228
26
Tillaga Garðabæjarlistans um stofnun Sköpunarmiðstöðvar (Menningarhús).
Bæjarráð vísa tillögunni til kynningar í menningar- og safnanefnd og til afgreiðslu við gerð fjárhagsáætlunar 2019.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1701366
27
Auglýsing um úthlutun hesthúsalóða á Kjóavöllum.
Bæjarráð samþykkir að auglýsa úthlutun hesthúsalóða á Kjóavöllum.
Í auglýsingu skal koma fram að auk gatnagerðargjalda skuli greiða byggingarréttargjald sem nemi sömu fjárhæð og gatnagerðargjald.