Beint í efni

Tillaga um umhverfisvæna ferðamáta.

Málsnúmer 1906202

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

10. (850). fundur

Jóna Sæmundsdóttir kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu sem hún flytur ásamt Björgu Fenger.

"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020 verði horft til verkefna sem hvetja fólk til að nota umhverfisvæna ferðamáta t.a.m. rafhjól og rafmagnshlaupahjól."

Greinargerð:
Mikilvægt er að ríki og sveitarfélög taki höndum saman til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá vegasamgöngum sem er afar mikil eða í raun þriðjungur allrar þeirrar losunar sem Ísland þarf að standa skil á gagnvart Parísarsamkomulaginu.
Eitt af markmiðum umhverfisstefnu Garðabæjar er að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum frá umferð en það rímar vel við aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar í loftlagsmálum.
Tillagan sem hér er lögð fram felur í sér að við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020 verði horft til verkefna sem hvetja og auðveldi fólki að skipta yfir í umhverfisvæna ferðamáta. Jafnframt skulu verkefnin falla að markmiðum heilsueflandi samfélags sem og Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, undirmarkmið nr 3 (heilsa og vellíðan), nr. 11 (sjálfbærar borgir og samfélög) og nr. 13 (aðgerðir í loftlagsmálum).

Ingvar Arnarson, tók til máls um framlagða tillögu. Ingvar fagnaði tillögunni og boðaði tillögu um að bærinn setji sér loftlagsstefnu.

Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls um framlagða tillögu og spurði um notkun á rafhjólum bæjarins á torginu.

Gunnar Einarsson, tók til máls og svaraði fyrirspurn.

Tillagan samþykkt samhljóða.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, vék af fundi kl 18:35.