Tillaga um að efla enn frekar starfsemi vinnuskólans.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
10. (850). fundur
Björg Fenger, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020 verði í forvarnarskyni horft til þess að efla enn frekar starfsemi vinnuskólans með sérstaka áherslu á nemendur sem eru að ljúka 8. bekk."
Greinargerð:
Árangur okkar Íslendinga þegar kemur að forvörnum hefur vakið heimsathygli og er svo komið að íslenska forvarnarmódelið er orðið að útflutningsvöru. Þó að vel hafi gengið undanfarin ár er mikilvægt að við sofnum ekki á verðinum enda viljum við standa okkur vel þegar kemur að forvörnum og vinnu með börnum og unglingum.
Rannsóknir hafa sýnt að besta forvörnin eru skipulagt íþrótta- og tómstundastarf sem og samvera með fjölskyldu. Rannsóknir hafa jafnframt sýnt að allt óskipulagt og eftirlitslaust „hangs“ skapar áhættu er varðar ýmsa óæskilega hegðun. Með tillögu þessari er verið að leggja til að við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020 verði horft til þess að efla enn frekar starfsemi vinnuskólans með áherslu á nemendur sem eru að ljúka 8. bekk. Þannig verði boðinn aukinn aðgangur að skipulagðri vinnu og forvörnum með það að markmiði að draga úr líkum á óæskilegri hegðun.
Ingvar Arnarson, tók til máls um framlagða tillögu.
Tillagan samþykkt samhljóða.