Ægisgrund 1-5, dsk br (Svæði L6)
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
3. (862). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda samkvæmt 1.mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga, þar sem gert verður ráð fyrir að opið svæði við Hraunsholtslæk breytist í svæði fyrir lóð Alþjóðaskólans á Íslandi ásamt því að áfram er gert ráð fyrir einbýlishúsalóðum á svæðinu. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir.
Bæjarráð Garðabæjar
03
6. (1915). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda samkvæmt 1.mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga, þar sem gert verður ráð fyrir að opið svæði við Hraunsholtslæk breytist í svæði fyrir lóð Alþjóðaskólans á Íslandi ásamt því að áfram er gert ráð einbýlishúsalóðum á svæðinu. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
2. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda sem nær til svæðis frá Ægisgrund að Vífilsstaðavegi. Tillagan gerir ráð fyrir því að opið svæði við Hraunsholtslæk breytist í skólalóð þar sem stefnt er að að reisa húsnæði Alþjóðaskólans. Lögun tveggja nýrra lóða við Ægisgrund breytist.
Tillagan var auglýst samhliða breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til sama svæðis frá 14.nóvember 2019 til 6.janúar 2020.
Engar athugasemdir bárust.
Lögð fram húsakönnun og fornleifaskráning sem unnin hefur verið vegna tillögunnar.
Lagðar fram umsagnir frá Umhverfisstofnun og Minjastofnun um tillögurnar. Einnig lagðar fram umsagnir frá Vegagerðinni og heilbrigðiseftirliti vegna lýsingar verkefnisins.
Skipulagsnefnd telur að hvorki umsagnir, fornleifaskýrsla né húsakönnun kalli á breytingu á tillögunni.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skiplagslags nr.123/2010.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
8. (848). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda er varðar svæði við Ægisgrund.
Eftirfarandi breytingar hafa verið gerðar á þeirri tillögu sem kynnt var.
Að lóð fyrir einbýlishús við Þórsmörk verði felld út úr tillögunni.
Að kveðið verði á um skýra aðgreiningu á göngustíg og aðkomu að Þórsmörk frá Ægisgrund.
Að lögun og stærð nýrra íbúðarhúsalóða og byggingarreita við Ægisgrund verði sambærileg við núverandi lóðir. Gera skal ráð fyrir 3 bílastæðum á lóð.
Að gert verði ráð fyrir grænu svæði milli Njarðargrundar og nýrra húsa og sett kvöð um gróðurbelti.
Samhliða skal auglýst tillaga að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 samkvæmt 2. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 36. gr. sömu laga tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016 - 2030 vegna svæðis á grundum.
Samhliða skal auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda samkvæmt 2. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Bæjarráð Garðabæjar
06
18. (1879). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda er varðar svæði við Ægisgrund.
Eftirfarandi breytingar hafa verið gerðar á þeirri tillögu sem kynnt var.
Að lóð fyrir einbýlishús við Þórsmörk verði felld út úr tillögunni.
Að kveðið verði á um skýra aðgreiningu á göngustíg og aðkomu að Þórsmörk frá Ægisgrund.
Að lögun og stærð nýrra íbúðarhúsalóða og byggingarreita við Ægisgrund verði sambærileg við núverandi lóðir. Gera skal ráð fyrir 3 bílastæðum á lóð.
Að gert verði ráð fyrir grænu svæði milli Njarðargrundar og nýrra húsa og sett kvöð um gróðurbelti.
Samhliða skal auglýst tillaga að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 samkvæmt 2. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
8. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda.
Skipulagsstjóri gerir grein fyrir fundi sem haldinn var með íbúum við Ægisgrund þar sem tillögurnar voru kynntar.
Skipulagsnefnd leggur til eftirfarandi breytingu á tillögunni:
-Lóð fyrir einbýlishús við Þórsmörk verði felld út úr tillögunni.
-Kveðið sé á um skýra aðgreiningu á göngustíg og aðkomu að Þórsmörk frá Ægisgrund.
-Lögun og stærð nýrra íbúðarhúsalóða og byggingarreita við Ægisgrund skal vera sambærileg og annarra húsa í götunni. Gera skal ráð fyrir 3 bílastæðum á lóð.
-Gera skal ráð fyrir grænu svæði milli Njarðargrundar og nýrra húsa og sett kvöð um gróðurbelti.
Skipulagsnefnd telur að með því að gera ráð fyrir tveimur einbýlishúsalóðum við Ægisgrund (nr.3 og nr.5) þá bæti þau hljóðvist við götuna vegna nýrrar tengingar íbúðarhúsahverfisins við hringtorgið við Vífilsstaðaveg.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar með ofangreindum breytingum í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Skal hún auglýst samhliða auglýsingu um breytingu aðalskipulags sem nær til sama svæðis.
Bæjarstjórn Garðabæjar
08
5. (845). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda þar sem gert er ráð fyrir lóð fyrir húsnæði Alþjóðaskólans í landi Þórsmerkur. Tillagan skal kynnt á fundi þar sem íbúar aðliggjandi lóða við Ægisgrund verða sérstaklega boðaðir.
Bæjarráð Garðabæjar
09
11. (1872). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda þar sem gert er ráð fyrir lóð fyrir húsnæði Alþjóðaskólans í landi Þórsmerkur. Tillagan skal kynnt á fundi þar sem íbúar aðliggjandi lóða við Ægisgrund verða sérstaklega boðaðir.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
10
3. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu Ása og Grunda sem gerir ráð fyrir lóð fyrir skólastofnun, alþjóðaskólann við Hraunsholtslæk. Lagðar fram umsagnir sem bárust um verkefnislýsingu. Tillögu vísað til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Halda skal kynningarfund þar sem íbúar aðliggjandi lóðar við Ægisgrund verði sérstaklega boðaðir. Tillögur að breytingu aðalskipulags og deiliskipulags skulu kynntar samhliða.
Bæjarstjórn Garðabæjar
11
13. (835). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um skipulagslýsingu vegna breytinga á deiliskipulagi Ása og Grunda fyrir svæði við Ægisgrund, sbr. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagslýsingin skal kynnt almenningi, Skipulagsstofnun og öðrum umsagnaraðilum.
Bæjarráð Garðabæjar
12
34. (1849). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um skipulagslýsingu vegna breytinga á deiliskipulagi Ása og Grunda fyrir svæði við Ægisgrund, sbr. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagslýsingin skal kynnt almenningi, Skipulagsstofnun og öðrum umsagnaraðilum.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
13
11. fundur
Skipulagsráðgjafar, Sigurður Einarsson arkitekt og Þráinn Hauksson landlagsarkitekt kynna skipulagslýsingu á breytingum á aðal- og deiliskipulagi svæði L6 sbr rammaskipulag Lyngássvæðis ásamt drögum að skipulagi svæðisins. Breytingarnar ná til Ægisgrundar og Þórsmerkur. Viðfangsefni skipulagsins er að skipuleggja stofnanalóð fyrir Alþjóðaskólann auk lítillar stækkunar á íbúðarsvæði Grunda. Þetta verður gert með því að minnka lítillega landnotkunarreit meðfram læknum í Ask Gb. 2016-2030, merktur 2.09 Op og afmarka þann hluta rauðan (2.19 S) undir samfélagsþjónustu. Aðrar breytingar varða stækkun á íbúðarbyggð innan landnotkunarreits 2.10 Íb í Ask Gb. 2016-2030.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða deiliskipulagslýsingu í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur tækni- og umhverfissviði að afla umsagna hjá Skipulagsstofnun og öðrum umsagnaraðilum ásamt því að kynna hana almenningi.