15. fundur
15. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
30.11.2017
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
- Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1606034
01
Hafnarfjarðarv/Vífilsstaðav. Endurbætur gatnamóta.
Skipulagsstjóri, bæjarverkfræðingur og Guðbjörg Brá Gísladóttir verkefnisstjóri gerðu grein fyrir tillögum Vegagerðarinnar að endurbætum á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar við Vífilsstaðaveg og Lyngás og neðsta hluta Vífilsstaðavegar.
Skipulagsnefnd leggur til að sú breyting verði gerð á tillögunni að gert verði ráð fyrir undirgöngum fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur undir Lyngás við gatnamót að Hafnarfjarðarvegi.
Skipulagsnefnd vísar tillögunum og þeim deiliskipulagsbreytingum sem þær kalla á til forkynningar með ofangreindri breytingu.
Halda skal íbúafund á forkynningartíma þar sem tillögurnar verða kynntar ítarlega og kallað eftir ábendingum.
Þar sem að endurbætur þær sem tillagan gerir ráð fyrir er ekki í samræmi við stefnu aðalskipulags um Hafnarfjarðarveg í stokki og með mislægum gatnamótum lítur skipulagsnefnd svo á að um tímabundnar lagfæringar sé sé að ræða til þess að bæta ástandið og auka umferðaröryggi þangað til að markmið aðalskipulags náist í framtíðinni. Framkvæmdaleyfi fyrir stærsta hluta framkvæmdanna verður því byggt á ítarlegri kynningu þar sem að deiliskipulag liggur ekki fyrir sbr.5.mgr.13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Lagðar eru til breytingar á þeim deiliskipulagsáætlunum sem liggja að framkvæmdasvæðinu þar sem þess er þörf sbr næstu fundarliði.
Málsnúmer 1305618
02
Vífilsstaðavegur og Bæjarbraut, deiliskipulag.
Lögð fram tillaga að deiliskipulagiVífilsstaðavegar og Bæjarbrautar. Útfærslu hringtorgs á gatnamótum Vífilsstaðavegar og Litlatúns/Flataskóla hefur verið breytt í samræmi við tillögur Vegagarðarinnar. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr.Skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1711137
03
Ásar og Grundir, dsk br., minnkun svæðis.
Lögð fram tillaga að breytingun á deiliskipulagi Ása og Grunda. Skipulagssvæði hefur verið minnkað við gatnamót Lyngáss og Hafnarfjarðarvegar í tengslum við tillögur Vegagerðarinnar um lagfæringar á núverandi útfærslu Hafnarfjarðarvegar. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr.Skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1711136
04
Hraunsholt eystra, dsk br, minnkun svæðis.
Lögð fram tillaga að breytingun á deiliskipulagi Hraunsholts eystra. Skipulagssvæði hefur verið minnkað við gatnamót Lækjarfitjar og Hafnarfjarðarvegar í tengslum við tillögur Vegagerðarinnar um lagfæringar á núverandi útfærslu Hafnarfjarðarvegar. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr.Skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1711135
05
Miðbær, neðsta svæði (svæði III), dsk br minnkun svæðis
Lögð fram tillaga að breytingun á deiliskipulagi Miðbæjar, neðstasvæðis (svæði III Sveinatungureitur). Skipulagssvæði hefur verið minnkað við gatnamót Vífilsstaðavegar og Hafnarfjarðarvegar í tengslum við tillögur Vegagerðarinnar um lagfæringar á núverandi útfærslu Hafnarfjarðarvegar og gatnamótanna. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr.Skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1711133
06
Ásgarður, dsk breyting vegna hringtorgs
Lögð fram tillaga að breytingun á deiliskipulagi Ásgarðs í tengslum við tillögur Vegagerðarinnar um lagfæringar á núverandi útfærslu Hafnarfjarðarvegar og neðsta hluta Vífilsstaðavegar. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr.Skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1711132
07
Hörgatún 2, dsk breyting vegna hringtorgs
Lögð fram tillaga að breytingun Hörgatúns 2 í tengslum við tillögur Vegagerðarinnar um lagfæringar á núverandi útfærslu Hafnarfjarðarvegar og neðsta hluta Vífilsstaðavegar.Leita skal samráðs við lóðarhafa Hörgatúns 2. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr.Skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1709351
08
Álftanes-Miðsvæði. Deiliskipulag
Lögð fram tilllaga að verkefnislýsingu deiliskipulags miðsvæðis á Álftanesi. Vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.
