Lyngássvæði, deiliskipulag L1 og L2
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
15. (855). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að heiti götu á Stórásreit verði Eskiás.
Bæjarráð Garðabæjar
02
38 (1899.). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að heiti götu á Stórásreit verði Eskiás.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
14. fundur
Skipulagsnefnd samþykkir heitið "Eskiás" fyrir götuna sem í samþykktu deiliskipulagi er nefnd "Nýgata".
Í rökstuðning með tillögunni er bent á að örnefnið Eskines er til í nágrenni við Ásahverfi og að engin gata ber sama heiti í fasteignaskráningu á landsvísu.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
13. fundur
Tillaga að götuheiti
Lögð fram tillaga að heiti fyrir nýja götu sem nýtt deiliskipulag gerir ráð fyrir. Málinu vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
11. (851). fundur
Bæjarstjórn samþykkir samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda sem nær til svæðis sem afmarkast af Lyngási, Stórási og Ásabraut. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr 1. mgr. 41. gr.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum og deiliskipulagið með eftirfarandi áorðnum breytingum frá auglýstri tillögu
Íbúðum er fækkað úr 390 íbúðum í 375 íbúðir. Fjöldi bílastæða verður óbreyttur frá auglýstri tillögu og hækkar úr 1,2 í 1,25 bílastæði á íbúð.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.
Bæjarráð Garðabæjar
06
30. (1891). fundur
Bæjarráð samþykkir samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda sem nær til svæðis sem afmarkast af Lyngási, Stórási og Ásabraut. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr 1. mgr. 41. gr. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Skipulagsnefnd samþykkti að leggja til eftirfarandi breytingar við auglýsta tillögu.
Íbúðum er fækkað úr 390 íbúðum í 375 íbúðir. Fjöldi bílastæða verður óbreyttur frá auglýstri tillögu og hækkar úr 1,2 í 1,25 bílastæði á íbúð.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
11. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem nær til svæðis sem afmarkast af Lyngási, Stórási og Ásabraut að lokinni kynningu. Lagðar fram athugasemdir sem bárust innan athugasemdafrests.
Lögð fram greinargerð deiliskipulagsráðgjafa þar sem gerðar eru tillögur að viðbrögðum við athugasemdum og svör við þeim.
Skipulagsnefnd leggur til að gerðar verði eftirfarandi breytingar á auglýstri tillögu:
- Íbúðum fækkað úr 390 íbúðum í 375 íbúðir
- Íbúðum verður fækkað en bílastæðamagn verður áfram það sama og auglýst var á uppdrætti og hækkar þannig að meðaltali fyrir skipulagssvæðið úr 1,2 í 1,25 bílastæði á íbúð.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindum breytingum í samræmi við 3. mgr. 41. gr. og. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
10. fundur
Tillaga að breytingu deiliskipulags Ása-og Grunda lögð fram efra að lokinni auglýsingu. Athugasemdir sem borist hafa lagðar fram. Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og tækni-og umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
09
7. (847). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda er nær til svæðis sem afmarkast af Lyngási til norðurs, Ásabraut til vesturs og suðurs og Stórási til austurs
Bæjarráð Garðabæjar
10
16. (1877). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda er nær til svæðis sem afmarkast af Lyngási til norður, Ásabraut til vesturs og suðurs og Stórási til austurs.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
11
6. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem nær til 6,4 ha svæðis sem afmarkast af Lyngási til norðurs, Ásabraut til vesturs og suðurs og Stórási til austurs. Fyrir er á svæðinu athafna-og atvinnuhúsabyggð. Tillagan er sett fram í tillögu að nýju deiliskipulagi sem nær til svæðisins og um leið skulu felld út öll ákvæði sem gildandi deiliskipulag gerir ráð fyrir á viðkomandi svæði sem koma fram í skilmálum og á uppdrætti.
Sigurður Einarsson arkitekt hjá Batteríinu sem unnið hefur tillöguna gerði grein fyrir tillögunni á fundinum.Tillagan er í samræmi við rammaskipulag Lyngássvæðis-og Hafnarfjarðarvegar sem samþykkt var í bæjarstjórn árið 2017. Tillagan er í samræmi við Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030 en frekari breytingar á Þróunarsvæði A munu kalla á nánari útfærslur í aðalskipulagi. Skipulagsnefnd leggur til að ekki verði fleiri deiliskipulagsáætlunum vísað í ferli innan svæðisins fyrr en sett hefur verið fram tillaga að breytingu aðalskipulags sem rammahluti aðalskipulags sem nái til Þróunarsvæðis A.
Tillagan gerir ráð fyrir því að á svæðinu rísi fjölbýlishúsabyggð frá 2 að 4 hæðum og að hámarksfjöldi íbúða verði 390, 280 við Nýgötu og 110 við Lyngás.
