Vífilsstaðavegur 123 stækkun Hnoðrakots -Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
10. (850). fundur
Bæjarstjórn samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að umsókn um byggingarleyfi fyrir fjölgun færanlegra kennslustofa á lóð Hjallastefnunar verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bæjarstjórn samþykkir að nýta heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga til að falla frá grenndarkynningu enda sýnt að leyfisskyld framkvæmd varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda.
Bæjarráð Garðabæjar
03
22. (1883). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að umsókn um byggingarleyfi fyrir fjölgun færanlegra kennslustofa á lóð Hjallastefnunar verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
9. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókn fyrir stækkun byggingar barnaskóla Hjallastefnunnar. Byggingin er sömu gerðar og aðrar skólabyggingar sem hafa verið byggðar til bráðabirgða þar sem framtíðaráform svæðisins hefur enn ekki verið mótuð í aðalskipulagi og deiliskipulagi. Skipulagsnefnd vísar byggingarleyfisumsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr. Skipualgslaga. Einnig er óskað eftir umsögn skipulagsráðgjafa rammahluta aðalskipulags vegna umsóknarinnar. Grenndarkynna skal lóðahöfum á aðliggjandi lóðum.