Beint í efni

Dýjagata 8 - rými undir verönd, dsk breyting

Málsnúmer 1905257

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

10. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

5. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem vísað hefur verið til grenndarkynningar. Lagðir fram uppdrættir sem sýna umrædda breytingu og þar sem að þeir sem grenndarkynning nær til hafa lýst því yfir með að þeir geri ekki athugasemd við breytinguna. Í samræmi við 3.mgr.44.greinar Skipulagslaga nr.123/2010 skoðast tillagan því samþykkt og skal senda Skipulagsstofnun breytinguna og birta auglýsingu um gildistöku í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við í samræmi við 2.mgr.43.gr. sömu laga.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

10. (850). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

10. (850). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 43. gr. sömu laga vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits lóðarinnar að Dýjagötu 8. Grenndarkynna skal umsóknina eigendum Dýjagötu 2, 5 og 10.

Bæjarráð Garðabæjar

05

22. (1883). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 43. gr. sömu laga vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits lóðarinnar að Dýjagötu 8. Grenndarkynna skal umsóknina eigendum Dýjagötu 2, 5 og 10.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

9. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir því að undir verönd austan íbúðarhússins verði heimilst að loka af rými. Kallar það á stækkun byggingarreits fyrir neðri hæð. Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta þar sem að grenndaráhrif breytingarinnar eru hverfandi. Breytingartillögu vísað til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Dýjagötu 2, 5 og 10.