8. (848). fundur
8. (848). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu
16.05.2019
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - forseti bæjarstjórnar
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Guðfinnur Sigurvinsson - varamaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - aðalmaður
- Gunnar Einarsson - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Valborg Ösp Á. Warén - varamaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður.
Gunnar Valur Gíslason, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 2. maí 2019 er lögð fram.
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 7/5'19.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 7. tl. og 9 tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Gálgahrauns og Garðahrauns efra og vakti athygli á að um er að ræða tillögu um forkynningu og íbúafund sem þegar hefur verið haldinn.
Fundargerðin sem er 20 tl. er samþykkt samhljóða.
1.7 - 1710244 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir Gálgahraun.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að tillaga að nýju deiliskipulagi Gálgahrauns verði kynnt íbúum og hagsmunaaðilum á íbúafundi, sbr. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
1.8 - 1706258 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um lokun á svalarými við Hraungötu 8.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að heimila útgáfu byggingarleyfis vegna lokunar svalarýmis einbýlishússins að Hraungötu 8 en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
1.9 - 1812022 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir Garðahraun efra.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að tillaga að nýju deiliskipulagi Garðahrauns efra verði kynnt íbúum og hagsmunaaðilum á íbúafundi, sbr. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
02
Fundargerð bæjarráðs frá 14/5'19.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 8. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir Garðahraun og gerði grein fyrir breytingum sem lagðar eru til við þá tillögu sem kynnt var.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 8. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir Garðahraun og sagði frá afgreiðslu málsins í umhverfisnefnd þar sem fram kom stuðningur við tillöguna með áorðnum breytingum.
Ingvar Arnarson, ræddi 8. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir Garðahraun.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 8. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir Garðahraun.
Almar Guðmundsson, ræddi 2. tl., erindi Stjörnunnar um endurnýjun samstarfssamnings.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 2. tl., erindi Stjörnunnar um endurnýjun samstarfssamnings.
Björg Fenger, ræddi 2. tl., erindi Stjörnunnar um endurnýjun samstarfssamnings og 26. tl., bréf mennta- og menningarmálaráðherra um íþróttastefnu.
Gunnar Einarsson, ræddi 2.tl., erindi Stjörnunnar um endurnýjun samstarfssamnings. Gunnar vakti athygli á að á aðalfundi Stjörnunnar sem haldinn var 7. maí sl. var bæjarritara veitt heiðursviðurkenning, gullstjörnu með lárviðarsveig en þeir sem þá viðurkenningu hljóta teljast heiðursfélagar Stjörnunnar. Þá ræddi Gunnar 15. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts Vetrarmýrar og sagði frá fundi með íbúum Hnoðraholts um skipulagsmál.
Fundargerðin sem er 28 tl. er samþykkt samhljóða.
2.10 - 1903293 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi 3. áf. norðurhluta Urriðaholts varðandi lóðina við Urðargötu 1.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn lóðarhafa að Urðargötu 1 um breytingu á ákvæðum deiliskipulags 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts er varðar þakhalla.
Fylgiskjöl
2.14 - 1805161 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Haukanes 10.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness í tilefni umsóknar lóðarhafa að Haukanesi 10 um stækkun byggingarreits, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Fylgiskjöl
2.16 - 1710090 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda er varðar svæði við Ægisgrund.
Eftirfarandi breytingar hafa verið gerðar á þeirri tillögu sem kynnt var.
Að lóð fyrir einbýlishús við Þórsmörk verði felld út úr tillögunni.
Að kveðið verði á um skýra aðgreiningu á göngustíg og aðkomu að Þórsmörk frá Ægisgrund.
Að lögun og stærð nýrra íbúðarhúsalóða og byggingarreita við Ægisgrund verði sambærileg við núverandi lóðir. Gera skal ráð fyrir 3 bílastæðum á lóð.
Að gert verði ráð fyrir grænu svæði milli Njarðargrundar og nýrra húsa og sett kvöð um gróðurbelti.
Samhliða skal auglýst tillaga að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 samkvæmt 2. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 36. gr. sömu laga tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016 - 2030 vegna svæðis á grundum.
Samhliða skal auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda samkvæmt 2. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Fylgiskjöl
2.17 - 1809192 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi á svæði á Grundum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 36. gr. sömu laga tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016 - 2030 vegna svæðis á grundum.
Samhliða skal auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda samkvæmt 2. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Fylgiskjöl
2.18 - 1809189 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að endurskoðun deiliskipulags fyrir Molduhraun.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa endurskoðað deiliskipulag fyrir Molduhraun samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Fylgiskjöl
2.19 - 1903082 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Fylgiskjöl
2.3 - 1806461 - Fjárhagsáætlun 2019 - viðaukar nr. 2 og nr. 3.
Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 2 og nr. 3 við fjárhagsáætlun 2019 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 2.
Breyting var gerð á rekstri vallarhúss á Álftanesi frá og með haustinu 2018. Húsið var áður nýtt sem tómstundaheimili fyrir nemendur Álftanesskóla, en er nú notað sem þjónustuhús við íþróttavellina á Álftanesi. Húsið hefur verið endurbætt og lagfært til að geta tekið við því hlutverki sem því var upphaflega ætlað. Rekstur hússins var vanmetinn við afgreiðslu fjárhagsáætlunar og er nú leiðréttur með viðauka.
Rafmagn kr. 1.045.000 06622-2511
Heitt vatn kr. 180.000 06622-2521
Kalt vatn kr. 50.000 06622-2523
Öryggisgæsla húsvarsla kr. 50.000 06622-4370
Fasteigna-bún.leiga eignasjóður kr. 5.875.000 06622-4411
Samtals kr. 7.200.000
Kostnaðarauka skal mætt með lækkun á varasjóði um sömu upphæð
Varasjóður kr. 7.200.000 (lækkun) 31916-7179
Viðauki 3.
Fjárhagsáætlun ársins 2019 gerir ráð fyrir 1.445 mkr. lántöku. Upphafleg áætlun gerði ráð fyrir 1.400 mkr. lántöku á árinu auk þess sem samþykktur hefur verið viðauki 1 við fjárhagsáætlun sem gerir ráð fyrir 45 mkr. viðbót vegna kaupa á landi á Álftanesi. Lagt er til að hækka lántöku ársins um 55 mkr. vegna góðra lánskjara Lánasjóðs sveitarfélaga og mikilla framkvæmda á árinu. Lántaka samkvæmt fjárhagsáætlun verður þá samtals 1.500 mkr.
Lántaka kr. 55.000.000 færð á efnahag.
Fylgiskjöl
2.8 - 1812022 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir Garðahraun efra-fólkvangur.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi fyrir Garðahraun efra - fólkvangur.
Eftirfarandi breytingar hafa verið gerðar á þeirri tillögu sem kynnt var.
Að aðalstígur sem sýndur er hjá Hádegishóli verði breytt í stikaða leið.
Að tenging við Molduhraun á móts við Vesturhraun 5 verði felld út sem aðalstígur.
Að malarstígar á uppdrætti verði öllum breytt í stikaðar leiðir.
Að sett verði ákvæði um það í skilmálum að heimilt sé að gera lítilsháttar breytingar á stikuðum leiðum sem auðvelda fólki aðgengi, svo sem með því að fjarlægja steina eða leggja hraunhellur sem upp- og niðurstigi á stöku stað.
Að heimilt verði að útfæra stikaða leið á stöku stað sem malarslóða ef sýnt er fram á að umferð gangandi fólks sé að valda skemmdum á náttúrulegum gróðri.
Fylgiskjöl
2.9 - 1806394 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi grenndarkynningu umsóknar um byggingarleyfi að Lambaga 5.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að umsókn um byggingarleyfi við núverandi hús við Lambhaga 5 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
03
Fundargerð fjölskylduráðs frá 24/4'19.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og bar upp fyrirspurn um stöðu mála varðandi undirbúning við móttöku flóttamanna.
Gunnar Einarsson ræddi sama mál og svaraði fyrirspurn.
Fundargerðin er lögð fram.
04
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 10/5'19.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., jazzhátíð Garðabæjar og lýsti ánægju með undirbúning og framkvæmd hátíðarinnar. Gunnar Valur færði Sigurði Flosasyni, listrænum stjórnanda hátíðarinnar sérstakar þakkir fyrir hans hlutdeild. Þá ræddi Gunnar Valur 2. tl., samstarf við Grósku, 5. tl. menningaruppskeruhátíð 2019 og 6. tl., fyrirhugaðan sameiginlegan fund menningar- og safnanefndar og stjórn Hönnunarsafns Íslands.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 3. tl., hvatningarsjóð ungra listamanna og 2. tl., samstarf við Grósku. Áslaug Hulda fjallaði sérstaklega um samstarf við Grósku um Jónsmessugleði.
Björg Fenger, 3. tl., hvatningarsjóð ungra listamanna og 2. tl., samstarf við Grósku. Björg lýsti sérstakri ánægju með vel heppnaða sumarsýningu Grósku á göngugötunni við Garðatorg.
Almar Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs og vakti athygli á vorsýninu eldri borgara í Garðabæ í Jónshúsi.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 2. tl., samstarf við Grósku og Jónsmessugleðina.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., samstarf við Grósku og Jónsmessugleðina.
Fundargerðin er lögð fram.
05
Fundargerð skipulagsnefndar frá 2/'19.
Sigurður Guðmundsson, ræddi almennt um helstu verkefni skipulagsnefndar og vék sérstaklega að því verkefni að endurnýja og staðfesta deiliskipulög fyrir eldri hverfi.
Fundargerðin er lögð fram.
07
Fundargerð SHS frá 3/5'19.
Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., félagsdóm, 4. tl., búsetu í atvinnuhúsnæði og 6. tl. önnur mál - viðbragðstíma slökkviliðsins í alþjóðlegu samhengi.
Gunnar Einarsson, ræddi sömu mál og svaraði fyrirspurnum.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 4. tl., búsetu í atvinnuhúsnæði.
Fundargerðin er lögð fram.
08
Fundargerð SSH frá 6/5'19.
Ingvar Arnarson, ræddi 7. tl., ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk.
Björg Fenger, ræddi sama mál og svaraði fyrirspurn.
Gunnar Einarsson, ræddi 7. tl., ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk.
Fundargerðin er lögð fram.
09
Fundargerð Strætó bs frá 3/5'19.
Björg Fenger, ræddi 4. tl., persónuverndarstefnu Strætó bs. og 5. tl., önnur mál ? könnun um aðgengi fatlaðs fólks að strætisvögnum og biðstöðvum Strætó.
Fundargerðin er lögð fram.
10
Drög að samkomulagi aðildarsveitarfélaga SSH um tæknilegan og fjárhagslegan undirbúning að lagningu Borgarlínu
Gunnar Einarsson, gerði grein fyrir tillögu að samkomulagi um samstarf um tæknilegan og fjárhagslegan undirbúning að lagningu hágæða almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu (Borgarlínu).
,,Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir samkomulag um tæknilegan og fjárhagslegan undirbúning 2019-2020 vegna lagningu Borgarlínu enda liggi fyrir samkomulag allra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Framlag sveitarfélaganna kr. 500 mkr er með fyrirvara, sbr. 5. tl. samkomulagsins þar sem fram kemur að gert er ráð fyrir sama framlagi frá ríki og að samkomulag náist milli ríkis og sveitarfélaga um uppbyggingu samgangna á höfuðborgarsvæðinu til ársins 2033."
Bæjarstjórn samþykkir að leggja fram eftirfarandi bókun við afgreiðslu málsins.
Bæjarstjórn Garðabæjar fagnar fyrirliggjandi samningum um undirbúning að lagningu Borgarlínunnar. Um er að ræða tæknilegan og fjárhagslegan undirbúning að hágæða almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu og fyrirkomulag og verkefnaskiptingu Vegagerðarinnar og SSH vegna þessa. Verkefnið er mikilvægur liður í því samkomulagi sem unnið er að á milli ríkisins og sveitarfélaganna um uppbyggingu samgangna á höfuðborgarsvæðinu til ársins 2033. Samkvæmt erindisbréfi starfshóps sem vinnur að því er markmiðið að komast að samkomulagi um fjármögnun 102 milljarða fjárfestingaráætlunar í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu, eða um 7 milljarða á ári í 15 ár. Uppbygging samgangna á höfuðborgarsvæðinu, stofnbrauta, almenningssamgangna og hjóla- og göngustíga, er afar brýnt viðfangsefni til að ná fram markmiðum um betra umferðarflæði, meira öryggi vegfarenda og til að draga úr mengun á svæðinu. Samþykkt á fyrirliggjandi samkomulagi um næstu skref hvað almenningssamgöngurnar varðar er mikilvæg en framhald heildaruppbyggingar samgöngumannvirkjanna ræðst síðan af því hvort ásættanlegt samkomulag náist á milli ríkis og sveitarfélaga.
11
Lántaka samkvæmt fjárhagsáætlun 2019
Gunnar Einarsson, gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 500.000.000.
,,Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir hér með á bæjarstjórnarfundi að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 500.000.000 með lokagjalddaga þann 5. apríl 2034, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem bæjarstjórn hefur kynnt sér. Bæjarstjórn samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar) standi tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til fjármögnunar á byggingu grunnskóla í Urriðaholti og viðbyggingu við grunnskóla á Álftanesi sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Gunnari Einarssyni, bæjarstjóra, kt. 250555-4079, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns."
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 500.000.000, fimmhundruðmilljónirkróna.
12
Tillaga um að taka saman upplýsingar um kolefnislosun
Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu sem hún flytur ásamt Jónu Sæmundsdóttur og Guðfinni Sigurvinssyni.
,,Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að fela umhverfis- og tæknisviði að taka saman upplýsingar um kolefnislosun sveitarfélagsins. Auk þess að koma með tillögur um leiðir og aðgerðir til að draga úr losun og auka kolefnisbindingu í sveitarfélaginu með það að markmiði að kolefnisjafna starfsemi sveitarfélagsins."
Greinargerð:
Baráttan við loftlagsbreytingar af mannavöldum er eitt stærsta viðfangsefni samtímans.
Í aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar í loftlagsmálum er unnið eftir markmiðum Parísar-samningsins til 2030 og stefnt er að kolefnishlutleysi á Íslandi árið 2040. Orkuskipti í samgöngum og átak í kolefnisbindingu eru tvö helstu áhersluatriði þessarar aðgerðaáætlunar.
Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna telur að 70% til 90% nauðsynlegra aðgerða í loftlagsmálum séu bundin sveitarstjórnarstiginu. Hér gegna sveitarfélögin því lykilhlutverki. Það er því mikilvægt að sveitarfélögin taki þátt í þessu mikilvæga verkefni af fullum þunga og horfi þar til samgangna, endurheimtur votlendis, úrgang, flokkun og aðrar grænar lausnir með það að markmiði að fækka sótsporum í starfsemi sveitarfélagsins.
Jóna Sæmundsdóttir, tók til máls.
Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls.
Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls.
Ingvar Arnarson, tók til máls.
Tillagan samþykkt samhljóða.