Beint í efni

43. (1904). fundur

12.11.2019
Bæjarráð Garðabæjar

43. (1904). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

12.11.2019

Kl. 08:00 - 08:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1904109

01

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020 (2020-2023)

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs við afgreiðslu mála samkvæmt dagskrárliðum 1 -2.

Lagt fram yfirlit með samanburði á álagningarreglum sveitarfélaga árið 2019.

Lagt fram yfirlit yfir erindi sem vísað hefur verið til afgreiðslu fjárhagsáætlunar.

Lagt fram nýtt minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga um forsendur fyrir vinnslu fjárheimilda ársins 2020 og fjárhagsáætlana til þriggja ára, dags. 1. nóvember 2019.

Lagt fram yfirlit yfir ábendingar og tillögur sem borist hafa frá íbúum.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1806461

02

Fjárhagsáætlun 2019 - viðauki nr. 9

Fjármálastjóri gerði grein fyrir viðauka nr. 9.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 9 við fjárhagsáætlun 2019 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki 9

Vinnuskóli Garðabæjar

Vegna hækkunar á taxta unglingavinnu sem samþykkt var í vor af bæjarráði og fjölgunar ungmenna

miðað við fyrra ár þarf að hækka fjárheimildir Vinnuskóla Garðabæjar um 15,0 mkr..

Vinnuskóli Garðabæjar 15.000.000 06-299 ?xxxx

Sumarátak vegna vinnu ungs fólk.

Vegna fleiri umsókna um sumarstörf hjá Garðabæ en áætlað var þarf að hækka fjárheimild sumarátaksins um 35,8 mkr.

Sumarátak vegna vinnu ungs fólks 35.800.000 11330-xxxx

Skipulagsvinna.

Vegna mikillar aðkeyptrar vinnu við gerð rammahluta aðalskiplags og deiliskipulagsáætlana er nauðsynlegt að hækka fjárheimildir til skipulagsmála.


Aðalskipulag/rammaskipulag 50.000.000 9220-xxxx

Deiliskipulag 6.000.000 09230-xxxx

Samstarfssamningur um uppbyggingu á Stórásreit.

Vegna samkomulags við Mótás Garðabæ ehf., dags. 27.09.19 um uppbyggingu byggðar á Stórásreit eru færðar til tekna tekjur vegna byggingarréttargjalds að fjárhæð kr. 98.455.500.

Seldur byggingarréttur -98.455.500 31400-0397

Mismunur 8.344.500 Útgjaldaauki

Útgjaldaauka skal mætt með lækkun á varasajóði um sömu upphæð.

Varasjóður -8.344.500 31916-7179

Málsnúmer 1905258

03

Smáraflöt 11 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gunnari Ólafssyni, kt. 121174-3329, leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi hús að Smáraflöt 11.

Málsnúmer 1910209

04

Afgreiðsla umhverfisnefndar um lengingu á hundabanni á varptíma við Vífilsstaðavatn.

Bæjarráð samþykkir tillögu umhverfisnefndar um lengingu á hundabanni á varptíma við Vífilsstaðavatn þannig að hundabann verði á tímabilinu frá 15. apríl til 15. ágúst.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1812088

05

Tilkynning frá Heilsugæslu Garðabæjar um tilnefningu á nýjum fulltrúa i öldungaráð.

Lögð fram tilkynning frá Heilsugæslu Garðabæjar þar sem fram kemur að Margrét Björnsdóttir, hjúkrunarfræðingur hefur verið tilnefnd sem fulltrúi í öldungaráð í stað Guðlínar Jónu Ómarsdóttur.

Málsnúmer 1911108

06

Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi samþykkt stjórnar um fræðslu fyrir starfsmenn sveitarfélaga um málefni fatlaðs fólks, dags. 30.10.19.

Málsnúmer 1911165

07

Bréf Hafnarfjarðar varðandi tillögu að nýju deiliskipulagi við Krýsuvíkurbeg í Krýsuvík, dags. 01.11.19.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Málsnúmer 1911167

08

Tilkynning frá forsætisráðuneytinu um skýrslu framtíðarnefndar, dags. 08.11.19.

Lögð fram.

Málsnúmer 1911091

09

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011 (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn), 66. mál., dags. 04.11.19.

Lagt fram.

Málsnúmer 1911151

10

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um ávana- og fíkniefni (neyslurými), 328. mál., dags. 06.11.2019.

Lagt fram.