Tilkynning frá Heilsugæslu Garðabæjar um tilnefningu á nýjum fulltrúa i öldungaráð.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
43. (1904). fundur
Lögð fram tilkynning frá Heilsugæslu Garðabæjar þar sem fram kemur að Margrét Björnsdóttir, hjúkrunarfræðingur hefur verið tilnefnd sem fulltrúi í öldungaráð í stað Guðlínar Jónu Ómarsdóttur.
Bæjarráð Garðabæjar
02
9. (1870). fundur
Bæjarráð samþykkir erindisbréf fyrir öldungaráð og felur bæjarstjóra að hlutast til um að kalla ráðið saman til fyrsta fundar.
Fylgiskjöl
Fjölskylduráð Garðabæjar
03
2. fundur
Drög að erindisbréfi lagt fyrir Fjölskylduráð til kynningar.
Lagt er fyrir fjölskylduráð mál nr. 1812088 um skipan Öldungaráðs í Garðabæ. Drög að erindsbréfi er lagt fram til kynningar og umræðu.
Fjölskylduráð Garðabæjar
04
1. fundur
Tekið er fyrir mál nr. 1812088, öldungaráð.
Samkvæmt 2. mgr. 38. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga m.s.b., eiga sveitarfélög að skipa öldungaráð sem er samráðsvettvangur innan sveitarfélagsins þar sem fjallað skal um þjónustu við aldraða og framkvæmd öldrunarmála. Áður var í lögunum heimildarákvæði til að skipa sérstakt öldungamálaráð. Garðabær hafði ekki nýtt sér þá heimild en á síðasta kjörtímabili var starfrækt nefnd um málefni eldri borgara. Sú nefnd var lögð niður við upphaf kjörtímabils 2018 -2022. Sum verkefni þeirrar nefnda geta eftir atvikum fallið undir verksvið öldungaráðs en mörg önnur verkefni nefndarinnar verða á borði annarra nefnda s.s. fjölskylduráðs og íþrótta- og tómstundaráðs. Öldungaráð tekur við hlutverki þjónustuhóps aldraðra sem starfaði samkvæmt lögum um málefni aldraðra.
Í öldungaráði sitja þrír fulltrúar kosnir af sveitarstjórn og þrír fulltrúar tilnefndir af félagi eldri borgara, auk eins fulltrúa frá heilsugæslunni.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
1. (841).. fundur
Bæjarstjórn samþykkir að skipa eftirfarandi einstaklinga í öldungaráð Garðabæjar. Öldungaráð er skipað samkvæmt 2. mgr. 38. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, sbr. 8. gr. laga nr. 37/2018.
Almar Guðmundsson, Stekkjarflöt 15.
Bergljót Sigurbjörnsdóttir, Sjávargrund 13B.
Anna Guðrún Hugadóttir, Kirkjulundi 14.
Stefanía Magnúsdóttir, Garðatorgi 7, tilnefnd af Félagi eldri borgara í Garðabæ.
Ástbjörn Egilsson, Löngulínu 12, tilnefndur af Félagi eldri borgara í Garðabæ.
Ólafur Proppé, Vesturbæ, tilnefndur af Félagi eldri borgara á Álftanesi.