Hvannakur 7, dsk br
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
6. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Akra að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 2.mgr.43.gr. og.44.gr. Skipulagslaga nr.123/2010. Tillagan gerir ráð fyrir því að ytri byggingarreitur á suðurhlið sé nýttur um 3/4 í stað 1/2 eins og skilmálar heimila.
Grenndarkynnt var eigendum Hvannakurs 5 og 9 og Kaldakurs 6 og 8. Engar athugasemdir bárust og tillagan skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
10. (850). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 43. gr. sömu laga vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Akrahverfis í tilefni umsóknar um breytingu á byggingarreit lóðarinnar við Hvannakur 7. Grenndarkynna skal umsóknina eigendum Hvannakurs 5 og 9 og Kaldakurs 6 og 8.
Bæjarráð Garðabæjar
05
22. (1883). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 43. gr. sömu laga vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Akrahverfis í tilefni umsóknar um breytingu á byggingarreit lóðarinnar við Hvannakur 7. Grenndarkynna skal umsóknina eigendum Hvannakurs 5 og 9 og Kaldakurs 6 og 8.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
9. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Akra sem gerir ráð fyrir því að ytri byggingarreitur á suðurhlið sé nýttur um 3/4 í stað 1/2 eins og skilmálar heimila.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Akra í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Hvannakurs 5 og 9 og Kaldakurs 6 og 8.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
8. fundur
Lögð fram fyrirspurn um þrjár mögulegar útfærslur á viðbyggingum á suðurhlið húss sem ganga mislangt út frá núverandi byggingu. Svar skipulagsnefndar er neikvætt við öllum hugmyndum um útfærslu.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
10
12. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um það hvort heimiluð verði viðbygging sunnan við íbúðarhús sem nær að hluta til út fyrir ytri byggingarreit.
Skipulagsnefnd mælir ekki með því að viðbyggingar nái út fyrir ytri byggingarreit íbúðarhúsa í Akrahverfi. Með því að heimila þessháttar breytingar geti fordæmið orðið til þess að draga úr gæðum rýmis sem er á milli húsa sem hefði neikvæð áhrif á yfirbragð hverfisins.