Beint í efni

5. (845). fundur

21.03.2019
Bæjarstjórn Garðabæjar

5. (845). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu

21.03.2019

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - forseti bæjarstjórnar
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Guðfinnur Sigurvinsson - varamaður
  • Gunnar Einarsson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Fundurinn er hljóðritaður.

Gunnar Valur Gíslason, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði. Forseti bauð bæjarfulltrúa velkomna til fyrsta fundar í nýjum fundarsal bæjarstjórnar sem hefur verið nefndur Sveinatunga. Í Sveinatungu sem staðsett var þar sem nú er bílahús Hagkaups við Litlatún voru um árabil bæjarskrifstofur Garðabæjar. Forseti lét í ljós þá von að þegar fram líða stundir muni þessi nýju, glæsilegu salarkynni verða lifandi rými fyrir stofnanir og starfsmenn Garðabæjar til notkunar fyrir allt sem varðar starfsemi bæjarins og koma til með að nýtast öllum bæjarbúum vel og verða Garðabæ til mikils sóma.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 7. mars 2019 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 1903019F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 12/3 ´19.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 3. tl., minnisblað um ferðaþjónustu barna í leikskólum Garðabæjar og spurði um stöðu málsins.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 6. tl., svar við fyrirspurn um kostnað við kaup og framkvæmdir á húsnæði fyrir fjölnota fundarsal og lagði fram eftirfarandi bókun.

"Við í Garðabæjarlistanum kölluðum eftir upplýsingum um kostnaðinn við framkvæmdina við þennan fundarsal sem við tökum í notkun hér í dag. Þegar farið er yfir kostnaðinn er ekki annað hægt en að staldra aðeins við.

Okkur leikur einfaldlega forvitni á að vita hvernig sú ákvörðun var tekin að fara í framkvæmd upp á 400 milljónir fyrir fundarsal.

Það er ansi vel í lagt og algjörlega á skjön við allan málflutning meirihlutans um ábyrga fjármálastjórn.

Að staldra við ekki síður í ljósi þess að hér hefur hver tillagan á fætur annarri sem borin hefur verið upp að hálfu minnihlutans verið skotin í kafi vegna fjárútláta sem þær kunni að hafa í för með sér til lengri tíma. Þær hafa ekki þótt í takti við ábyrga fjármálastjórnun bæjarins.

Ég hef heyrt því skotið inn hér í málflutningi oftar en einu sinni að það skipti nefnilega máli hvort verið er að leggja til staðbundnar framkvæmdir sem hafi ekki í för með sér fjárútlát til lengri tíma. Stöldrum aðeins við 400 milljónir í staðbundið verkefni er einhvern veginn ekkert mál á meðan smávægis aðgerðir á við hækkun hvatapeninga sem t.d. þessar 400 milljónir hefðu dugað í 35- 40 ár! Eða óbreytt leikskólagjöld út kjörtímabilið og samt væri nóg eftir af þessum 400 milljónum sem hefði mátt nýta í t.d. fundarsal.

Þetta er einhvern veginn svo óborganlegt og mikill fáránleiki þegar þessi kostnaður er borinn saman við fjárfestingu í velferð og stuðningi við börn og ungmenni til að hafa tök á að stunda þær íþróttir- og tómstundir sem í boði eru. Þeirri leiðindaraðgerð sem að auki þykir svo kostnaðarsöm til lengri tíma litið! Við sjáum öll hversu galið þetta er í stóra samhenginu. En pólitík er jú ekkert annað en forgangsröðun og hún er auðvitað misjöfn eftir því hver á í hlut.

En ég spyr:

Hvaða ramma settu bæjaryfirvöld sér um kostnað? ef einhvern?

Skipti það í alvörunni engu máli hvað verkið myndi kosta í raun?

Við í Garðabæjarlistanum köllum einfaldlega eftir agaðri fjármálastjórn. Fjármálastjórn þar sem allar framkvæmdir eru rammaðar inn ekki bara sumar og litið er á 400 milljónir sem háa upphæð sama hvert sem henni er kastað.

Fallegur er salurinn á því leikur enginn vafi en skynsamleg getur upphæðin sem í hann er varið aldrei talist."

Gunnar Einarsson, ræddi 3. tl., minnisblað um ferðaþjónustu barna í leikskólum Garðabæjar og svaraði fyrirspurn. Þá ræddi Gunnar 6. tl., svar við fyrirspurn um kostnað við kaup og framkvæmdir á húsnæði fyrir fjölnota fundarsal og framlagða bókun.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi að nýju 3. tl., minnisblað um ferðaþjónustu barna í leikskólum Garðabæjar.

