Beint í efni

Samkomulag við Hrafnistu um að taka við rekstri dagþjálfunar á Ísafold

Málsnúmer 1901274

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

6. (846). fundur

Bæjarstjórn samþykkir samkomulag við Hrafnistu um rekstur dagdvalar Ísafoldar frá og með 1. apríl 2019.

Bæjarráð Garðabæjar

02

12. (1873). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samkomulag við Hrafnistu um rekstur dagdvalar Ísafoldar frá og með 1. apríl nk.

Fjölskylduráð Garðabæjar

03

2. fundur

Bæjarráð hefur tekið jákvætt í mögulegt samstarf við Hrafnistu um rekstur dagdvalar með það að markmiði að auka hagkvæmni og samnýtingu við starfsemi hjúkrunarheimilis á Ísafold. Málinu er vísað til umfjöllunar í Fjölskylduráði.

Tekið er til umfjöllunar í fjölskylduráði mál nr. 1901274 um tillögu að samkomulagi við Hrafnistu um rekstur dagdvalar á Ísafold. Er fjölskylduráð jákvætt gagnvart þessum hugmyndum að því gefnu að fyrir liggi staðfesting á að breytt rekstrarform feli í sér aukna hagkvæmni, samnýtingu við starfsemi hjúkrunarheimilis á Ísafold og bætta þjónustu til handa notendum.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

2. (842). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

05

3. (1864.). fundur

Bæjarráð tekur jákvætt í að eiga samstarf við Hrafnistu um rekstur dagdvalar með það að markmiði að auka hagkvæmni og samnýtingu við starfsemi hjúkrunarheimilis á Ísafold. Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra og til umfjöllunar í fjölskylduráði og öldungaráði.

Fylgiskjöl