22. (1883). fundur
22. (1883). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
11.06.2019
Kl. 08:00 - 09:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Björg Fenger - varamaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1905268
01
Niðurstöður könnunar á vegum Rannsóknar og greiningar sem lögð var fyrir nemendur í 8. 9. og 10. bekk á Íslandi í febrúar 2019. (Kynning kl. 08:00)
Á fund bæjarráðs mætti Margrét Lilja Guðmundsdóttir og gerði grein fyrir helstu niðurstöðum könnunar Rannsóknar og greiningar um vímuefnaneyslu ungmenna.
Málsnúmer 1905066
02
Haukanes 1 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Bjarna Marteini Berg Elfarssyni, kt. 200769-5629, leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi einbýlishús að Haukanesi 1.
Málsnúmer 1905111
03
Holtsbúð 27 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Jóni Hrafni Hlöðverssyni, kt. 260662-6519, leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi einbýlishús að Holtsbúð 27.
Málsnúmer 1904310
04
Lambhagi 6 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Lárusi Guðmundsyni, kt. 101184-2939, leyfi fyrir fjórum kvistum á þak núverandi einbýlishúss að Lambhaga 6.
Málsnúmer 1905361
05
Skólatún 5 -Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Skólatúni 5, húsfélagi, kt. 500293-2339, leyfi fyrir breytingum á ytra byrði fjölbýlishússins að Skólatúni 5.
Málsnúmer 1905047
06
Þrastanes 9 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Páli Heiðari Halldórssyni, kt. 250779-5859, leyfi til að breyta ytra byrði einbýlishússins að Þrastanesi 9.
Málsnúmer 1804300
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir sjóvörnum á Álftanesi
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að heimila útgáfu framkvæmdaleyfis samkvæmt 15. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna sjóvarna við bakka Lamhúsatjarnar neðan við túnið á Bessastöðum. Um er að ræða endurbyggingu að hluta til á eldri sjóvörnum og að hluta til nýjar sjóvarnir í samræmi við gildandi deiliskipulag fyrir Bessastaði.
Málsnúmer 1810087
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis vegna lóðarinnar við Hvannakur 7.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 43. gr. sömu laga vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Akrahverfis í tilefni umsóknar um breytingu á byggingarreit lóðarinnar við Hvannakur 7. Grenndarkynna skal umsóknina eigendum Hvannakurs 5 og 9 og Kaldakurs 6 og 8.
Málsnúmer 1906043
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir framkvæmdum að Víðilundi 1.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að umsókn um byggingarleyfi við núverandi hús að Víðilundi 1 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1706258
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Hraungötu 8.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 43. gr. sömu laga vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts í tilefni umsóknar um svalalokun utan byggingarreits. Grenndarkynna skal umsóknina eigendum Hraungötu 2,4,6, og 10 og Bæjargötu 11-19.
Málsnúmer 1905257
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar að Dýjagötu 8.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 43. gr. sömu laga vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits lóðarinnar að Dýjagötu 8. Grenndarkynna skal umsóknina eigendum Dýjagötu 2, 5 og 10.
Málsnúmer 1905363
12
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir framkvæmdum að Lynggötu 2.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að heimila útgáfu byggingarleyfis fyrir heitum potti með glerþaki á þaksvölum íbúðar í fjölbýlishúsinu við Lynggötu 2. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1906023
13
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir færanlegum kennslustofum á lóð Hjallastefnunnar.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að umsókn um byggingarleyfi fyrir fjölgun færanlegra kennslustofa á lóð Hjallastefnunar verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1905199
14
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi lýsingu vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024. Traðarreitur -austur.
Lögð fram.
Málsnúmer 1905215
15
Afgreiðsla leikskólanefndar varðandi bólusetningar leikskólabarna.
Leikskólanefnd óskar eftir því við bæjarstjórn að kannað verði hvort sveitarfélaginu sé heimilt að setja almennar bólusetningar sem skilyrði fyrir leikskóladvöl og /eða starfi á leikskóla.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að láta taka saman minnisblað um málið.
Málsnúmer 1810028
16
Niðurstöður rafrænna íbúakosninga - Betri Garðabær.
Lögð fram fundargerð kjörstjórnar þar sem lýst er niðurstöðum rafrænna íbúakosninga sem fram fóru dagana 23. maí - 3. júní um 27 hugmyndir bæjarbúa um smærri framkvæmdir.
Eftirfarandi verkefni hlutu kosningu.