Ingvar Arnarson, ræddi 6. tl., svar við fyrirspurn um kostnað við kaup og framkvæmdir á húsnæði fyrir fjölnota fundarsal.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 6. tl., svar við fyrirspurn um kostnað við kaup og framkvæmdir á húsnæði fyrir fjölnota fundarsal og 3. tl., minnisblað um ferðaþjónustu barna í leikskólum Garðabæjar.

Almar Guðmundsson, ræddi 6. tl., svar við fyrirspurn um kostnað við kaup og framkvæmdir á húsnæði fyrir fjölnota fundarsal.

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 6. tl., svar við fyrirspurn um kostnað við kaup og framkvæmdir á húsnæði fyrir fjölnota fundarsal.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 6. tl., svar við fyrirspurn um kostnað við kaup og framkvæmdir á húsnæði fyrir fjölnota fundarsal.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi að nýju 3. tl., minnisblað um ferðaþjónustu barna í leikskólum Garðabæjar. Þá ræddi Harpa 6. tl., svar við fyrirspurn um kostnað við kaup og framkvæmdir á húsnæði fyrir fjölnota fundarsal.

Ingvar Arnarson, ræddi að nýju 6. tl., svar við fyrirspurn um kostnað við kaup og framkvæmdir á húsnæði fyrir fjölnota fundarsal.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 6. tl., svar við fyrirspurn um kostnað við kaup og framkvæmdir á húsnæði fyrir fjölnota fundarsal.

Ingvar Arnarson, ræddi að nýju 6. tl., svar við fyrirspurn um kostnað við kaup og framkvæmdir á húsnæði fyrir fjölnota fundarsal.

Fundargerðin sem er 6 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1903031F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 19/3 ´19.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 14. tl., bréf félagsmálaráðuneytisins um móttöku flóttamanna.

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 14. tl., bréf félagsmálaráðuneytisins um móttöku flóttamanna.

Almar Guðmundsson, ræddi 14. tl., bréf félagsmálaráðuneytisins um móttöku flóttamanna. Almar nefndi undir þessum lið að öldungaráð Garðabæjar hafi komið til saman til síns fyrsta fundar í vikunni.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 15. tl., bréf Útlendingastofnunar varðandi mögulega gerð þjónustusamnings vegna umsækjenda um alþjóðlega vernd.

Fundargerðin sem er 16 tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

Málsnúmer 1903022F

03

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 13/3 ´19.

Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., hvatapeninga og lagði fram eftirfarandi tillögu.

"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að senda öllum ungmennum sem fædd eru árin 2001, 2002 og 2003 árskort í sund. Ásamt því að senda þeim árskort í sund verður þeim send hvatning um að stunda hreyfingu ásamt boði um fræðslu og kennslu í hinum ýmsu leiðum sem hægt er að nýta sér innan Garðabæjar til að stunda líkams- og heilsurækt."

Greinargerð

Heilsueflandi samfélag er samfélag þar sem heilsa og líðan íbúa er í fyrirrúmi í stefnumótun og aðgerðum á öllum sviðum.

Þegar nýting hvatapeninga er skoðuð sést að nýting þeirra lækkar eftir því sem að börnin verða eldri. Með því að senda ungmennum árskort í sund ásamt hvatningu og boð um kennslu erum við að reyna að fá ungmenni til að hreyfa sig meira og nota þá aðstöðu sem til er í bænum. Nauðsynlegt er að fá fagfólk með í lið til að fræðsla og kennsla í hinum ýmsu leiðum til að stunda líkams- og heilsurækt verði sem best og henti sem flestum.

Kyrrseta og brottfall úr íþróttum er eitthvað sem þarf að skoða í samfélaginu og nauðsynlegt að leita leiða til að auka hreyfingu ungmenna.

