47. (1813). fundur
47. (1813). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
05.12.2017
Kl. 08:00 - 08:50
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2018 (2018-2021)
Lögð fram tillaga um álagningu fasteignagjalda á árinu 2018 ásamt yfirliti um breytingar á öðrum gjaldskrám.
Lögð fram tillaga um breytingar á einstaka liðum við A og B - hluta frumvarps að fjárhagsáætlun ásamt breytingu á tillögu að framkvæmdayfirliti.
Bæjarráð samþykkir að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2018-2021 ásamt tillögum að breytingum og tillögu um álagningu gjalda til síðari umræðu í bæjarstjórn fimmtudaginn 7. desember nk.
02
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi undirbúning framkvæmda við endurbætur á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar við Lyngás og Vífilsstaðaveg.
Lögð fram.
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar vegna hringtorgs við Litlatún.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fram fari kynning samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar vegna hringtorgs við Litlatún. Fallið er frá gerð lýsingar samkvæmt heimild í 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga enda liggja allar meginforsendur deiliskipulagsins fyrir í aðalsskipulagi.
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna svæðis við gatnamót Hafnarfjarðarvegar og Lyngáss.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fram fari kynning samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna svæðis við gatnamót Hafnarfjarðarvegar og Lyngáss. Fallið er frá gerð lýsingar samkvæmt heimild í 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga enda liggja allar meginforsendur deiliskipulagsins fyrir í aðalsskipulagi.
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra vegna svæðis við gatnamót Lækjarfitjar og Hafnarfjarðarvegar.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fram fari kynning samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra vegna svæðis við gatnamót Hafnarfjarðarvegar og Lækjarfitjar. Fallið er frá gerð lýsingar samkvæmt heimild í 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga enda liggja allar meginforsendur deiliskipulagsins fyrir í aðalsskipulagi.
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar(svæði III) vegna svæðis við gatnamót Vífilsstaðvegar og Hafnarfjarðarvegar.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fram fari kynning samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar (svæði III) vegna svæðis við gatnamót Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar. Fallið er frá gerð lýsingar samkvæmt heimild í 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga enda liggja allar meginforsendur deiliskipulagsins fyrir í aðalsskipulagi.
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs vegna svæðis við Hafnarfjarðarveg og Vífilsstaðaveg.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fram fari kynning samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs vegna svæðis við gatnamót Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar. Fallið er frá gerð lýsingar samkvæmt heimild í 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga enda liggja allar meginforsendur deiliskipulagsins fyrir í aðalsskipulagi.
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina Hörgatún 2 vegna hringtorgs við gatnamót Vífilsstaðavegar og Litlatúns.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fram fari kynning samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hörgatúns 2 vegna svæðis við gatnamót Vífilsstaðavegar og Litlatúns. Fallið er frá gerð lýsingar samkvæmt heimild í 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga enda liggja allar meginforsendur deiliskipulagsins fyrir í aðalsskipulagi.
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi verkefnalýsingu nýs deiliskipulags vegna áfanga L1 og L2 á Lyngássvæði.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um verkefnalýsingu vegna nýrra deiliskipulags áfanga L1 og L2 á Lyngásvæði. Leita skal umsagnar Skipulagsstofnunar og hjá öðrum umsagnaraðilum ásamt því að kynna tillöguna fyrir almenningi.
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi athugasemdir við tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Arnarnes.
Lögð fram.
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Sunnuflöt 42.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að synja umsókn lóðarhafa að Sunnuflöt 42 um að gera opið bílskýli undir húsi.
12
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi fyrirspurn um útfærslu á bílgeymslu á lóðinni við Lindarflöt 35.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis vegna breytingar á bílskúr í ibúðarými og byggingu nýs bílskúrs innan byggingarreits lóðarinnar.
13
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag Heiðmerkur og Sandahlíðar.
Lögð fram.
14
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi verkefnalýsingu fyrir tillögu að aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030, efnisvinnslusvæði í Álfsnesvík.
Lögð fram.
15
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að aðalskipulagi Kópavogs vegna byggðar í Nónhæð.
Lögð fram.
16
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi verkefnalýsingu fyrir tillögu að breytingu á aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024, brú yfir Fossvog.
Lögð fram.
17
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030, Gufunes.
Lögð fram.
18
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030, Hraunbær - Bæjarháls.
Lögð fram.
19
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi verkefnalýsingu fyrir tillögu að breytingu á aðalskipulagi Mosfellsbæjar, landnotkun á Hólmsheiði.
Lögð fram.
20
Bréf Guðmundar Birgissonar varðandi frárennslismál í Lambhaga, dags. 23.11.17.
Bæjarráð vísar málinu til nánari skoðunar tækni- og umhverfissviðs.
Fylgiskjöl
21
Tölvupóstur frá velferðarráðuneyti varðandi framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks 2017-2021, dags. 28.11.17.
Bæjarráð vísar málinu til eftirfylgni á fjölskyldusviði og felur bæjarstjóra að hlutast til um að spurningum um aðgengismál verði svarað.
Fylgiskjöl
22
Bréf Sorpu bs. varðandi móttöku og flokkun á plasti til endurvinnslu, dags. 23.11.17.
Bæjarráð lýsir ánægju með framtak Sorpu bs. að koma upp búnaði fyrir flokkun á plastpokum sem innihalda plastumbúðir frá almennum heimilisúrgangi.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að tilnefna tengilið Garðabæjar vegna kynningar á málinu fyrir íbúum.
Fylgiskjöl
23
Bréf Sorpu bs. (afrit) varðandi viðræður við Kölku (Sorpeyðingarstöð Suðurnesja) um mögulega sameiningu, dags. 23.11.17.
24
Bréf Menntamálastofnunar varðandi val á Flataskóla vegna framkvæmdar á ytra mati, dags. 21.11.17.
Bæjarráð lýsir ánægju með að Flataskóli hafi verið valin til ytra mats grunnskóla á vorönn 2018.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að taka til umræðu innan vettvangs samtaka sveitarfélaga upplýsingar þess efnis að til standi að hlutur sveitarfélaga vegna framkvæmdar á ytra mati verði ekki áfram greiddur af Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Fylgiskjöl
25
Ársreikningur styrktarsjóðs Garðasóknar 2016.
26
Erindi Öryrkjabandalags Íslands um ábendingar varðandi snjómokstur, dags. 29.11.17.
Bæjarráð tekur undir sjónarmið bréfritara að tryggja beri eins og kostur er að snjómokstur sé með þeim hætti að hreyfihamlaðir eigi greiða leið að opinberum byggingu og þjónustu.
Bæjarráð vísar bréfinu til frekari vinnslu hjá tækni- og umhverfissviði.
Fylgiskjöl
27
Bréf UMF-Stjörnunnar um Þorrablót 2018, dags. 28.11.17.
Í bréfinu er farið fram á leyfi til að halda þorrablót Stjörnunnar í íþróttamiðstöðinni Mýrinni föstudaginn 19. janúar 2018. Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
28
Bréf Umhverfisstofnunar (afrit) varðandi framkvæmdir innan friðlýsts svæðis að Hliði á Álftanesi, dags. 24.11.17.
29