Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi vegna sjóvarnargarða á Álftanesi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
23. (2030). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að veita Vegagerðinni framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna framlengingar sjóvarnargarðs í vestur í sunnanverði Helguvík. Um er að ræða friðlýst svæði sem fólkvangur og liggur fyrir leyfi Umhverfisstofnunar með skilyrðum, sbr. bréf, dags. 20. júní 2022. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
6. fundur
Lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi til að lengja sjóvörn sem fyrir er á svæðinu um 106 metra til vesturs í sunnanverðri Helguvík. Teikningar og kort sem sýna staðsetningu framkvæmdarsvæðis og hönnun sjóvarnarinnar fylgdi með umsókn. Framkvæmdinn er í samræmi við samþykktar skipulagsáætlanir sveitarfélagsins. Að verkinu koma tveir menn með beltagröfu og vörubílar. Framkvæmd færi fram utan varp og ungatíma fugla og er áætlað að henni ljúki fyrir 1. september 2022.
Skipulagsnefnd veitir framkvæmdaleyfi í samræmi við 13.gr.skipulagslaga nr.123/2010 sem er í samræmi við framlögð gögn.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
14. fundur
Vegagerðin sækir um framkvæmdaleyfi fyrir sjóvörnum í Helguvík og á Skansinum á Álftanesi
Lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir gerð sjóvarna í fólkvanginum að Hliði og við Bessastaðaskans.
Afla þarf umsagnar Forsetaembættisins, Umhverfisstofnunar og Minjastofnunar.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
10. (850). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að heimila útgáfu framkvæmdaleyfis samkvæmt 15. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna sjóvarna við bakka Lambhúsatjarnar neðan við túnið á Bessastöðum. Um er að ræða endurbyggingu að hluta til á eldri sjóvörnum og að hluta til nýjar sjóvarnir í samræmi við gildandi deiliskipulag fyrir Bessastaði.
Bæjarráð Garðabæjar
06
22. (1883). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að heimila útgáfu framkvæmdaleyfis samkvæmt 15. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna sjóvarna við bakka Lamhúsatjarnar neðan við túnið á Bessastöðum. Um er að ræða endurbyggingu að hluta til á eldri sjóvörnum og að hluta til nýjar sjóvarnir í samræmi við gildandi deiliskipulag fyrir Bessastaði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
9. fundur
Lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir gerð sjóvarna við bakka Lambhúsatjarnar neðan við túnið á Bessastöðum í samræmi við tillögu Vegagerðarinnar. Umsagnir umhverfisnefndar og Umhverfisstofnunar laðgar fram. Í umsögn Umhverfisstofnunar kemur fram að kemur fram að leggja eigi áherslu á að sjóvarnir séu staðsettar efst í fjörukambi þannig að mögulegt verði að ganga fjörur neðan varnargarðsins. Skipulagsnefnd tekur undir þá sýn Umhverfisstofnunar.
Skipulagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis í samræmi við 13.gr. Skipulagslaga nr.123/2010.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
08
12. fundur
Umhverfisnefnd samþykkir áform um sjóvörn við Bessastaði á Álftanesi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
10
6. fundur
Lagðar fram tillögur Vegagerðarinnar að sjóvörnum við Lambhúsatjörn sunna Bessastaða.
Tillögu vísað til umsagnar Umhverfisstofnunar og til umfjöllunar í umhverfisnefnd.
Bæjarstjórn Garðabæjar
11
16. (838). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að veita Vegagerðinni framkvæmdaleyfi samkvæmt 13.gr. skipulagslaga nr.123/2010 fyrir sjóvörnum við Hliðsnes og Blikastíg.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
12
13. fundur
Lögð fram umsögn Umhverfisstofnunar vegna tillagna að sjóvörnum við Hliðsnes og Blikastíg.
Skipulagsnefnd samþykkir að Vegagerðinni verði framkvæmdaleyfi fyrir sjóvörnum þeim sem tillagan gerir ráð fyrir við Hliðsnes og Blikastíg í eins og þeim er lýst í fyrirliggjandi gögnum og í samræmi við 13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
13
12. fundur
Lagðar fram tillögur Vegagerðarinnar að sjóvörnum á Álftanesi, annarsvegar á Hliðsnesi og hinsvegar hjá Akrakoti á Norðurnesi. Fjörur á Álftanesi eru á Náttúruminjaskrá.
Skipulagsnefnd vísar tillögunum til umsagnar Umhverfisstofnunar.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
14
5. fundur
Fyrirhugaðar framkvæmdir við sjóvarnagarða á Álftanesi kynntar
Bæjarráð Garðabæjar
15
34. (1849). fundur
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir fyrirhuguðum framkvæmdum við sjóvarnir við Blikastíg og Hliðsnes.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti að Vegagerðin bjóði verkið út.