Beint í efni

Drög að samkomulagi aðildarsveitarfélaga SSH um tæknilegan og fjárhagslegan undirbúning að lagningu Borgarlínu

Málsnúmer 1905085

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

8. (848). fundur

Gunnar Einarsson, gerði grein fyrir tillögu að samkomulagi um samstarf um tæknilegan og fjárhagslegan undirbúning að lagningu hágæða almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu (Borgarlínu).

,,Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir samkomulag um tæknilegan og fjárhagslegan undirbúning 2019-2020 vegna lagningu Borgarlínu enda liggi fyrir samkomulag allra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Framlag sveitarfélaganna kr. 500 mkr er með fyrirvara, sbr. 5. tl. samkomulagsins þar sem fram kemur að gert er ráð fyrir sama framlagi frá ríki og að samkomulag náist milli ríkis og sveitarfélaga um uppbyggingu samgangna á höfuðborgarsvæðinu til ársins 2033."

Bæjarstjórn samþykkir að leggja fram eftirfarandi bókun við afgreiðslu málsins.

Bæjarstjórn Garðabæjar fagnar fyrirliggjandi samningum um undirbúning að lagningu Borgarlínunnar. Um er að ræða tæknilegan og fjárhagslegan undirbúning að hágæða almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu og fyrirkomulag og verkefnaskiptingu Vegagerðarinnar og SSH vegna þessa. Verkefnið er mikilvægur liður í því samkomulagi sem unnið er að á milli ríkisins og sveitarfélaganna um uppbyggingu samgangna á höfuðborgarsvæðinu til ársins 2033. Samkvæmt erindisbréfi starfshóps sem vinnur að því er markmiðið að komast að samkomulagi um fjármögnun 102 milljarða fjárfestingaráætlunar í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu, eða um 7 milljarða á ári í 15 ár. Uppbygging samgangna á höfuðborgarsvæðinu, stofnbrauta, almenningssamgangna og hjóla- og göngustíga, er afar brýnt viðfangsefni til að ná fram markmiðum um betra umferðarflæði, meira öryggi vegfarenda og til að draga úr mengun á svæðinu. Samþykkt á fyrirliggjandi samkomulagi um næstu skref hvað almenningssamgöngurnar varðar er mikilvæg en framhald heildaruppbyggingar samgöngumannvirkjanna ræðst síðan af því hvort ásættanlegt samkomulag náist á milli ríkis og sveitarfélaga.

Bæjarráð Garðabæjar

02

18. (1879). fundur

Á fund bæjarráð mættu Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri SSH og Hrafnkell Proppé, svæðisskipulagsstjóri og gerðu grein fyrir tillögu stjórnar SSH um að aðildarsveitarfélögin geri samning sín á milli um samstarf um tæknilegan og fjárhagslegan undirbúning að lagningu hágæða almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu og gangi sameiginlega til samninga við Vegagerðina um undirbúning málsins.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarfulltrúarnir Björg Fenger, Gunnar Valur Gíslason og Harpa Þorsteinsdóttir sátu fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Fylgiskjöl