Beint í efni

Miðbær, neðsta svæði (svæði III), dsk br minnkun svæðis

Málsnúmer 1711135

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

7. (847). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi miðbæjar - neðsta svæði. (svæði III) samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.

Bæjarráð Garðabæjar

02

16. (1877). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi miðbæjar ? neðsta svæði. (svæði III) samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

6. fundur

Lagðar fram að lokinni auglýsingu tillaga að deiliskipulagi Hafnarfjarðarvegar sem gerir ráð fyrir bráðabirgðalagfæringum á stofnbrautinni ásamt tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar sem gerir ráð fyrir varanlegu útfærslum á umferðarkerfi. Lagðar fram tillögur að breytingum á deiliskipulagi Hörgatúns 2, deiliskipulagi Ásgarðs, deiliskipulagi Miðbæjar neðsta svæðis, deiliskipulagi Hraunsholts eystra og deiliskipulagi Ása og Grunda sem tengjast allar endurbótum umferðarkerfisins, bæði varanlegum og til bráðabirgða.
Lagðar fram athugasemdir og umsagnir sem borist hafa.
Lögð fram greinargerð með tillögum að svörum við athugasemdum.
Athugasemdir kalla ekki á breytingar á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar neðsta svæðis.

Skipulagsnefnd samþykkir tillögu að breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar neðsta svæðis í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

5. fundur

Lagðar fram tillögur að breytingu deiliskipulags Ásgarðs sem gerir ráð fyrir breytingu á stærð deiliskipulagssvæðisins til að laga deiliskipulagið að tillögum um endurbætur Hafnarfjarðarvegar.
5 erindi með athugasemdum og 3 umsagnir hafa borist. Athugasemdir og umsagnir lagðar fram.
Framlögðuum gögnum vísað til úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

3. (843). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi miðbæjar (svæði III). Tillagan skal auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.

Bæjarráð Garðabæjar

06

7. (1868). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi miðbæjar (svæði III). Tillagan skal auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

2. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Miðbæjar, neðstasvæðis (svæði III). Tillagan er til samræmis við tillögu að deiliskipulagi Hafnarfjarðarvegar sem er nú vísað í auglýsingu samhliða. Deiliskipulagssvæðið minnkar sem nemur því svæði sem sú deiliskipulagstillaga nær til. Forkynning tillögunnar hefur farið fram og kynningarfundur var haldinn þann 9. janúar sl sem var vel sóttur. Frestur til að skila inn ábendingum var til 28. janúar og alls bárust 10 erindi sem lögð eru fram á fundinum. Hafa verið send til ráðgjafa og Vegagerðarinnar til úrvinnslu. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar

08

1. (841).. fundur

Bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar - neðsta svæði. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi

Bæjarráð Garðabæjar

09

2. (1863). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulaglaga 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar - neðsta svæði. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

16. fundur

Lögð fram tilllaga að breyting á deiliskipulagi Sveinatungureits sem gerir ráð fyrir því að svæðið sem deiliskipulagið nær til minnkar sem nemur gatnamótum Vífilsstaðavegar og Hafjarfjarðarvegar. Tillögunni vísað til forkynningar í samræmi við 3.mgr 40.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar

11

19. (821). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að fram fari kynning samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar (svæði III) vegna svæðis við gatnamót Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar. Fallið er frá gerð lýsingar samkvæmt heimild í 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga enda liggja allar meginforsendur deiliskipulagsins fyrir í aðalskipulagi.

Bæjarráð Garðabæjar

12

47. (1813). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fram fari kynning samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar (svæði III) vegna svæðis við gatnamót Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar. Fallið er frá gerð lýsingar samkvæmt heimild í 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga enda liggja allar meginforsendur deiliskipulagsins fyrir í aðalsskipulagi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

13

15. fundur

Lögð fram tillaga að breytingun á deiliskipulagi Miðbæjar, neðstasvæðis (svæði III Sveinatungureitur). Skipulagssvæði hefur verið minnkað við gatnamót Vífilsstaðavegar og Hafnarfjarðarvegar í tengslum við tillögur Vegagerðarinnar um lagfæringar á núverandi útfærslu Hafnarfjarðarvegar og gatnamótanna. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr.Skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

14

14. fundur

Vegna tillagna um útfærslu á endurbætum gatnamóta Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar verður að gera þær breytingar á deiliskipulag Miðbæjar, neðsta svæðis, að mörk deiliskipulagsins færast að lóðarmörkum Litlatúns 1 og 3.
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.