Skipulag - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 2. Grundir
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
3. (862). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna svæðis við Ægisgrund. Tillagan gerir ráð fyrir að afmarkað verði nýtt svæði við Hraunsholtslæk fyrir samfélagsþjónustu.
Bæjarráð Garðabæjar
03
6. (1915). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 samkvæmt 31. gr. skipulagslaga vegna svæðis við Ægisgrund. Tillagan gerir ráð fyrir að afmarkað verði nýtt svæði við Hraunsholtslæk fyrir samfélagsþjónustu.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
2. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðarbæjar 2016-2030 í Grundahverfi að lokinni auglýsingu í samræmi við 31.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Tillagan gerir ráð fyrir sem gerir ráð fyrir því að svæði 2.03 S (2.09 Op (opið svæði)stækkar um 0,6 ha og nær upp með Hraunsholtslæk, svæði 2.09 Op minnkar sem því nemur og svæði 2.10 Íb minnkar lítilslega.
Tillagan var auglýst samhliða breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda sem nær til sama svæðis frá 14.nóvember 2019 til 6.janúar 2020.
Umsagnir sem borist hafa á auglýsingartíma lagðar fram.
Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 í samræmi við 2.mgr.32.gr.sömu laga.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
8. (848). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 36. gr. sömu laga tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016 - 2030 vegna svæðis á grundum.
Samhliða skal auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda samkvæmt 2. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Bæjarráð Garðabæjar
06
18. (1879). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr 36. gr. sömu laga tillögu að breytingu á aðalskipulagi garðabæjar 2016 - 2030 vegna svæðis á grundum.
Samhliða skal auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda samkvæmt 2. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
8. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðarbæjar 2016-2030 sem gerir ráð fyrir því að svæði 2.03 S (2.09 Op (opið svæði)stækkar um 0,6 ha og nær upp með Hraunsholtslæk, svæði 2.09 Op minnkar sem því nemur og svæði 2.10 Íb minnkar lítilslega.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal skipulagstjóri senda tillöguna til skoðunar hjá Skipulagsstofnun áður en hún verður auglýst.
Bæjarstjórn Garðabæjar
08
5. (845). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna landnotkunarreits 2.09 OP, sbr. tillögu að breytingu að deiliskipulagi Ása og Grunda. Tillagan skal kynnt á íbúafundi. Einnig skal tillagan kynnt aðliggjandi sveitarfélögum og öðrum hagsmunaaðilum.
Bæjarráð Garðabæjar
09
11. (1872). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna landnotkunarreits 2.09 OP, sbr. tillögu að breytingu að deiliskipulagi Ása og Grunda. Tillagan skal kynnt á íbúafundi. Einnig skal tillagan kynnt aðliggjandi sveitarfélögum og öðrum hagsmunaaðilum.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
10
3. fundur
Lögð fram tillaga að aðalskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að landnotkunarreitur 2.09 Op minnki og gert verði ráð fyrir svæði fyrir samfélagsþjónustu í samræmi við tillögu að deiliskipulagi fyrir lóð fyrir alþjóðaskólann. Lagðar fram umsagnir sem bárust um verkefnislýsingu. Tillögu vísað til forkynningar í samræmi við 2.mgr.30.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
11
3. fundur
Lögð fram ósk frá skipulagsnefnd Garðabæjar um umsögn skólanefndar um málið. Skólanefnd gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi gögn.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
12
5. fundur
Skipulagsstóri kynnir breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar og deiliskipulagi Ása-Grunda
Bæjarstjórn Garðabæjar
13
13. (835). fundur
Bæjarstjórn að samþykkir tillögu skipulagsnefndar um skipulagslýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi Garðabæjar samhliða breytingum á deiliskipulagi Ása og Grunda sbr. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagslýsingin skal kynnt almenningi, Skipulagsstofnun og öðrum umsagnaraðilum.
Bæjarráð Garðabæjar
14
34. (1849). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um skipulagslýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi Garðabæjar samhliða breytingum á deiliskipulagi Ása og Grunda sbr. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagslýsingin skal kynnt almenningi, Skipulagsstofnun og öðrum umsagnaraðilum.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
15
11. fundur
Skipulagsráðgjafar, Sigurður Einarsson arkitekt og Þráinn Hauksson landlagsarkitekt kynna skipulagslýsingu aðal- og deiliskipulags fyrir Lyngás, svæði L6, Ægisgrund og Þórsmörk ásamt drögum að skipulagi svæðisins. Viðfangsefni skipulagslýsinga er að skipuleggja stofnanalóð fyrir Alþjóðaskólann auk lítillar stækkunar á íbúðarsvæði Grunda. Þetta verður gert með því að minnka lítillega landnotkunarreit meðfram læknum í Ask Gb. 2016-2030, merktur 2.09 Op og afmarka þann hluta rauðan (2.19 S) undir samfélagsþjónustu. Aðrar breytingar varða stækkun á íbúðarbyggð innan landnotkunarreits 2.10 Íb í Ask Gb. 2016-2030.
Skipulagsnefnd samþykkir aðalskipulagslýsinguna í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur tækni- og umhverfissviði að afla umsagna hjá Skipulagsstofnun og öðrum umsagnaraðilum ásamt því að kynna hana almenningi á kynningartíma.