Beint í efni

6. (846). fundur

04.04.2019
Bæjarstjórn Garðabæjar

6. (846). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu

04.04.2019

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Guðfinnur Sigurvinsson - varamaður
  • Kjartan Örn Sigurðsson - varamaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - forseti bæjarstjórnar
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Gunnar Einarsson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Fundurinn er hljóðritaður.

Gunnar Valur Gíslason, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 21. mars 2019 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 1903043F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 26/3 ´19

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 9. tl,, minnisblað um snjallvæðingu Garðabæjar og lagði fram eftirfarandi bókun:

"Garðabæjarlistinn leggur til að hafist verði handa við að vinna heildstæða digital stefnu fyrir sveitarfélagið þar sem heildarmyndin er teiknuð upp og farið í að áætla fjármagn í verkþætti til að gera innleiðingu mögulega."

Fundargerðin sem er 11 tl. er samþykkt samhljóða.

1.10 - 1901274 - Erindi Hrafnistu um samstarf við rekstur dagdvalar, dags. 17.01.19.

Bæjarstjórn samþykkir samkomulag við Hrafnistu um rekstur dagdvalar Ísafoldar frá og með 1. apríl 2019.

Fylgiskjöl

1.6 - 1902216 - Afgreiðsla skólanefndar á umsókn Hjallastefnunnar um leyfi fyrir skólastarfi á miðstigi.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skólanefndar um að verða við erindi Hjallastefnunnar um leyfi fyrir kennslu á miðstigi. Forsenda fyrir leyfisveitingu er að viðeigandi húsnæði sé til staðar og að þessi aukna starfsemi dragi á engan hátt úr þeirri starfsemi sem fyrir er á leik- og grunnskólastigi

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1903055F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 2/4 ´19.

Kjartan Örn Sigurðsson, ræddi 4. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögur að deiliskipulagi fyrir miðsvæði Álftaness.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 4. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögur að deiliskipulagi fyrir miðsvæði Álftaness.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 3. tl., stöðu framkvæmda 2019.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 3. tl., stöðu framkvæmda 2019 og 1. tl., kynningu á öldrunar- og heimaþjónustu Garðabæjar.

Almar Guðmundsson, ræddi 3. tl., stöðu framkvæmda 2019.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 3. tl., stöðu framkvæmda 2019 og 1. tl., kynningu á öldrunar- og heimaþjónustu Garðabæjar.

Ingvar Arnarson, ræddi 3. tl., stöðu framkvæmda 2019 og 10. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi gerð lýsingar vegna breytinga á aðalskipulagi í tengslum við breytingar á deiliskipulagi Norðurness Álftaness. Í því sambandi óskaði Ingvar eftir upplýsingum um stöðu fráveitumála á Álftanesi.

Almar Guðmundsson, ræddi 4. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögur að deiliskipulagi fyrir miðsvæði Álftaness.

Gunnar Einarsson, ræddi 3. tl., stöðu framkvæmda og 4. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögur að deiliskipulagi fyrir miðsvæði Álftaness.

Sigurður Guðmundsson, ræddi stöðu framkvæmda 2019.

Kjartan Örn Sigurðsson, ræddi 4. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögur að deiliskipulagi fyrir miðsvæði Álftaness.

Ingvar Arnarson, ræddi 4. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögur að deiliskipulagi fyrir miðsvæði Álftaness.

Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., kynningu á öldrunar- og heimaþjónustu Garðabæjar og 4. tl., afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögur að deiliskipulagi fyrir miðsvæði Álftaness.

Fundargerðin sem er 22 tl. er samþykkt samhljóða.

2.11 - 1903120 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn Álftaneskaffi um leyfi til viðbyggingar.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að umsókn um byggingarleyfi við núverandi hús Álftaneskaffi verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Fylgiskjöl

2.12 - 1809246 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Keldugötu nr. 2-20.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna breytinga á lóðum við Keldugötu. Tillagan var auglýst og bárust athugasemdir og liggja fyrir svör við athugasemdum. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.

Fylgiskjöl

2.15 - 1710301 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Haukanes 15.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Arnarness í tilefni umsóknar um stækkun byggingareits fyrir viðbyggingu við núverandi hús að Haukanesi 15, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Haukaness 13, 14, 16, 17 og 18 og Þrastaness 16 og 18.

Fylgiskjöl

2.4 - 1709351 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir miðsvæði Álftaness.

Bæjarstjórn samþykkir eftirtaldar tillögur skipulagsnefndar um deiliskipulag fyrir Breiðumýri, Krók, Helguvík, Skógtjörn og Kumlamýri innan miðsvæðis Álftaness, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. dagskrárliði nr. 5 - 9. Tillögurnar hafa verið auglýstar og frestur til að gera athugasemdir var frá 27. desember 2018 til 7. febrúar 2019. Fjölmargar athugasemdir bárust í athugasemdarfresti. Þær hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir svör við þeim. Tekið hefur verið tillit til athugasemda og liggja fyrir tillögur um breytingar sem fram koma undir einstaka tillögum. Þær teljast ekki breyta upphaflegum tillögum í grundvallaratriðum og þarf því ekki að auglýsa tillögurnar að nýju, sbr. 4. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Lögð er fram fornleifaskráning og húsakönnun. Með gildistöku tillagna að nýju deiliskipulagi falla úr gildi núgildandi deiliskipulög svæðanna.
Samþykktar tillögur skulu sendar Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.

Fylgiskjöl

2.5 - 1811131 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Breiðumýrar á Álftanesi.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Breiðumýri á Álftanesi samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum og deiliskipulagið með eftirfarandi áorðnum breytingum frá auglýstri tillögu:

Íbúðum fækki í Breiðumýri um 18 eða sem nemur 2 íbúðum á hvern húskjarna (úr 270 í 252)
Nýtt ákvæði um að hús í Breiðumýri næst Suðurnesvegi, Norðurnesvegi og Skólatúni verði ekki hærri en 2 hæðir. Þau hús geta hvort heldur verið útfærð sem raðhús eða fjölbýlishús.
Nýtt ákvæði um að hús í norðvesturhorni Hestamýrar nr. 3 verði ekki hærri en 1 hæð innan þess reits sem næst liggur Suðurtúni.
Sérnotafletir íbúða á jarðhæð verði stækkaðir eins og skipulagsnefnd leggur til.
Skjólveggir á sérnotareitum verði útfærðir eins og skipulagsnefnd leggur til.
Hámarkshæð húsa í Lambamýri lækki um 1m (úr 12m í 11m) og í Grásteinsmýri og Hestamýri um 1,5 m (úr 12 m í 10,5 m).
Byggingarreitir í Breiðumýri breikki úr 10 m í 12,5 m.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.

Fylgiskjöl

2.6 - 1811132 - Afgeiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Króks á Álftanesi.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Krók á Álftanesi samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum og deiliskipulagið með eftirfarandi áorðnum breytingum frá auglýstri tillögu:

Íbúðum (raðhúsum) fækki í Króki um 3 (Svanamýri 9 og Gásamýri 23 og 25).
Gásamýri 31, 29 og 27 verði hliðrað til suðurs.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.

Fylgiskjöl

2.7 - 1811133 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Helguvíkur á Álftanesi.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Helguvík á Álftanesi samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum og deiliskipulagið með eftirfarandi áorðnum breytingum frá auglýstri tillögu:

Leiðrétt er misræmi í auglýstri tillögu milli uppdráttar og greinargerðar hvað varðar hámarkshæð einbýlishúsa í Helguvík. Rétt er hæð 7,5 eins og gram kom í greinargerð.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.

Fylgiskjöl

2.8 - 1811134 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Skógtjarnar á Álftanesi.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Skógtjörn á Álftanesi samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum og deiliskipulagið með eftirfarandi áorðnum breytingum frá auglýstri tillögu:

Heiti Holtsbrekku verði breytt í Dalsbrekku.
Tenging Dalsbrekku verði í beinu framhaldi af Tjarnarbrekku.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu um þær.

Fylgiskjöl

2.9 - 1811135 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Kumlamýrar á Álftanesi.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Kumlamýri á Álftanesi samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum og deiliskipulagið með eftirfarandi áorðnum breytingum frá auglýstri tillögu:

Hámarkshæð parhúsa í Kumlamýri lækki um 1,0 m (verði 7,5 m). Göngustígur í gegnum Kumlamýri færist suður fyrir byggðina.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1903045F

03

Fundargerð fjölskylduráðs frá 27/3 ´19.

Almar Guðmundsson, ræddi 3. tl., lýðræðisverkefnið, 4. tl., móttöku flóttamanna og 2. tl., stefnumótun í málefnum barna.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., stefnumótun í málefnum barna og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Garðabæjarlistinn ítrekar mikilvægi þess að innleiðingarferli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna fái rými og fjármögnun við fjárhagsáætlunargerð á komandi hausti. Enda búið að samþykkja innleiðingu sáttmálans í bæjarstjórn fyrr á þessu ári.“

Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., skýrslu um lífskjör og fátækt barna á Íslandi 2004-2016. Þá gerði Ingvar athugasemdir við að ekki hafi verið mættir varamenn á fundinn í forföllum aðalmanna

Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., skýrslu um lífskjör og fátækt barna á Íslandi 2004-2016. Almar gerði grein fyrir ástæðum vegna forfalla nefndarmanna á fundinum.

Gunnar Einarsson, ræddi skýrslu um lífskjör og fátækt barna á Íslandi 2004-2016.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1903038F

04

Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 22/3 ´19.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., minjagarð á Hofsstöðum, 2. tl., þriðjudagsklassík 2019, 3. tl., jazzhátíð, 4. tl., samstarf við Wapp App um skráningu og birtingu gönguleiða, 5. tl., umsókn um styrk til píanónáms, 7. tl., verkefni menningar- og safnanefndar og nefndi í því sambandi undirbúning að gerð nýs samning við mennta- og menningarmálaráðuneytið um starfsemi Hönnunarsafn Íslands.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 3. tl., jazzhátíð Garðabæjar og 4. tl., samstarf við Wapp App um skráningu og birtingu gönguleiða

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1903052F

05

Fundargerð skipulagsnefndar frá 29/3 ´19.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1903007F

06

Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 19/3 ´19.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 3. tl., úthlutun styrkja úr þróunarsjóði grunnskóla og 2. tl., umsókn um leyfi fyrir skólastarfi á miðstigi við Barnaskóla Hjallstefnunnar á Vífilsstöðum. Sara Dögg lagði fram svohljóðandi bókun:

„Garðabæjarlistinn fagnar stuðningi við fyrirhugaðan vöxt Hjallastefnunnar við grunnskólann þar sem áform eru um að vaxa upp á miðstigið með von um að áformin verði farsæl því valfrelsið skiptir máli.“

Kjartan Örn Sigurðsson, ræddi 3. tl., úthlutun styrkja úr þróunarsjóði grunnskóla.

Björg Fenger, ræddi 3. tl., úthlutun styrkja úr þróunarsjóði grunnskóla.

Gunnar Einarsson, ræddi 2. tl., umsókn um leyfi fyrir skólastarfi á miðstigi við Barnaskóla Hjallstefnunnar á Vífilsstöðum og 3. tl., úthlutun styrkja úr þróunarsjóði grunnskóla.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1903033F

07

Fundargerð öldungaráðs frá 20/3 ´19.

Almar Guðmundsson, ræddi fyrsta fund öldungaráðs og fjallaði um verkefni ráðsins.

Guðfinnur Sigurvinsson, fagnaði skipun öldungaráðs og ræddi málefni eldri borgara.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1901420

08

Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 25/3 ´19.

Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., starfslok Guðmundar Einarsson, og þakkaði honum gott samstarf í starfi framkvæmdastjóra heilbrigðiseftirlitsins til 35 ára.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1901316

09

Fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 29/3 ´19.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1904035

10

Fundargerð svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins SSK frá 22/3 ´19.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., kynningu á nýju deiliskipulagi fyrir Hafnarfjarðarveg í tengslum við endurbætur á gatnamótum við Vífilsstaðaveg og Lyngás.

Kjartan Örn Sigurðsson, kvaddi sér hljóðs og hvatti til aukins samstarfs sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu við ákvörðun vetrarleyfa í skólum.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1811108

11

Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs frá 27/2 ´19

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1901407

12

Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 15/3 ´19.

Björg Fenger, ræddi 3. tl., áhættugreiningu og 5. tl. önnur mál ? fund með hagsmunaaðilum.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 4. tl., akstursþjónustu fatlaðs fólks.

Gunnar Einarsson, ræddi 4. tl., akstursþjónustu fatlaðs fólks og gerði grein fyrir stöðu málsins.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1904054

13

Tillaga Garðabæjarlistans um aukið gagnsæi við framkvæmdir verkefna.

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Bæjarstjórn samþykkir að birta stöðu verkefna sem eru í framkvæmdaferli með tímaás á heimasíðu Garðabæjar.“

Greinagerð

Með þessari aðgerð auðveldar Garðabær íbúum að afla sér upplýsinga um þau verkefni sem eru í framkvæmd. Aukið upplýsingaflæði og gagnsærri stjórnsýsla er ærið verkefni. Að gera verkáætlanir sýnilegar og framgang verkefna gerir íbúa meðvitaðari um þau verkefni sem eru á hendi sveitarfélagsins en um leið veitir markviss gagnsæ upplýsingagjöf stjórnsýslunni mikilvægt aðhald og styður við agaða stjórnsýslu. Þegar farið er með opinbert fé er mikilvægt að halda upplýsinum að skattgreiðendum þ.e. íbúunum sjálfum.

Gunnar Einarsson, ræddi framlagða tillögu.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju framlagða tillögu.

Kjartan Örn Sigurðsson, ræddi framlagða tillögu.

Gunnar Einarsson, ræddi að nýju framlagða tillögu og lagði til að vísa tillögunni til bæjarstjóra.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju framlagða tillögu.

Gunnar Einarsson, ræddi að nýju framlagða tillögu.

