2. fundur
2. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
27.02.2019
Kl. 16:00 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - formaður
- Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
- Sigþrúður Ármann - aðalmaður
- Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
- Guðfinna Eyrún Ingjaldsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
Ritari
- Hildigunnur Árnadóttir
Dagskrá
01
Sameiginleg akstursþjónusta fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu
Nýjar reglur um sameiginlega akstursþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu 2019 lagðar fram til kynningar, ásamt athugasemdum ÖBÍ og þjónustulýsingu.
Lagt er fyrir fjölskylduráð mál nr. 1902237 til kynningar er varðar samkomulag sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, dags. 19. maí 2014, um að Strætó bs. verði falinn rekstur sameiginlegrar akstursþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt lögum þar um, sameiginlegum reglum þar að lútandi og ákvörðun sveitarfélaganna um heimildir notenda til þjónustunnar.
02
Kosning fulltrúa í öldungaráð
Drög að erindisbréfi lagt fyrir Fjölskylduráð til kynningar.
Lagt er fyrir fjölskylduráð mál nr. 1812088 um skipan Öldungaráðs í Garðabæ. Drög að erindsbréfi er lagt fram til kynningar og umræðu.
03
Kosning fulltrúa í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks
Drög að erindisbréfi vegna samráðshóps um málefni fatlaðs fólks lagt fram til kynningar.
Lagt er fyrir fjölskylduráð mál nr. 1812089 um skipun samráðshóps um málefni fatlaðs fólks í Garðabæ. Drög að erindsbréfi er lagt fram til kynningar og umræðu.
04
Beiðni um endurskoðun á aðstöðu eldri borgara
Í erindi frá félagi eldri borgara í Garðabæ koma fram áhyggjur af því að félagsmiðstöðin í Jónshúsi muni ekki getað tekið á móti sí stækkandi hópi aldraðra í Garðabæ og er óskað eftir því að stækkunarmöguleikar verði skoðaðir í því sambandi. Eins er óskað eftir endurskoðun á húsgögnum í Jónshúsi en fram kemur að þau húsgögn sem eru í salnum séu orðin úr sér gengin og þörf sé á sérútbúnum stólum ætluðum eldri borgurum.
Lagt er fyrir fjölskylduráð mál nr. 1901193 sem fjallar um beiðni um endurskoðun á aðstöðu eldri borgara í Garðabæ. Fjölskylduráð vísar málinu til Öldungaráðs og jafnframt til starfsmanna öldrunarþjónustu þannig að hægt verði að leggja mat á stöðuna og gera mögulegar úrbætur. Ráðið felur sviðsstjóra að kanna fjárheimildir varðandi endurnýjun húsgagna í Jónshúsi.
05
Samkomulag við Hrafnistu um að taka við rekstri dagþjálfunar á Ísafold
Bæjarráð hefur tekið jákvætt í mögulegt samstarf við Hrafnistu um rekstur dagdvalar með það að markmiði að auka hagkvæmni og samnýtingu við starfsemi hjúkrunarheimilis á Ísafold. Málinu er vísað til umfjöllunar í Fjölskylduráði.
Tekið er til umfjöllunar í fjölskylduráði mál nr. 1901274 um tillögu að samkomulagi við Hrafnistu um rekstur dagdvalar á Ísafold. Er fjölskylduráð jákvætt gagnvart þessum hugmyndum að því gefnu að fyrir liggi staðfesting á að breytt rekstrarform feli í sér aukna hagkvæmni, samnýtingu við starfsemi hjúkrunarheimilis á Ísafold og bætta þjónustu til handa notendum.
06
Íbúakönnun - þjónustukönnun 2018
Íbúakönnun lögð fram til kynningar í Fjölskylduráði.
Lögð er fram til kynningar í Fjölskylduráði þjónustukönnun fyrir árið 2018. Fjölskylduráð fjallar um niðurstöðurnar og tækifæri til úrbóta á sviði félagsþjónustu, öldrunarmála og málefna fatlaðs fólks.
07
Tillaga um eflingu lýðræðislegra vinnubragða í tenglsum við afgreiðslu á fjárhagsáætlun 2019.
Formaður gerir grein fyrir þróun verkefnis um íbúalýðræði.
Formaður rakti stöðu verkefnisins og vinnu starfshóps starfsmanna Garðabæjar um málið. Áformað er að kynna verkefnið fyrir bæjarbúum í mars og að íbúakosning fari fram í síðari hluta maí mánaðar. Fjölskylduráð lýsir yfir ánægju með framgang verkefnisins.