9. (1870). fundur
9. (1870). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
05.03.2019
Kl. 08:00 - 08:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1807176
01
Urriðaholtsstræti 24 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita U24 ehf., kt. 650117-1070 leyfi til að byggja fjölbýlishús með 18 íbúðum ásamt atvinnurými á jarðhæð að Urriðaholtsstræti 24.
Málsnúmer 1901123
02
Garðatorg 1 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita RA 5 ehf., kt. 590404-2410 leyfi fyrir breytingu á útliti og innra skipulagi að Garðatorgi 1.
Málsnúmer 1812088
03
Erindisbréf fyrir öldungaráð.
Bæjarráð samþykkir erindisbréf fyrir öldungaráð og felur bæjarstjóra að hlutast til um að kalla ráðið saman til fyrsta fundar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1812089
04
Erindisbréf fyrir samráðshóp um málefni fatlaðs fólks.
Bæjarráð samþykkir erindisbréf fyrir samráðshóp um málefni fatlaðs fólks og felur bæjarstjóra að hlutast til um að kalla ráðið saman til fyrsta fundar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1810255
05
Erindi Garðasóknar varðandi viðhaldsframkvæmdir í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli, dags. 18.10.18.
Bæjarráð samþykkir að framkvæmdir við viðhald á steypu og gluggum verði boðnar út samkvæmt útboðslýsingu sem byggir á ástandsskoðun Verkís, dags. í ágúst 2018.
Málsnúmer 1902059
06
Reglur um rafræna vöktun, reglur um meðferð trúnaðarupplýsinga og reglur um fundarritun og birtingu gagna með fundargerðum.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi reglur til gilda í starfsemi Garðabæjar.
Reglur Garðabæjar um rafræna vöktun öryggismyndavéla.
Reglur Garðabæjar um meðferð trúnaðarupplýsinga, þ.m.t. persónuupplýsinga.
Reglur Garðabæjar um birtingu gagna með fundargerðum á vef Garðabæjar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1902398
07
Bréf Sambands ísl. sveitarfélaga um íbúasamráð, dags. 28.02.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1810028
08
Lýðræðisverkefnið.
Upplýsingastjóri kynnti minnisblað um lýsingu á verkefninu Betri Garðabær sem er samráðsverkefni íbúa og stjórnsýslu um forgangsröðun og úthlutun fjármagns til smærri framkvæmda í nærumhverfi íbúa í Garðabæ. Verkefnið er hugsað sem þróunarverkefni sem þróast áfram með reynslu og árangri, eftir fyrstu umferð verður verkefnið og verkefnalýsing þess endurskoðuð. Í verkefnalýsingunni koma fram helstu dagsetningar, markmið og áfangar. Gert er ráð fyrir að kosning standi yfir frá 23. maí til og með 3. júní 2019.
Bæjarráð samþykkir að áfram verði unnið að málinu á grundvelli framlagðs minnisblaðs.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1903012
09
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um endurskoðun á lagaumhverfi er varðar uppkaup á landi, 184. mál., dags. 27.02.19.
Lagt fram.
Málsnúmer 1903013
10
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um hollustuhætti, mengunarvarnir o.fl. (stjórnvaldssektir o.fl.), 542. mál., dags. 27.02.19.
Lagt fram.
Málsnúmer 1903016
11
Bréf Skiðasvæðanna um framkvæmdaáætlun vegna uppbyggingar á mannvirkjum og snjóframleiðslu, dags. 05.02.19.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja framkvæmdaáætlun vegna uppbyggingar á mannvirkjum og snjóframleiðslu í Bláfjöllum árin 2019 - 2024.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1902222
12
Uppbygging í Vetrarmýri.
Bæjarráð samþykkir að leggja til bæjarstjórn að samþykkja samning við Fasteignaþróunarfélagið Spildu ehf., um ráðgjöf við þarfa- og kostgæfnigreiningu vegna uppbyggingar byggðar í Vetrarmýri. Samningurinn er til þriggja mánaða.