3. fundur
3. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
10.10.2018
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Edda Björg Sigurðardóttir - fulltrúi skólastjóra
- Kristín Sigurðardóttir - verkefnastjóri
- Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hilmar Þór Sigurjónsson - fulltrúi kennara
- Íris Kristina Óttarsdóttir - fulltrúi foreldra
Ritari
- Kristín Sigurðardóttir
Við upphaf fundar bar formaður upp breytingatillögu á dagskrá og óskaði eftir að bæta inn nýjum dagskrárlið við lok fundar. Sá liður varðar mál sem vísað var til umfjöllunar í skólanefnd grunnskóla á fundi bæjarráðs þann 9. október sl. Málið varðar bréf Alþingis um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til að heimila skráningu lögheimilis barna hjá báðum forsjárforeldrum. Fyrir liggja fylgigögn; umsögn frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og tillaga Garðabæjarlistans sem lögð var fram á ofangreindum bæjarráðsfundi.
Dagskrá
Málsnúmer 1809192
01
Skipulag - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 2. Grundir
Lögð fram ósk frá skipulagsnefnd Garðabæjar um umsögn skólanefndar um málið. Skólanefnd gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi gögn.
Málsnúmer 1809281
02
Tilkynning frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu um yfirlit yfir lögmælt verkefni sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar.
Málsnúmer 1805397
03
Forvarnarvika í Garðabæ 2018
Dagskrá forvarnarviku, sem lauk í dag, var fjölbreytt og stóð fjölskyldum í Garðabæ margt áhugavert til boða. Skólanefnd óskar eftir því við skóladeild að taka saman minnisblað um hvernig hefur til tekist, um hvaða kostnað er að ræða og fleiri upplýsingar sem geta nýst við skipulag og markmiðasetningu næstu forvarnarviku.
Málsnúmer 1810106
04
Þróunarsjóður grunnskóla - yfirlit
Lagt fram til kynningar yfirlit yfir styrki úr þróunarsjóði grunnskóla sl. 4 ár. Í heild hefur verið úthlutað 100 milljónum króna til 106 verkefna. Verkefnin eru ólík en bera metnaðarfullu skólastarfi í Garðabæ vitni.
Málsnúmer 1808346
05
Menntadagur 26. október 2018
Undirbúningur stendur nú sem hæst vegna Menntadags leik- og grunnskóla þann 26. október nk. Reiknað er með um 400 starfsmönnum á kynningar á um 40 þróunarverkefnum skólanna sem hlutu styrki á sl. skólaári.
Málsnúmer 1810102
06
Nýir starfsmenn skóladeildar
Þrír nýir starfsmenn hófu störf á skóladeild í haust í stað þeirra sem látið hafa af störfum á árinu, 2 sálfræðingar og 1 talmeinafræðingur.
Málsnúmer 1810017
07
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til að heimila skráningu lögheimilis barna hjá báðum forsjárforeldrum, 25. mál.
Lagt fram til umfjöllunar. Málið rætt og ýmis sjónarmið komu fram. Ljóst er að tvöfalt lögheimili barna er ekki í samræmi við núgildandi lög sveitarfélaga. Vinna þarf að því að finna leiðir í reiknireglum sveitarfélaga til að koma á móts við þetta málefni, þó sé alltaf haft að leiðarljósi að tryggja hagsmuni barnsins sem best. Fram kom að málið hefur nýverið verið rætt í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem m.a. var ákveðið að taka málið upp við dómsmálaráðherra og óska eftir áliti nýs umboðsmanns barna vegna málsins. Skólanefnd óskar eftir því við skóladeild að athuga hvort hægt sé að fá fagaðila til fundar til frekari umfjöllunar.