Verkefni Fjöldi atkvæða Fjárhæð
Útivistarstígur í Heiðmörk; 1207 20.0
Skjólveggur við heita potta í Ásgarði; 1079 2.0
Fjórir vatnsfontar; 1027 5.0
Útisturta við ströndina í Sjálandi; 914 2.0
Sundfatavindur í Álftaneslaug; 913 1.0
Tíu áningastaðir með bekkjum; 895 10.0
Leiksvæði við ströndina í Sjálandi; 873 25.0
Aparóla við Hofsstaðaskóla ; 820 3.0
Fjölgun strætóskýla; 789 12.0
Sjónaukar við Arnarnesvog; 752 3.0
Fræðsluskilti við stríðsminjar ; 683 5.0
Ærslabelgur við Álftanesskóla; 680 3.0
Yfirbyggt hjólaskýli við Aktu Taktu Ásgarði; 586 5.0
Samtals: 96 m.kr.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirbúa áætlun vegna framkvæmda við ofangreind verkefni á árunum 2019-2020 og merkja framkvæmdastaði með upplýsingum um væntanlega framkvæmd.
Málsnúmer 1906077
17
Bréf Skógræktarfélags Garðabæjar varðandi gróðursetningar fyrir grunnskólanemendur í Garðabæ, dags. 05.06.19.
Málsnúmer 1906011
18
Bréf Samgöngufélagsins varðandi hóflega gjaldtöku til að draga úr notkun negldra hjólbarða, dags. 31.05.19
Málsnúmer 1906019
19
Bréf Gistiheimilisins að Eyvindarholti varðandi tillögu að deiliskipulagi Holtstún, dags. 30.05.19.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfritara og benda m.a. á að tillaga að deiliskipulagi Holtstúns mun kom til meðferðar að nýju sem hluti deiliskipulags fyrir norðurnes Álftaness. Við kynningu og auglýsingu tillögunnar að nýju gefst bréfritara kostur á að koma athugasemdum sínum á framfæri.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1906027
20
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi fyrir veitingaþjónustu í golfskála Golfklúbbsins Odds.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
Málsnúmer 1711191
21
Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytisins varðandi úttekt á Flataskóla, dags. 03.06.19.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að hlutast til um að bréfinu verði svarað og umbeðnar upplýsingar veittar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1905141
22
Erindi Hjallastefnunnar ehf. um framsal samninga um rekstur leikskóla og grunnskóla, dags. 01.05.19.
Bæjarráð samþykkir að verða við erindi Hjallastefnunnar um framsal samstarfsamninga um rekstur leik- og grunnskóla til nýrra dótturfélaga sem verða alfarið í eigu Hjallastefnunnar. Bæjarráð leggur á áherslu á að ákvæði í samningi við Hjallastefnuna um afhendingu gagna s.s. ársskýrslna og ársreikning gildi áfram bæði fyrir móður- og dótturfélög (samstæðureikning).
Málsnúmer 1906093
23
Bréf íbúa í Aratúni og Goðatúni varðandi úrbætur vegna umferðarhávaða frá Hafnarfjarðarvegi, dags. 07.06.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1906037
24
Tillaga Garðabæjarlistans um gagnsærri stjórnsýslu.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að semja drög að meginreglum um málsmeðferð við afgreiðslu á fyrirspurnum og afhendingu gagna til bæjarfulltrúa. Í reglunum skal kveðið á um fresti til að svara fyrirspurnum og afhenda gögn og í þeim tilvikum sem ekki tekst að svara innan frestsins skal fyrirspyrjanda gerð grein seinkun á svari og hvenær svars er að vænta.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1904359
25
Svar við fyrirspurn um kostnað og áætlanir vegna framkvæmda við Bæjargarðinn.
Málsnúmer 1805051
26
Drög að samningi við GKG um viðbyggingu við golfskála og bráðabirgða æfingasvæði.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja samning við Golfklúbb Kópavogs og Garðabæjar um viðbyggingu við golfskála og bráðabirgða æfingasvæði.
Málsnúmer 1906094
27
Drög að erindisbréfi fyrir starfshóp vegna innleiðingar Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, Heilsueflandi Garðabæ, Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og velferð barna í Garðabæ.
Bæjarráð samþykkir erindisbréf fyrir starfshóp vegna innleiðingar Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, Heilsueflandi Garðabæ, Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og velferð barna í Garðabæ.
Bæjarstjóra falið að ganga frá skipun fulltrúa í starfshópinn.
Sara Dögg Svanhildardóttir, lagði fram eftirfarandi bókun.
"Garðabæjarlistinn fagnar því að skipað verði í stýrihóp vegna verkefnanna um Heilsueflandi samfélag, Innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, Heimsmarkmiðanna og velferð barna. Enda verkefnin yfirgripsmikli sem krefjast yfirsýnar og eftirfylgni. Um leið vill Garðabæjarlistinn láta færa til bókar vonbrigði með að tillaga Garðabæjarlistans um sama efni sem lögð var fram á bæjarstjórnarfundi þann 6. júní hafi verið felld af meirihlutanum. Í stað þess að sýna í verki vilja til samvinnu og samstarfs minni- og meirihluta við að þoka málum áfram óháð því hver leggur málið fram."