Málsnúmer 1710083
09
Lyngássvæði, deiliskipulag L1 og L2
Lögð fram tillaga að verkefnislýsingu fyrir deiliskipulagsáfanga L1 og L2 sem skilgreindir eru í rammaskipulagi Lyngássvæðis og Hafnarfjarðarvegar.
Skipulagsnefnd samþykkir lýsinguna í samræmi við 1.mgr.40.gr.Skipulagslaga og felur skipulagsstjóra að afla umsagna Skipulagsstofnunar og öðrum umsagnaraðilum og kynna hana almenningi.
Málsnúmer 1710090
10
Ægisgrund 1-5, dsk br (Svæði L6)
Lýsingunni vísað til frekari skoðunar.
Málsnúmer 1612146
11
Arnarnes, endurauglýsing deiliskipulags
Lagðar fram athugasemdir sem borist hafa við auglýsta tillögu.
Vísað til úrvinnslu hjá tækni og umhverfissviði og deiliskipulagsráðgjafa.
Málsnúmer 1706330
12
Hlið, deiliskipulagsbreyting 2017
Lagt fram erindi Umhverfisstofnunar þar sem gerðar eru ýmsar athugasemdir við framkvæmdir í Hliði sem brjóti í bága við reglur og markmið friðslýsingar.
Bæjarverkfræðingi, byggingarfulltrúa og skipulagsstjóra falið að funda með hlutaðeigandi og sjá til þess að ekki sé unnið gegn markmiðum friðlýsingar.
Málsnúmer 1710251
13
Beiðni um lóðarskika undir færanlegt smáhýsi
Vísað til frekar skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.
Málsnúmer 1711043
14
Urriðholtsstræti 34 - umsókn um fjölgun íbúða
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissvið.
Málsnúmer 1711047
15
Austurhraun 5 - Þykkvabær stækkun á vörulager
Tillögu vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði. Afla skal umsagnar deiliskipulaghöfundar.
Málsnúmer 1711092
16
Sunnuflöt 42 - bílskýli undir bílskúr
Skipulagsnefnd telur að skábraut framan við hús sé ekki í samræmi við yfirbragð byggðarinnar og er svarið við fyrirspurninnni því neikvætt.
Málsnúmer 1711037
17
Lindarflöt 35-Umsókn um byggingarleyfi
Skipulagsnefnd telur að tillagan sé í samræmi við deiliskipulag þó svo að um nýstárlega útfærslu sé að ræða. Hvergi er kveðið á um stærð bílgeymslu og byggingin er innan byggingarreits. Samþykki nágranna liggur fyrir. Skipulagsnefnd gerir fyrir sitt leyti ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt fyrir umsókninni.
Málsnúmer 1711206
18
Smiðsbúð 3 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Skipulagsnefnd telur að umrætt mannvirki sé byggingarleyfisskilt og kalli því að stækkun byggingarreits. Tillögunni vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Málsnúmer 1711272
19
Brekkuás 7 - Umsókn um dsk breytingu - B-rými
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Málsnúmer 1507053
20
Heiðmörk Sandahlíð deiliskipulag
Lögð fram umsögn Fiskistofu um deiliskipulagstillöguna. Umsögnin kallar ekki á breytingu á deiliskipulagstillögunni.
Málsnúmer 1710242
21
Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, efnisvinnslusvæði í Álfsnesvík
Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við verkefnisslýsinguna.
Málsnúmer 1701306
22
Aðalskipulag Kópavogs. Nónhæð breyting.
Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við tillögurnar.
Málsnúmer 1611184
23
Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024. Endurskoðun. Brú yfir Fossvog, lýsing á skipulagsverkefni
Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við verkefnisslýsinguna.
Málsnúmer 1707120
24
Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, Gufunes
Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við tillöguna.
Málsnúmer 1710150
25
Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, Hraunbær - Bæjarháls
Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við tillöguna.
Málsnúmer 1711150
26
Aðalskipulag Mosfellsbæjar - breyting á landnotkun á Hólmsheiði
Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við verkefnisslýsinguna.
Málsnúmer 1711080
27
Upplýsingagjöf sveitarstjórna við útgáfu og endurskoðun á svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs
Lagt fram.