Beint í efni

Smáraflöt 11 - Umsókn um byggingarleyfi.

Málsnúmer 1905258

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

43. (1904). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gunnari Ólafssyni, kt. 121174-3329, leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi hús að Smáraflöt 11.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

11. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

03

6. fundur

Lögð fram, að lokinni grenndarkynningu tillaga að viðbyggingu við íbúðarhús innan byggingarreits. Húshlið er brotin upp með inngarði fyrir miðjum byggingarreit.
Skipulagsstjóri mat tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata þar sem að meira en 7,5 m af byggingunni eru á lóðarmörkum og vísaði til grenndarkynningar í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Frestur til að skila inn athugasemdum var til 5.ágúst
Grenndarkynnt var eigendum Smáraflatar 9, 10, 12, 13, 14, 41 og 43.
Engar athugasemdir bárust og skoðast tillagan því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Flata.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

10. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

05

4. fundur

Lögð fram tillaga að viðbyggingu við íbúðarhús sem er styttri en tillaga sem lögð var fyrir skipulagsnefnd og er nú innan byggingarreits. Húshlið er brotin upp með inngarði fyrir miðjum byggingarreit.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingun á deiliskipulagi Flata þar sem að meira en 7,5 m af byggingunni eru á lóðarmörkum og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Grenndarkynna skal eigendum Smáraflatar 9, 10, 12, 13, 14, 41 og 43.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.