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi framlagða tillögu.

Ingvar Arnarson, ræddi framlagða tillögu.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa tillögunni til bæjarstjóra.

Málsnúmer 1904052

14

Tillaga Garðabæjarlistans um forvarnarnámskeið gegn kvíða.

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagð fram eftirfarandi tillögu.

„Bæjarstjórn felur fræðslusviði að skoða mögulegar leiðir til þess að bjóða upp á viðurkennda fjarþjónustu í forvarnarskyni á unglingastigi í formi forvarnarnámskeiða gegn kvíða fyrir ungmenni. Að í fjárhagsáætlun fyrir árið 2020 verði gert ráð 1,5 mkr. í formi styrkjar til þróunarvinnu og aðlögun námskeiðs að hluta og niðurgreiðslu námskeiðs fyrir aldurshópinn 14-16 ára eða unglingastig grunnskólans í gegnum fjarþjónustu.“



Greinagerð

Tillagan er viðbragð við niðurstöðu könnunar Rannsóknar og greiningar um vaxandi kvíðaeinkenna meðal ungmenna í Garðabæ, sérstaklega meðal stúlkna með því að auðvelda aðgengi allra ungmenna að fyrstu hjálp vegna líðan.

Að auðvelda aðgengi að fyrstu hjálp getur skipt sköpum og í því falist mikið forvarnargildi. Því væri afar metnaðarfullt að fara af stað með tilraunarverkefni þar sem vaxandi kvíði er að mælast hjá t.d. stúlkum í Garðabæ. Það væri afar ábyrgt af bæjarstjórn að bregðast hratt við og auðvelda aðgengi að fyrstu hjálp og sjá hvaða áhrif það hefur. En fyrsta hjálp er talin gríðarlega mikilvæg sem inngrip til þess að koma í veg fyrir alvarlegri vanda og þróun á einkennum sem mögulega er hægt að koma í veg fyrir. Almennt er kallað eftir frekari úrræðum í formi fyrstu hjálpar eins og það er kallað til þess einmitt að sporna við alvarlegri vanda sem oft verður raunin þegar ekkert er að gert. En eins og greint hefur verið frá ber á vaxandi einkennum á þunglyndi og kvíða meðal ungmenna í Garðabæ en meðal ungmennanna í 9. og 10. bekk greina 9,11% stúlkna frá þunglyndiseinkennum og 5% drengja.

3,52% stúlkna greina frá kvíðaeinkennum og 1,48% drengja. 20% stúlknanna skora hæst á kvíðakvarðanum.

Fjarþjónusta er fyrir margt mjög snjöll leið og góð viðbót við þá stoðþjónustu sem boðið er upp á í dag. Það sem gerir hana eftirsóknaverða eru m.a. þeir þættir sem hún hefur bein áhrif á sem eru, tímasparnaður, minni kostnaður og auðveldara aðgengi fyrir t.d ungt fólk til þess að leita sér aðstoðar þegar á þarf að halda.

Björg Fenger, ræddi framlagða tillögu.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi framlagða tillögu.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi framlagða tillögu.

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi framlagða tillögu.

Gunnar Einarsson, ræddi framlagða tillögu og lagði til að vísa tillögunni til fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa tillögunni til fjárhagsáætlunar 2020


Málsnúmer 1806461

15

Lántaka samkvæmt fjárhagsáætlun 2019.

Gunnar Einarsson, gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 500.000.000.

"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir hér með á bæjarstjórnarfundi að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 500.000.000 með lokagjalddaga þann 5. apríl 2034, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem bæjarstjórn hefur kynnt sér. Bæjarstjórn samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar) standi tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til fjármögnunar á byggingu grunnskóla í Urriðaholti og viðbyggingu við grunnskóla á Álftanesi sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Gunnari Einarssyni, bæjarstjóra, kt. 250555-4079, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns."

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 500.000.000, fimmhundruðmilljónirkróna.

Málsnúmer 1811129

16

Ársreikningur Garðabæjar 2018 (síðari umræða).

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri kvaddi sér hljóðs og ræddi niðurstöður ársreiknings. Bæjarstjóri lagði til við bæjarstjórn að samþykkja ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2018.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls um ársreikning og lýsti ánægju með niðurstöðu reikningsins sem sýnir trausta fjárhagstöðu bæjarins. Gunnar Valur færði starfsfólki bæjarins þakkir fyrir þeirra þátt í

góðum og traustum rekstri Garðabæjar.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða við síðari umræðu ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2018 samkvæmt 61. gr. sveitarstjórnalaga nr. 138/2011, sbr. 2. tl. 1. mgr. 18. gr. laganna.

Samþykktinni til staðfestingar er ársreikningurinn undirritaður af bæjarfulltrúum.