Tillagan hefur verið forkynnt, m.a. á íbúafundi og fjöldi ábendinga barst sem unnið hefur verið úr.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.41.greinar Skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
12
2. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Lyngássvæðis L1 og L2 sem nær til svæðis sem afmarkast að Ásabraut, Lyngási og Stórási. Forkynning tillögunnar hefur farið fram og kynningarfundur var haldinn þann 9. janúar sl sem var vel sóttur. Frestur til að skila inn ábendingum var til 28. janúar og alls bárust 8 erindi sem lögð eru fram á fundinum.
Ábendingum vísað til úrvinnslu hjá deiliskipulaghöfundum og tækni-og umhverfissviði. Þar sem hér er um forkynningu að ræða í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þá verður ábendingum ekki svarað með formlegum hætti en þær verða liður í mótun tillögunnar.
Bæjarstjórn Garðabæjar
13
1. (841).. fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna uppbyggingar á Lyngásvæði L1 og L2. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi.
Bæjarráð Garðabæjar
14
2. (1863). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulaglaga 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna uppbyggingar á Lyngásvæði L1 og L2. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
15
16. fundur
Sigurður Einarsson arkitekt hjá Batteríinu og Þráinn Hauksson landlagsarkitekt hjá Landslagi ehf gerðu grein fyrir tillögu að deiliskipulagi reita L1 og L2 á Lyngássvæði. Svæðið sem tillagan gerir ráð fyrir um 395 íbúðareiningum í 3-4 hæða fjölbýlishúsum. Tillögunni vísað til forkynningar í samræmi við 3.mgr 40.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Tillagan skal kynnt á íbúafundi ásamt tillögum Vegagerðarinnar að bráðabirgða endurbótum Hafjarfjarðarvegar.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
16
5. fundur
Skipulagsstóri kynnir breytingu á deiliskipulagi við Lyngás
Bæjarstjórn Garðabæjar
17
13. (835). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um skipulagslýsingu vegna breytinga á deiliskipulagi Ása og Grunda fyrir svæði við Lyngás og Stórás, sbr. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagslýsingin skal kynnt almenningi, Skipulagsstofnun og öðrum umsagnaraðilum.
Bæjarráð Garðabæjar
18
34. (1849). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um skipulagslýsingu vegna breytinga á deiliskipulagi Ása Grunda fyrir svæði við Lyngás og Stórás, sbr. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagslýsingin skal kynnt almenningi, Skipulagsstofnun og öðrum umsagnaraðilum.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
19
11. fundur
Skipulagsráðgjafar, Sigurður Einarsson arkitekt og Þráinn Hauksson landlagsarkitekt ásamt fulltrúum lóðarhafa Stóráss 2-4, Mótás Garðabær ehf, þeir Bergþór Jónsson og Pétur Hannesson kynna drög að deiliskipulagi ásamt skipulagslýsingu fyrir Lyngás, svæði L1 og L2. Drög að tillögu gera ráð fyrir að skipulagðar verði 250-350 íbúðir auk þess sem áfram verði 1.000-2.000 m2 í atvinnuhúsnæði.
Skipulagsnefnd felur ráðgjöfum að vinna tillöguna áfram eins og drögin leggja til enda eru þau í samræmi við áherslu rammaskipulags og stefnu aðalskipulags.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða deiliskipulagslýsingu í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsnefnd felur tækni- og umhverfissvið að afla umsagna hjá Skipulagstofnun og öðrum umsagnaraðilum og kynna hana almenningi.
Bæjarstjórn Garðabæjar
20
19. (821). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um verkefnalýsingu vegna nýrra deiliskipulags áfanga L1 og L2 á Lyngásvæði. Leita skal umsagnar Skipulagsstofnunar og hjá öðrum umsagnaraðilum ásamt því að kynna tillöguna fyrir almenningi.
Bæjarráð Garðabæjar
21
47. (1813). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um verkefnalýsingu vegna nýrra deiliskipulags áfanga L1 og L2 á Lyngásvæði. Leita skal umsagnar Skipulagsstofnunar og hjá öðrum umsagnaraðilum ásamt því að kynna tillöguna fyrir almenningi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
22
15. fundur
Lögð fram tillaga að verkefnislýsingu fyrir deiliskipulagsáfanga L1 og L2 sem skilgreindir eru í rammaskipulagi Lyngássvæðis og Hafnarfjarðarvegar.
Skipulagsnefnd samþykkir lýsinguna í samræmi við 1.mgr.40.gr.Skipulagslaga og felur skipulagsstjóra að afla umsagna Skipulagsstofnunar og öðrum umsagnaraðilum og kynna hana almenningi.