Beint í efni

10. (850). fundur

20.06.2019
Bæjarstjórn Garðabæjar

10. (850). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu

20.06.2019

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Guðfinnur Sigurvinsson - varamaður
  • Stella Stefánsdóttir - varamaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - 1. varaforseti
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Gunnar Einarsson - aðalmaður
  • Valborg Ösp Á. Warén - varamaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Fundurinn er hljóðritaður.

Jóna Sæmundsdóttir, fyrsti varaforseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 6. júní 2019 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 1906008F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 11/6 ´19.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 16. tl., niðurstöður rafrænna kosninga - Betri Garðabær. Gunnar Valur færði öllum þeim sem komu að undirbúningi og framkvæmt málsins þakkir fyrir góð störf.



Stella Stefánsdóttir, ræddi 16. tl., niðurstöður rafrænna kosninga - Betri Garðabær.

Gunnar Einarson, ræddi 1. tl., niðurstöður könnunar á vegum Rannsóknar og greiningar sem lögð var fyrir nemendur í 8. 9. og 10 bekk.

Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., niðurstöður könnunar á vegum Rannsóknar og greiningar sem lögð var fyrir nemendur í 8. 9. og 10 bekk, og 23. tl. bréf íbúa í Aratúni og Goðatúni varðandi úrbætur vegna umferðarhávaða frá Hafnarfjarðavegi.

Björg Fenger, ræddi 1. tl., niðurstöður könnunar á vegum Rannsóknar og greiningar sem lögð var fyrir nemendur í 8. 9. og 10 bekk og 16. tl., niðurstöður rafrænna kosninga - Betri Garðabær.

Harpa Þorseinsdóttir, ræddi 1. tl., niðurstöður könnunar á vegum Rannsóknar og greiningar sem lögð var fyrir nemendur í 8. 9. og 10 bekk. Harpa nýtti tækifærið og óskaði Skátafélaginu Vífli til hamingju með undirskrift samnings um byggingu útilífsmiðstöðvar í Heiðmörk.

Gunnar Einarsson, ræddi 23. tl., bréf íbúa í Aratúni og Goðatúni varðandi úrbætur vegna umferðarhávaða frá Hafnarfjarðavegi og svaraði fyrirspurn.

Fundargerðin sem er 27 tl., er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála:

Málsnúmer 1906021F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 18/6 ´19.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi, 1. tl., uppbyggingu í Vetrarmýri - kynningu á stöðu verkefnis.

Fundargerðin sem er 11 tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1905026F

03

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 15/5 ´19.

Björg Fenger, ræddi 3. tl., hátíðarhöld 17. júní. Björg þakkaði Skátafélaginu Vífli fyrir skipulag og framkvæmd hatíðarhaldanna og einnig starfsmönnum bæjarins sem komu að aðstoð við hátíðarhöldin.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1906003F

04

Fundargerð skipulagsnefndar frá 6/6 ´19.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1906004F

05

Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 11/6 ´19.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., tillögu að breytingu á reglum þróunarsjóðs grunnskóla, 2. tl., ósk um breytingu á tímasetningu er varðar skólabyrjun og sagði frá niðurstöðum, sem birtar verða fljótlega, í könnun meðal foreldra og nemenda um málið. Þá ræddi Sigríður Hulda, 3. tl., forvarnarviku í Garðabæ og 5. tl., áherslur skólanefndar grunnskóla skólaárið 2019-2020.

Ingvar Arnarson, ræddi 2. tl., ósk um breytingu á tímasetningu er varðar skólabyrjun og 3. tl. forvarnarviku í Garðabæ.

Stella Stefánsdóttir, ræddi 2. tl., ósk um breytingu á tímasetningu er varðar skólabyrjun.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi að nýju 2. tl., ósk um breytingu á tímasetningu er varðar skólabyrjun og 3. tl. forvarnarviku í Garðabæ.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1906010F

06

Fundargerð umhverfisnefndar frá 13/6 ´19.

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 1. tl., tillögu um að draga úr plastmengun í rekstri Garðabæjar.

Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., tillaga um að draga úr plastmengun í rekstri Garðabæjar og 2. tl., niðurstöður mengunarmælinga 2019.

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi að nýju 1. tl., tillögu um að draga úr plastmengun í rekstri Garðabæjar og 3. tl., samgönguviku 2019. Guðfinnur vakti athygli á hjólaráðstefnu sem haldin verður í Sveinatungu, fundarsal bæjarstjórnar, föstudaginn 20. september nk.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 2. tl., niðurstöður mengunarmælinga 2019.

Ingvar Arnarson, ræddi að nýju 2. tl., niðurstöður mengunarmælinga 2019.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1901316

07

Fundargerð stjórnar SHS frá 14/6 ´19.

Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., nýja björgunarmiðstöð.

Gunnar Einarsson, ræddi sama mál og svaraði fyrirspurn.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1901375

08

Fundargerð stjórnar SSH frá 3/6 ´19.

Gunnar, Einarsson, ræddi 1. tl., samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu, 2. tl., málefni skíðasvæða, 3. tl., ferðaþjónustu fatlaðs fólks og 4. tl., grænbók, stefnumótun um málefni sveitarfélaga.

Björg Fenger, ræddi 2. tl., málefni skíðasvæða og 3. tl., ferðaþjónustu fatlaðs fólks.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1901198

09

Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 29/5 ´19.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., staðsetningu og uppbyggingu nýrra endurvinnslustöðva, 2. tl., bréf Reykjavíkurborgar varðandi ósk um morgunopnun á Sævarhöfða, 6. tl., verksamning og þjónustusamning vegna grenndargámakerfis og 10. tl., minnisblað framkvæmdastjóra um stöðu förgunar á höfuðborgarsvæðinu.

Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., staðsetningu og uppbyggingu nýrra endurvinnslustöðva og 7. tl., erindi Flokks fólksins um þriggja tunnu kerfi í Reykjavík.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 7. tl., erindi Flokks fólksins um þriggja tunnu kerfi í Reykjavík og svaraði fyrirspurn um málið.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1901407

10

Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 4/6 ´19.

Björg Fenger, ræddi 2. tl., útboð á kaupum á vetnisvögnum og gerði grein fyrir samþykkt um að hafna fyrirliggjandi tilboði.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 2. tl., útboð á kaupum á vetnisvögnum og vakti athygli á hagkvæmni þess að skoða kaup á metanvögnum.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1902158

11

Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsv. frá 13/6 ´19.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1805051

12

Drög að samningi við GKG um viðbyggingu við golfskála og bráðabirgða æfingasvæði.

Gunnar Einarsson, gerði grein fyrir aðdraganda að gerð samnings við GKG um viðbyggingu og bráðabirgða æfingasvæði. Gunnar vék að öðrum drögum að samningum sem eru í undirbúningi varðandi uppbyggingu lands s.s. á Álftanesi og Lyngássvæðinu.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.

Björg Fenger, tók til máls.

Ingvar Arnarson, tók til máls.

Gunnar Einarsson, tók til máls að nýju og svaraði fyrirspurnum.

Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða samning við Golfklúbb Kópavogs og Garðabæjar um viðbyggingu við golfskála og bráðabirgða æfingasvæði.

Málsnúmer 1906202

13

Tillaga um umhverfisvæna ferðamáta.

Jóna Sæmundsdóttir kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu sem hún flytur ásamt Björgu Fenger.

"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020 verði horft til verkefna sem hvetja fólk til að nota umhverfisvæna ferðamáta t.a.m. rafhjól og rafmagnshlaupahjól."

Greinargerð:

Mikilvægt er að ríki og sveitarfélög taki höndum saman til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá vegasamgöngum sem er afar mikil eða í raun þriðjungur allrar þeirrar losunar sem Ísland þarf að standa skil á gagnvart Parísarsamkomulaginu.

Eitt af markmiðum umhverfisstefnu Garðabæjar er að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum frá umferð en það rímar vel við aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar í loftlagsmálum.

Tillagan sem hér er lögð fram felur í sér að við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020 verði horft til verkefna sem hvetja og auðveldi fólki að skipta yfir í umhverfisvæna ferðamáta. Jafnframt skulu verkefnin falla að markmiðum heilsueflandi samfélags sem og Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, undirmarkmið nr 3 (heilsa og vellíðan), nr. 11 (sjálfbærar borgir og samfélög) og nr. 13 (aðgerðir í loftlagsmálum).

Ingvar Arnarson, tók til máls um framlagða tillögu. Ingvar fagnaði tillögunni og boðaði tillögu um að bærinn setji sér loftlagsstefnu.

Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls um framlagða tillögu og spurði um notkun á rafhjólum bæjarins á torginu.

Gunnar Einarsson, tók til máls og svaraði fyrirspurn.

Tillagan samþykkt samhljóða.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, vék af fundi kl 18:35.

Málsnúmer 1906156

14

Tillaga um að efla enn frekar starfsemi vinnuskólans.

Björg Fenger, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.

"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020 verði í forvarnarskyni horft til þess að efla enn frekar starfsemi vinnuskólans með sérstaka áherslu á nemendur sem eru að ljúka 8. bekk."

Greinargerð:

Árangur okkar Íslendinga þegar kemur að forvörnum hefur vakið heimsathygli og er svo komið að íslenska forvarnarmódelið er orðið að útflutningsvöru. Þó að vel hafi gengið undanfarin ár er mikilvægt að við sofnum ekki á verðinum enda viljum við standa okkur vel þegar kemur að forvörnum og vinnu með börnum og unglingum.

Rannsóknir hafa sýnt að besta forvörnin eru skipulagt íþrótta- og tómstundastarf sem og samvera með fjölskyldu. Rannsóknir hafa jafnframt sýnt að allt óskipulagt og eftirlitslaust „hangs“ skapar áhættu er varðar ýmsa óæskilega hegðun. Með tillögu þessari er verið að leggja til að við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020 verði horft til þess að efla enn frekar starfsemi vinnuskólans með áherslu á nemendur sem eru að ljúka 8. bekk. Þannig verði boðinn aukinn aðgangur að skipulagðri vinnu og forvörnum með það að markmiði að draga úr líkum á óæskilegri hegðun.

Ingvar Arnarson, tók til máls um framlagða tillögu.

Tillagan samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1906098

15

Sumarleyfi bæjarstjórnar 2019.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða eftirfarandi tillögu.

"Með vísan til 14. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 svo og 8. gr. samþykktar um stjórn Garðabæjar nr. 773/2013 samþykkir bæjarstjórn að fella niður reglulega fundi í sumarleyfi bæjarstjórnar í júlí og til 15. ágúst 2019. Fyrsti fundur bæjarstjórnar eftir sumarleyfi verður boðaður með dagskrá sem send verður bæjarfulltrúum 13. ágúst 2019.

Bæjarstjórn samþykkir að veita bæjarráði fullt umboð til afgreiðslu mála meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur, svo sem mælt er fyrir um í 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga."