Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 12/3 ´19.

Málsnúmer 1903019F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

5. (845). fundur

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 3. tl., minnisblað um ferðaþjónustu barna í leikskólum Garðabæjar og spurði um stöðu málsins.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 6. tl., svar við fyrirspurn um kostnað við kaup og framkvæmdir á húsnæði fyrir fjölnota fundarsal og lagði fram eftirfarandi bókun.

"Við í Garðabæjarlistanum kölluðum eftir upplýsingum um kostnaðinn við framkvæmdina við þennan fundarsal sem við tökum í notkun hér í dag. Þegar farið er yfir kostnaðinn er ekki annað hægt en að staldra aðeins við.
Okkur leikur einfaldlega forvitni á að vita hvernig sú ákvörðun var tekin að fara í framkvæmd upp á 400 milljónir fyrir fundarsal.
Það er ansi vel í lagt og algjörlega á skjön við allan málflutning meirihlutans um ábyrga fjármálastjórn.
Að staldra við ekki síður í ljósi þess að hér hefur hver tillagan á fætur annarri sem borin hefur verið upp að hálfu minnihlutans verið skotin í kafi vegna fjárútláta sem þær kunni að hafa í för með sér til lengri tíma. Þær hafa ekki þótt í takti við ábyrga fjármálastjórnun bæjarins.
Ég hef heyrt því skotið inn hér í málflutningi oftar en einu sinni að það skipti nefnilega máli hvort verið er að leggja til staðbundnar framkvæmdir sem hafi ekki í för með sér fjárútlát til lengri tíma. Stöldrum aðeins við 400 milljónir í staðbundið verkefni er einhvern veginn ekkert mál á meðan smávægis aðgerðir á við hækkun hvatapeninga sem t.d. þessar 400 milljónir hefðu dugað í 35- 40 ár! Eða óbreytt leikskólagjöld út kjörtímabilið og samt væri nóg eftir af þessum 400 milljónum sem hefði mátt nýta í t.d. fundarsal.
Þetta er einhvern veginn svo óborganlegt og mikill fáránleiki þegar þessi kostnaður er borinn saman við fjárfestingu í velferð og stuðningi við börn og ungmenni til að hafa tök á að stunda þær íþróttir- og tómstundir sem í boði eru. Þeirri leiðindaraðgerð sem að auki þykir svo kostnaðarsöm til lengri tíma litið! Við sjáum öll hversu galið þetta er í stóra samhenginu. En pólitík er jú ekkert annað en forgangsröðun og hún er auðvitað misjöfn eftir því hver á í hlut.
En ég spyr:
Hvaða ramma settu bæjaryfirvöld sér um kostnað? ef einhvern?
Skipti það í alvörunni engu máli hvað verkið myndi kosta í raun?
Við í Garðabæjarlistanum köllum einfaldlega eftir agaðri fjármálastjórn. Fjármálastjórn þar sem allar framkvæmdir eru rammaðar inn ekki bara sumar og litið er á 400 milljónir sem háa upphæð sama hvert sem henni er kastað.
Fallegur er salurinn á því leikur enginn vafi en skynsamleg getur upphæðin sem í hann er varið aldrei talist."

Gunnar Einarsson, ræddi 3. tl., minnisblað um ferðaþjónustu barna í leikskólum Garðabæjar og svaraði fyrirspurn. Þá ræddi Gunnar 6. tl., svar við fyrirspurn um kostnað við kaup og framkvæmdir á húsnæði fyrir fjölnota fundarsal og framlagða bókun.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi að nýju 3. tl., minnisblað um ferðaþjónustu barna í leikskólum Garðabæjar.

Ingvar Arnarson, ræddi 6. tl., svar við fyrirspurn um kostnað við kaup og framkvæmdir á húsnæði fyrir fjölnota fundarsal.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 6. tl., svar við fyrirspurn um kostnað við kaup og framkvæmdir á húsnæði fyrir fjölnota fundarsal og 3. tl., minnisblað um ferðaþjónustu barna í leikskólum Garðabæjar.

Almar Guðmundsson, ræddi 6. tl., svar við fyrirspurn um kostnað við kaup og framkvæmdir á húsnæði fyrir fjölnota fundarsal.

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 6. tl., svar við fyrirspurn um kostnað við kaup og framkvæmdir á húsnæði fyrir fjölnota fundarsal.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 6. tl., svar við fyrirspurn um kostnað við kaup og framkvæmdir á húsnæði fyrir fjölnota fundarsal.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi að nýju 3. tl., minnisblað um ferðaþjónustu barna í leikskólum Garðabæjar. Þá ræddi Harpa 6. tl., svar við fyrirspurn um kostnað við kaup og framkvæmdir á húsnæði fyrir fjölnota fundarsal.

Ingvar Arnarson, ræddi að nýju 6. tl., svar við fyrirspurn um kostnað við kaup og framkvæmdir á húsnæði fyrir fjölnota fundarsal.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 6. tl., svar við fyrirspurn um kostnað við kaup og framkvæmdir á húsnæði fyrir fjölnota fundarsal.

Ingvar Arnarson, ræddi að nýju 6. tl., svar við fyrirspurn um kostnað við kaup og framkvæmdir á húsnæði fyrir fjölnota fundarsal.

Fundargerðin sem er 6 tl. er samþykkt samhljóða.