Þegar börn fara að eldast minnkar oft hreyfingin. Ofþyngd barna og unglinga er hratt vaxandi vandamál í vestrænum löndum, sem við Íslendingar höfum ekki farið varhluta af, en ofþyngdinni fylgja oftar en ekki heilsufarsleg, sálræn og félagsleg vandamál. Nauðsynlegt er að beina sjónum sínum meira að ofneyslu og hreyfingarleysi og hættunni sem þessu fylgir. Árangursríkasta leiðin til að snúa þessari þróun við eru markvissar forvarnir og heilsuefling með megináherslu á breytingu á matarvenjum og aukna hreyfingu.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., forvarnarmál í Garðabæ og lagði fram eftirfarandi bókun:

"Garðabæjarlistinn hvetur fulltrúa íþrótta- og tómstundaráðs til þess að beita þeim verkfærum sem til eru til þess að uppræta fordóma og fáfræði innan íþróttahreyfinganna í garð hinsegin fólks með hinsegin fræðslu."

Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., hvatapeningar 2018 og framkomna tillögu. Gunnar lagði til að vísa framkominni tillögu til bæjarráðs. Þá ræddi Gunnar 2. tl., forvarnarmál og framkomna bókun.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., hvatapeningar 2018 og framkomna tillögu.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., hvatapeningar 2018 og framkomna tillögu. Þá ræddi Sigríður Hulda 2. tl., forvarnarmál.

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 1. tl., hvatapeningar 2018 og framkomna tillögu.

Ingvar Arnarson, ræddi að nýju 1. tl., hvatapeningar 2018 og framkomna tillögu.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., hvatapeningar 2018 og framkomna tillögu.

Gunnar Einarsson, ræddi að nýju 1. tl., hvatapeningar 2018 og framkomna tillögu.

Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., hvatapeningar 2018 og framkomna tillögu.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa framkominni tillögu til bæjarráðs.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1903023F

04

Fundargerð leikskólanefndar frá 14/3 ´19.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1903008F

05

Fundargerð skipulagsnefndar frá 7/3 ´19.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., tillögu að nýju deiliskipulagi miðsvæðis Álftaness og sagði frá fundi með íbúum. Sigurður sagði líka frá fundi með hagsmunaðilum við Lyngás varðandi breytingu á deiliskipulagi og uppbyggingu svæðisins.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1812010F

06

Fundargerð stjórnar Hönnunarsafns Íslands frá 10/12 ´18.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1903010F

07

Fundargerð umhverfisnefndar frá 13/3 ´19.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 8. tl., tillögu að innleiðingu á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 8. tl., tillögu að innleiðingu á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, 1. tl., samstarf við Umhverfisstofnum um friðlýsingar, 2. tl., húsasorpsrannsókn, 5. tl., spillivagninn og 9. tl., afgreiðlu umsóknar í framkvæmdasjóð ferðamannastaða.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 8. tl., tillögu að innleiðingu á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., samstarf við Umhverfisstofnum um friðlýsingar, 2. tl., húsasorpsrannsókn, 3. tl., endurheimt votlendis á Álftanesi 5. tl., spillivagninn og 10. tl., tillögu Garðabæjarlistans um endurbættan strandstíg á sunnanverðu Álftanesi.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 3. tl., endurheimt votlendis á Álftanesi.

Gunnar Einarsson, ræddi 3. tl., endurheimt votlendis á Álftanesi og 8. tl., tillögu að innleiðingu á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 8. tl., tillögu að innleiðingu á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 8. tl., tillögu að innleiðingu á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 8. tl., tillögu að innleiðingu á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

Harpa Þorsteinsóttir, ræddi 8. tl., tillögu að innleiðingu á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., samstarf við Umhverfisstofnun um friðlýsingar, 3. tl., endurheimt votlendis á Álftanesi og 6. tl., fræðslu- og sögugöngur.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1901407

08

Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 22/2 ´19.

Gunnar Einarsson, ræddi 5. tl., akstursþjónustu fatlaðs fólks.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 5. tl., akstursþjónustu fatlaðs fólks.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1901198

09

Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 1/3 ´19.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 2. tl., staðsetningu endurvinnslustöðva og 5. tl., rannsókn á innhaldi bagga.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi nýlega heimsókn bæjarfulltrúa í starfsstöð Sorpu.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1901375

10

Fundargerð stjórnar SSH frá 4/3 ´19.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1902158

11

Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 12/3 ´19.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1811129

12

Ársreikningur Garðabæjar 2018 (Fyrri umræða)

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði ársreikningi Garðabæjar fyrir árið 2018. Gerði bæjarstjóri grein fyrir helstu niðurstöðum reikningsins og lykiltölum. Bæjarstjóri lagði til að vísa ársreikningnum til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Sigurður Guðmundsson, tók til máls.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.

Gunnar Einarsson, tók til máls að nýju.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi Garðabæjar 2018 til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Fylgiskjöl