6. fundur
6. fundur
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
06.08.2019
Kl. 13:00 -
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson
- Anna María Guðmundsdóttir
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1905258
01
Smáraflöt 11 -Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram, að lokinni grenndarkynningu tillaga að viðbyggingu við íbúðarhús innan byggingarreits. Húshlið er brotin upp með inngarði fyrir miðjum byggingarreit.
Skipulagsstjóri mat tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata þar sem að meira en 7,5 m af byggingunni eru á lóðarmörkum og vísaði til grenndarkynningar í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Frestur til að skila inn athugasemdum var til 5.ágúst
Grenndarkynnt var eigendum Smáraflatar 9, 10, 12, 13, 14, 41 og 43.
Engar athugasemdir bárust og skoðast tillagan því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Flata.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1906036
02
Rjúpnahæð 13 -deiliskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hæða (Bæjargil II. áfangi)að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir um 90 m2 viðbyggingu á baklóð, utan byggingareits.
Grenndarkynnt var eigendum og íbúum Rjúpnahæðar 10, 11, 12, 14 og 15. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Hæða sbr. 2.mgr.43.gr.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1905356
03
Súlunes 5- Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu sem nær lítillega út fyrir byggingarreit í norðurhorni austurálmu.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verði vikið frá kröfum 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 þar sem að um óverulegt frávik er að ræða.
Vakin er athygli á því að skjólveggir sem eru nær lóðrmörkum en sem nemur hæð girðingar þurfa samþykki lóðarhafa aðliggjandi lóðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1810087
04
Hvannakur 7, dsk br
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Akra að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 2.mgr.43.gr. og.44.gr. Skipulagslaga nr.123/2010. Tillagan gerir ráð fyrir því að ytri byggingarreitur á suðurhlið sé nýttur um 3/4 í stað 1/2 eins og skilmálar heimila.
Grenndarkynnt var eigendum Hvannakurs 5 og 9 og Kaldakurs 6 og 8. Engar athugasemdir bárust og tillagan skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1906101
05
Smiðsbúð 7 - dsk breyting Búða
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Iðnbúðar og Smiðsbúðar að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 2.mgr.43.gr. og 44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Tillagan gerir ráð fyrir lengingu byggingarreits á baklóð. Byggingarreitur á langhlið færist að núverandi byggingu. Grenndarkynnt var eigendum Smiðsbúð 5,8, 9, 10 og 12 og Iðnbúð 4,6 og 8.
Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg deiliskipulagsbreyting.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1907097
06
Asparlundur 10 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi vegna endurbóta íbúðarhúss þar sem m.a. er gert ráð fyrir breytingu á þaki bifreiðargeymslu. Þakið verði uppbyggt með lágum þakhalla.
Skipulagsstjóri vísar umsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.Skipulagslaga þar sem að deiliskipulag telst ekki í gildi. Grenndarkynna skal eigendum Asparlundar 7,8 og 9 sem og Skógarlundar 9 og 11.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.