18. (1879). fundur
18. (1879). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
14.05.2019
Kl. 08:00 - 09:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1905085
01
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi tillögu að samkomulagi aðildarsveitarfélaga SSH um undirbúning að lagningu Borgarlínu, dags. 07.05.19. (Framkvæmdastjóri SSH kynnir málið)
Á fund bæjarráð mættu Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri SSH og Hrafnkell Proppé, svæðisskipulagsstjóri og gerðu grein fyrir tillögu stjórnar SSH um að aðildarsveitarfélögin geri samning sín á milli um samstarf um tæknilegan og fjárhagslegan undirbúning að lagningu hágæða almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu og gangi sameiginlega til samninga við Vegagerðina um undirbúning málsins.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarfulltrúarnir Björg Fenger, Gunnar Valur Gíslason og Harpa Þorsteinsdóttir sátu fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Fylgiskjöl
- Borgarlína-Samningur_Vegagerd.pdf
- Samningur END.pdf
- Minnisblað 6 maí 2019.pdf
- Samningur SSH fylgiskjal 1.pdf
- Samningur SSH fylgiskjal 5.pdf
- Samningur SSH fylgiskjal 3.pdf
- Samningur SSH fylgiskjal 4.pdf
- Tillaga að samkomulagi aðildarsveitarfélaga SSH um tæknilegan og fjárhagslegan undirbúning að lagningu hágæða almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu (Borgarlína).pdf
Málsnúmer 1901301
02
Erindi Stjörnunnar um endurnýjun samstarfssamnings. (Fulltrúar Stjörnunnar kynna málið)
Á fund bæjarráðs mættu Sigurður Bjarnason, formaður Stjörnunnar og Ása Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri. Gerðu þau grein fyrir starfsemi félagsins, stefnumótun til lengri tíma og árangri af styrkveitingu til þróunarverkefnis. Þá gerðu þau grein fyrir reglum um úthlutun afreksstyrkja til deilda.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra.
Bæjarfulltrúarnir Björg Fenger og Harpa Þorsteinsdóttir sátu fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Málsnúmer 1806461
03
Fjárhagsáætlun 2019 - viðaukar nr. 2 og nr. 3.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri mætti á fund bæjarraðs og gerði grein fyrir viðauka nr. 2 og nr. 3.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 2 og nr. 3 við fjárhagsáætlun 2019 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011
Viðauki 2
Breyting var gerð á rekstri vallarhúss á Álftanesi frá og með haustinu 2018. Húsið var áður nýtt sem tómstundaheimili fyrir nemendur Álftanesskóla, en er nú notað sem þjónustuhús við íþróttavellina á Álftanesi. Húsið hefur verið endurbætt og lagfært til að geta tekið við því hlutverki sem því var upphaflega ætlað. Rekstur hússins var vanmetin við fjárhagsáætlunargerð og er leiðréttur með viðauka.
Rafmagn kr. 1.045.000 06622-2511
Heitt vatn kr. 180.000 06622-2521
Kalt vatn kr. 50.000 06622-2523
Öryggisgæsla húsvarsla kr. 50.000 06622-4370
Fasteigna-bún.leiga eignasjóður kr. 5.875.000 06622-4411
Samtals kr. 7.200.000
Kostnaðarauka skal mætt með lækkun á varasjóði um sömu upphæð
Varasjóður kr. 7.200.000 (lækkun) 31916-7179
Viðauki 2:
Fjárhagsáætlun ársins 2019 gerir ráð fyrir 1.445 millj. kr. lántöku. Upphafleg áætlun gerði ráð fyrir 1.400 m.kr. lántöku á árinu auk þess sem samþykktur hefur verið viðauki 1 við fjárhagsáætlun sem gerir ráð fyrir 45 m.kr. viðbót vegna kaupa á landi á Álftanesi. Lagt er til að hækka lántöku ársins um 55 m.kr. vegna góðra lánskjara Lánasjóðs sveitarfélaga og mikilla framkvæmda á árinu. Lántaka verður þá samtals 1.500 mkr.
Lántaka kr. 55.000.000 fært á efnahag.
Málsnúmer 1806461
04
Fjárhagsáætlun 2019 - lántaka.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir tillögu um lántöku, hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 500.000.000, verðtryggt með 2,19% föstum vöxtum. Lánið er jafngreiðslulán til 15 ára.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Málsnúmer 1905109
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur. (Korpulína)
Lögð fram.
Málsnúmer 1904004
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur. (Esjumelar)
Lögð fram.
Málsnúmer 1805169
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur. (Sjómannaskólareitur og Veðurstofuhæð)
Lögð fram.
Málsnúmer 1812022
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir Garðahraun efra-fólkvangur.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi fyrir Garðahraun efra ? fólkvangur.
Eftirfarandi breytingar hafa verið gerðar á þeirri tillögu sem kynnt var.
Að aðalstígur sem sýndur er hjá Hádegishóli verði breytt í stikaða leið.
Að tenging við Molduhraun á móts við Vesturhraun 5 verði felld út sem aðalstígur.
Að malarstígar á uppdrætti verði öllum breytt í stikaðar leiðir.
Að sett verði ákvæði um það í skilmálum að heimilt sé að gera lítilsháttar breytingar á stikuðum leiðum sem auðvelda fólki aðgengi, svo sem með því að fjarlægja steina eða leggja hraunhellur sem upp- og niðurstigi á stöku stað.
Að heimilt verði að útfæra stikaða leið á stöku stað sem malarslóða ef sýnt er fram á að umferð gangandi fólks sé að valda skemmdum á náttúrulegum gróðri.
Málsnúmer 1806394
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi grenndarkynningu umsóknar um byggingarleyfi að Lambaga 5.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að umsókn um byggingarleyfi við núverandi hús við Lambhaga 5 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1903293
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi 3. áf. norðurhluta Urriðaholts varðandi lóðina við Urðargötu 1.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn lóðarhafa að Urðargötu 1 um breytingu á ákvæðum deiliskipulags 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts er varðar þakhalla.
Málsnúmer 1905084
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi erindi eiganda Grænagarðs á Garðaholti.
Lögð fram.
Málsnúmer 1904058
12
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi erindi lóðarhafa að Hrauntungu við Álftanesveg.
Lögð fram.
Málsnúmer 1810087
13
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi fyrirspurn lóðarhafa að Hvannakri 7.
Lögð fram.
Málsnúmer 1805161
14
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Haukanes 10.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness í tilefni umsóknar lóðarhafa að Haukanesi 10 um stækkun byggingarreits, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Málsnúmer 1902346
15
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts og Vetrarmýrar.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts og Vetrarmýrar vegna viðbyggingar við golfskála GKG verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Málsnúmer 1710090
16
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda er varðar svæði við Ægisgrund.
Eftirfarandi breytingar hafa verið gerðar á þeirri tillögu sem kynnt var.
Að lóð fyrir einbýlishús við Þórsmörk verði felld út úr tillögunni.
Að kveðið verði á um skýra aðgreiningu á göngustíg og aðkomu að Þórsmörk frá Ægisgrund.
Að lögun og stærð nýrra íbúðarhúsalóða og byggingarreita við Ægisgrund verði sambærileg við núverandi lóðir. Gera skal ráð fyrir 3 bílastæðum á lóð.
Að gert verði ráð fyrir grænu svæði milli Njarðargrundar og nýrra húsa og sett kvöð um gróðurbelti.
Samhliða skal auglýst tillaga að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 samkvæmt 2. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Málsnúmer 1809192
17
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi á svæði á Grundum.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr 36. gr. sömu laga tillögu að breytingu á aðalskipulagi garðabæjar 2016 - 2030 vegna svæðis á grundum.
Samhliða skal auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda samkvæmt 2. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Málsnúmer 1809189
18
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að endurskoðun deiliskipulags fyrir Molduhraun.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa endurskoðað deiliskipulag fyrir Molduhraun samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Málsnúmer 1903082
19
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Málsnúmer 1905028
20
Tilkynning frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu um ársrit 2018, dags. 02.05.19
Lögð fram.
Málsnúmer 1905060
21
Bréf fjármála- og efnahagsráðuneytis um breytingu er varðar sveitarfélög samkvæmt lögum um opinber innkaup, dags. 03.05.19.
Málsnúmer 1905087
22
Bréf Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins um starfsáætlun almannavarna, dags. 08.05.19.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að boða slökkviliðsstjóra á fund bæjarráðs til að kynna nánar starfsáætlun almannavarna.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1905088
23
Tölvupóstur Svavars Daðasonar varðandi umferð hjólreiðamanna um Súlunes, dags. 01.05.19.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu skoðunar hjá til tækni- og umhverfissviði.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1905089
24
Bréf Klúbbsins Geysis um styrk, dags. 07.05.19.
Málsnúmer 1905110
25
Bréf Garðasóknar varðandi minnismerki um Jón Vídalín, dags. 08.05.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1905112
26
Bréf mennta- og menningarmálaráðherra varðandi stefnumótun í íþróttamálum 2019-2030, dags. 02.05.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til kynningar í íþrótta- og tómstundaráði.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1905124
27
Bréf Vegagerðarinnar varðandi umsókn um framlag til sjóvarna, dags. 06.05.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu hjá tækni- og umhverfissviði.
Málsnúmer 1904166
28
Afgreiðsla menningar- og safnanefndar varðandi tillögu að vali á bæjarlistamanni Garðabæjar 2019.
Bæjarráð samþykkir tillögu menningar- og safnanefndar um tilnefningu á bæjarlistamanni Garðabæjar árið 2019. Tilnefningin verður tilkynnt á menningaruppskeruhátíð miðvikudaginn 22. maí nk. kl. 17:30 í Sveinatungu.