Fundargerð bæjarráðs frá 11/6 ´19.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
10. (850). fundur
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 16. tl., niðurstöður rafrænna kosninga - Betri Garðabær. Gunnar Valur færði öllum þeim sem komu að undirbúningi og framkvæmt málsins þakkir fyrir góð störf.
Stella Stefánsdóttir, ræddi 16. tl., niðurstöður rafrænna kosninga - Betri Garðabær.
Gunnar Einarson, ræddi 1. tl., niðurstöður könnunar á vegum Rannsóknar og greiningar sem lögð var fyrir nemendur í 8. 9. og 10 bekk.
Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., niðurstöður könnunar á vegum Rannsóknar og greiningar sem lögð var fyrir nemendur í 8. 9. og 10 bekk, og 23. tl. bréf íbúa í Aratúni og Goðatúni varðandi úrbætur vegna umferðarhávaða frá Hafnarfjarðavegi.
Björg Fenger, ræddi 1. tl., niðurstöður könnunar á vegum Rannsóknar og greiningar sem lögð var fyrir nemendur í 8. 9. og 10 bekk og 16. tl., niðurstöður rafrænna kosninga - Betri Garðabær.
Harpa Þorseinsdóttir, ræddi 1. tl., niðurstöður könnunar á vegum Rannsóknar og greiningar sem lögð var fyrir nemendur í 8. 9. og 10 bekk. Harpa nýtti tækifærið og óskaði Skátafélaginu Vífli til hamingju með undirskrift samnings um byggingu útilífsmiðstöðvar í Heiðmörk.
Gunnar Einarsson, ræddi 23. tl., bréf íbúa í Aratúni og Goðatúni varðandi úrbætur vegna umferðarhávaða frá Hafnarfjarðavegi og svaraði fyrirspurn.
Fundargerðin sem er 27 tl., er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála: