Tillaga um að taka saman upplýsingar um kolefnislosun
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
8. (848). fundur
Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu sem hún flytur ásamt Jónu Sæmundsdóttur og Guðfinni Sigurvinssyni.
,,Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að fela umhverfis- og tæknisviði að taka saman upplýsingar um kolefnislosun sveitarfélagsins. Auk þess að koma með tillögur um leiðir og aðgerðir til að draga úr losun og auka kolefnisbindingu í sveitarfélaginu með það að markmiði að kolefnisjafna starfsemi sveitarfélagsins."
Greinargerð:
Baráttan við loftlagsbreytingar af mannavöldum er eitt stærsta viðfangsefni samtímans.
Í aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar í loftlagsmálum er unnið eftir markmiðum Parísar-samningsins til 2030 og stefnt er að kolefnishlutleysi á Íslandi árið 2040. Orkuskipti í samgöngum og átak í kolefnisbindingu eru tvö helstu áhersluatriði þessarar aðgerðaáætlunar.
Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna telur að 70% til 90% nauðsynlegra aðgerða í loftlagsmálum séu bundin sveitarstjórnarstiginu. Hér gegna sveitarfélögin því lykilhlutverki. Það er því mikilvægt að sveitarfélögin taki þátt í þessu mikilvæga verkefni af fullum þunga og horfi þar til samgangna, endurheimtur votlendis, úrgang, flokkun og aðrar grænar lausnir með það að markmiði að fækka sótsporum í starfsemi sveitarfélagsins.
Jóna Sæmundsdóttir, tók til máls.
Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls.
Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls.
Ingvar Arnarson, tók til máls.
Tillagan samþykkt samhljóða.