Lynggata 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
10. (850). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að heimila útgáfu byggingarleyfis fyrir heitum potti með glerþaki á þaksvölum íbúðar í fjölbýlishúsinu við Lynggötu 2. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
03
22. (1883). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að heimila útgáfu byggingarleyfis fyrir heitum potti með glerþaki á þaksvölum íbúðar í fjölbýlishúsinu við Lynggötu 2. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
9. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókn sem gerir ráð fyrir sjálfberandi gustlokun yfir heitum potti á þaki byggingar. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verði vikið frá kröfu 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga um deiliskipulagsbreytingu vegna umræddrara gustlokunar.