Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts og Vetrarmýrar.

Málsnúmer 1902346

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

18. (1879). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts og Vetrarmýrar vegna viðbyggingar við golfskála GKG verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

8. fundur

Lögð fram að lokinni auglýsingu tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts og Vetrarmýrar sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits fyrir golfskála GKG til vesturs. Tillagan var í auglýsingu 28.mars til 9.maí.
Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá Kópavogsbæ og Vegagerðinni, engar athugasemdir voru gerðar.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

5. (845). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts og Vetrarmýrar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga vegna stækkunar á byggingarreit fyrir viðbyggingu við golfskála GKG. Fallið er frá gerð lýsingar, sbr. heimild í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga.

Bæjarráð Garðabæjar

04

11. (1872). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts og Vetrarmýrar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga vegna stækkunar á byggingarreit fyrir viðbyggingu við golfskála GKG. Fallið er frá gerð lýsingar, sbr. heimild í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

3. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts og Vetrarmýrar sem gerir ráð fyri stækkun byggingarreits fyrir golfskála GKG til vesturs. Breytingartillögu vísað til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.